Allt um íþróttir - 01.04.1951, Blaðsíða 27
Landskeppnirnar í Osló.
Það er nú kunnugt, að í sam-
bandi við þriggja-landa keppnina
í Osló hafa Danir komið fram með
þá tillögu, að stigaútreikningurinn
skuli ekki byggjast á 7-5-4-3-2-1,
heldur eins og í tveggja landa
keppni, 5-3-2-1 (þ. e. a. s. keppni
íslendinga við Norðmenn verði
reiknuð sér og keppnin við Dani
sér).
Norðmenn hafa gengið að þessu
og er nú beðið eftir svari íslend-
inga.
Enginn vafi er á því, að með því
að ganga að tillögu Dana, aukast
möguleikar okkar á að sigra báð-
ar þjóðirnar. Verður nánar vikið
að þessu síðar.
Norskur fimleikamaður hér.
Nýlega kom hingað á vegum
K.R. norski fimleikamaðurinn Odd
Bye-Nilsen, þjálfari norskra fim-
leikamanna fyrir næstu Ólympíu-
leika. Hann hefur æft og sýnt
með KR-ingum undanfarið og
gera þeir sér vonir um góðan ár-
angur af veru hans hér.
Nilsen er mjög góður fimleika-
maður, var t. d. norskur meistari
1934—39, og var í fyrra í bezta
6-manna flokki Oslóar.
„Þeir munu vekja athygli á næstu
Ólympíuleikjum."
Norski skíðagöngukennarinn Jo-
hannes Tenmann, sem hefur kennt
norðanlands og vestan í vetur,
sagði í viðtali við ritstj. skömmu
áður en hann fór af landi burt,
að göngumenn okkar væru mjög
efnilegir, og þeir mundu vekja at-
hygli á næstu Ólympíuleikjum.
Tenmann lagði til, að sendir
yrðu 6 menn, þrír í 50 km. göngu
og 3 í 18 km., en auk þess kepptu
þeir í boðgöngu. Væri skynsam-
legast, að Þingeyingarnir æfðu og
tækju þátt í 50 km., en ísfirðing-
amir í 18 km., og þeir, ásamt ein-
um Þingeyingi, kepptu í boðgöng-
unni. Þingeyingamir væm eldri
og þrekmeiri og ættu þar af leið-
andi að æfa á lengri vegalengd-
inni, en ísfirðingarnir allir ungir,
um tvítugt, og ekki hollt að spreyta
sig um of. — Enn fremur sagði
Tenmann, að þetta fyrirkomulag
mundi gefast bezt, vegna þess, að
þeir gætu þá hvorir um sig æft
saman ákveðna vegalengd.
Hann kvaðst vera tilbúinn að
koma aftur í haust, ef þess væri
óskað, og þjálfa göngumennina,
en taldi rétt, að þeir yrðu svo
sendir út til Noregs mánuði fyr-
ir Ólympíuleikana, til þess að
venja sig við landslag það, sem
keppt verður á.
Tenmann tók sérstaklega framr
að einn göngumannanna, ívar
Stefánsson, Þingeyjarsýslu, byggi
yfir jafnmikilli „teknik“ og beztu
göngumenn heimsins. Hann þyrfti
að æfa betur þolið og yrði þá fær
í flestan sjó.
Útsölumenn óskast.
Ritið óskar eftir útsölumönnum
um allt land. Hafið samband við
okkur sem fyrst.
IÞRÓTTIR
135