Allt um íþróttir - 01.04.1951, Qupperneq 22
ur hafa horfið þangað úr heima-
högunum að fullu og öllu. Þannig
hafa héruð og kaupstaðir misst
sína beztu menn og það aftur orð-
ið til þess, að áhuginn á íþrótt-
unum úti um land hefur gengið
í bylgjum, því að „fyrirmyndim-
ar“ vantar. Orsökin til þessa flótta
er auðvitað aðstöðumunurinn. Hér
er meiri íþróttaáhugi hjá almenn-
ingi, og mér virðist Reykjavíkur-
bær leggja meiri alúð við íþrótta-
starfsemina en gert er annarstað-
ar. Það er ekki von, að nokkur
tápmikill og frjálshuga ungur
maður leggi á sig það píslarvætti
að æfa íþróttir í heimahögunum
við erfiðar aðstæður, ef honum
býðst opin leið til frama hér í
Reykjavík, því að á þessu sviði
eru menn veikir fyrir. Nú eiga af-
reksmenn í íþróttum engan veg-
inn að vera aðalatriðið og íþrótt-
irnar heldur ekki eign fárra út-
valdra — síður en svo. Afreks-
mennimir eiga að vera merkisber-
ar íþróttahreyfingarinnar, glæða
áhugann og skapa þá fyrirmynd,
sem fjöldinn á að fylgja, og það
er fjöldinn, sem skiptir mestu
máli. Aðalatriðið er að fá alla
með. Þess vegna er það ósk mín,
að alls staðar, þar sem byggð er
á íslandi, verði með viti og fram-
sýni reynt að skapa þá aðstöðu
til íþróttaiðkana, að ekki sé flótta-
verð.
Ef ég ætti að miðla einhverjum
heilræðum til óreyndari íþrótta-
manna, þá yrðu þau eitthvað á
þessa leið: Kepptu aldrei óæfður
— skilyrðislaust aldrei — og helzt
aldrei lítið æfður. Taktu sigrum
og ósigmm með jafnaðargeði og
drengskap. Hlíttu ávallt úrskurði
dómara möglunarlaust, þó að þú
sért öruggur um, að hann sé rang-
ur. Meiri sigur getur þú ekki
unnið.
Baldur Jónsson.
Stykkishólmsbúar
stóðu sig mjög vel á M.í. í bad-
minton, því þriðja í röðinni, sem
fram fór í Reykjavík um páska-
helgina. Þeir unnu alls 4 meist-
arastig af 5. í einliðaleik karla
vann Ágúst Bjartmars, Sth., í ein-
liðaleik kvenna Halla Ámadóttir,
Sth., tvíliðaleik karla Umf. Snæ-
fell (Ólafur Guðmundsson, Ágúst
Bjartmars), tvíliðaleik kvenna
T.B.R. (Unnur Briem og Jakobína^
Jósefsdóttir), og í tvenndarkeppni
sigmðu Halla Ámadóttir og Þor-
geir Ibsen, Sth.
Badminton er ung íþrótt hér á
landi, en mjög skemmtileg og holl,
jafnt fyrir unga sem gamla. Er
reglulega gaman fyrir Stykkis-
hólm, hvað keppendur þeirra bám
af öðrum í móti þessu. Einn kepp-
andi mótsins, Einar Jónsson, ÍR,
var ólöglegur í þessu móti, þar sem
hann keppti fyrir T.B.R., en hafði
áður keppt fyrir Í.R. í þessari
íþróttagrein á árinu. Það verður
gaman að vita, hvað Í.S.Í. gerir í
því máli?
130
IÞRÓTTIR