Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 2

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 2
Herra ritstj. Ég er 13 ára og hef mikinn áhuga á íþróttum. Mig langar til að leggja fram nokkrar spurn- ingar: 1. Er Mel Patton (USA) hættur að æfa og keppa, en ef svo er ekki, hvað er þá bezti tími, sem hann hefur náð í 200 m. hlaupi í ár? 2. Hvert er Evrópumet í 200 m. hl., hver á það, og hvenær var það sett? 3. Hvað er góður tími fyrir 13 ára dreng í 3000 m. hlaupi? Með vinsemd, E r n s t. S v ö r: 1. Mel Patton Ólympíumeistari í 200 m. hlaupi er alveg hættur keppni. 2. Evrópumetið í 200 m. hlaupi er 20.9 sek. og á það Þjóð- verjinn Helmut Körnif,. Hann setti metið 19. ágúst 1928. 3. Það er frekar erfitt að svara þessari spurningu. Þrettán ára drengir eru mjög misjafn- lega þroskaðir. Að okkar áliti eru 11 mín. góður tími hjá 13 ára dreng í 3 km. hlaupi. Ritstj. fengu nýlega bréf frá les- anda, sem nefnir sig „Káerr“. — Hann gefur okkur margar ábend- ingar um efni ritsins, sem við tök- um þakksamlega á móti. Bréfritarinn talar m. a. um það, að hann sé mótfallinn því, að ver- ið sé að skrifa um kappmót, sem löngu séu liðin, dagblöðin hafa öll skrifað um þau. Slíkt er þurr og leiðinlegur lestur, látið árbækur um slíkt. Þið eigið að skrifa um fræga íþróttamenn og merka við- burði,, svipað og gert er í þátt- unum ísL íþróttamenn og íþrótta- menn undir smásjánni, meira af slíku. Einnig fræðandi greinar og meiri gagnrýni um atburði, sem ekki eru sæmandi íþróttamönnum og íþróttahreyfingunni. Þó að íþróttamenn okkar geri margt vel, er sumt, sem heyrzt hefur um þá, sem sett hefur blett á þá. Þetta á að gagnrýna meira en gert hef- ur verið til þessa og það tel ég einmitt vera ykkar hlutverk. Reykjavíkð 24./10. 1951. Til „Allt um íþróttir“, Reykjavík. í sumar hef ég verið næstum fastur gestur á frjálsíþróttamótum höfuðstaðarins. Þótt að mörgu megi þar finna og hafi verið fund- ið í sambandi við þau, get ég þó ekki stillt mig um að finna að einu atriði, sem eftir því sem ég bezt veit, hefur til þessa legið í þagnargildi. Það er klæðnaður keppenda á mótinu. Síðan farið var að heyja landskeppnir í frjáls- íþróttum hefur það mjög farið í Frh. á bls. 345. 324 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.