Allt um íþróttir - 01.10.1951, Blaðsíða 26

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Blaðsíða 26
á 10.3, og 200 m. á 21.5. Litujev vann 400 m. grhl. á 52.0, Klics kringlukast á 51.55, Nemeth hafði 58.13 í sleggju, Grigalka 16.28 í kúlu og Söter 1.96 í hástökki. Rússar unnu 4X100 á 41.4. Brjas- nik vann stöng á 4.20, Apro, Ung- vl., 3 km. hindr.hl. á 9:07.6 (met). Egyptaland. Nýlega fór fram stórt mót í Alexandríu með þátttöku margra þjóða. Mörg ágæt afrek voru unnin, t. d. vann Grikkinn Yataganis kúlu- varpið með 15.03 m., sem er nýtt grískt met. Cosmas, Grikkl., vann tugþraut með 5135 st., Frakkinn Degats og Siddi, Ítalíu, háðu harða baráttu í 400 m. Sá fyrrnefndi sigraði með 47.8 gegn 47.9. Japan. Hasegawa hefur stokk- ið 15.48 í þrístökki og Konami hefur hlaupið 110 m. grindahlaup á 14.5 sek. Svíþjóð. Arne Ljungquist hefur stokkið 2 m. í hástökki og munaði mjög litlu að hann færi 2.02. Sænskir sund- menn hafa sett 24 sundmet á árinu 1951, þar af hefur Göran Larsson sett 6 og Bengt Rask 5. Met Lars- sons í 100 yds. er t. d. 50.8, 100 m. 56.7, 200 m. 2:08.5, 220 yds. 2:12.2. í bringusundinu hefur Rask synt 100 m. á 1:09.4, 200 m. á 2:32.6 og 400 m. á 5:44.3. Bertil Albertsson setti nýlega nýtt sænskt met í 10 km. hlaupi með 29:46.0 mín. og er fyrsti Sví- inn, sem kemst niður fyrir 30 mín. Straumurinn til suðrænna sólar- landa heldur áfram hjá sænskum knattspyrnumönnum: Palmér og Filippini (MFF) fóru í júní, Sigge Löfgren (HIF) í september og Hans Jeppsson (Djurgárden) fer í nóvember til Átalanta fyrir hæstu upphæð, sem greidd hefur verið fyrir leikmann á Norðurlöndum eða 260 þús. sænskar kr. Svíum þótti strax og þessir mannflutning- ar hófust kynlegt, hve ítalirnir voru fljótir til, ef einhver efnileg- ur leikmaður kom fram, einkum eftir að stóru stjörnurnar úr Lun- dúnaliðinu 1948 voru farnar. Síðar kom fram, að það mundi hafa ver- ið þjálfari Norrköping, Ungverjinn Czeisler, sem hafði „selt“ þá. Þeg- ar hann svo hafði selt sjálfan sig til Milan, tóku böndin að berast að ítölskum hljómlistarmanni í Mal- mö, Filippini að nafni. Hefur hann nú ,,selt“ milli 10 og 20 leikmenn suður á bóginn. Og komi fram efnilegur leikmaður, er hann kom- inn á sporið með tilboð. Ennfrem- ur er hann tekinn að leita fanga í Noregi, þar sem hann krækti í Ragnar Larsen fyrir Lazio. í sumar hefur innherji Hálsing- borg, Löfgren, verið aðalumræðu- efni blaðanna. Þykir þeim m. a. undarlegt, að áhugamaður skuli geta tekið við ,,festarfé“ hjá at- vinnufélagi og haldið áhugamanns- réttindum sínum óskertum, en Lazio greiddi honum 2000 kr., sem hann fékk sænska knattspymu- 348 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.