Allt um íþróttir - 01.10.1951, Síða 4
ZATOPEK -
mesti hlaupari, sem uppi hefur verið,
Zatopek hefur ekki keppt oft í
sumar, en þau fáu skipti, sem
hann hefur „hreyft" sig, sanna, að
hann er ennþá í fullu fjöri. Þessi
29 ára gamli garpur vann svo
glæsileg afrek fyrir nokkrum vik-
um, eða nánar tiltekið 29. sept.,
að margir drógu þau í efa. Braut-
in í Houstka, þar sem keppnin fór
fram, er 367 metra löng, og 17
keppendur lögðu af stað í þetta
20 km. hlaup. Zatopek hljóp vega-
lengdina innan við 1 klst. eða á
59 mín. 51.8 sek. Svíar hafa hald-
ið því fram undanfarin ár, að
Hágg sé konungur hlauparanna,
en Idrottsbladet sagði eftir hlaup-
ið, að nú væri enginn vafi, hver
væri beztur. Það hefur ávallt ver-
ið takmark þolhlaupara að komast
niður fyrir 30 mín. í 10 km. hlaupi,
en nú gerir Zatopek sér lítið fyrir
og nær millitímanum 29:53.4 á
fyrri 10 km., heldur svo áfram
aðra 10 km. og hleypur þá einnig
innan við 30 mín. eða á 29:58.4
mín.! Hlaupið var mjög jafnt, það
sýna millitímamir á 5 km. Fyrstu
5 km. hljóp hann á 14:57.5, aðra
á 14:55.9, síðan 15:01.2 og síðustu
á 14:57.2. íslenzka metið í 5 km.
hlaupi er 15:23 og er orðið 29 ára
gamalt! Fjórtán dögum áður hljóp
Zatopek einnig 20 km. og bætti þá
heimsmet Heino frá 1949 um 1
mín. og 24 sek., en nú bætir hann
þetta fjórtán daga gamla met sitt
um 1 mín. og 24.2 sek. Þegar
Zatopek íhljóp í fyrra skiptið, hélt
hann áfram klukkutímann, og fór
fram úr heimsmeti Heino, sem var
19339 m.; hann náði 19558 m.
Núna hélt hann einnig áfram í
klukkutíma og komst upp í 20052
m. Einnig var tekinn tími á 10
enskum mílum (16.090 m.), þar
sem hann tók enn eitt metið af
Heino, hljóp á 48:12.0mín. (Heino
49:22.2).
Afrek Nurmi þóttu á sínum
tíma alveg sérstök, en ef hann og
326
IÞRÓTTIR