Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 6
Þing frjálsíþróttasambanda
Norðurlanda.
Þing frjálsíþróttasambandanna
á Norðurlöndum var haldið í
Reykjavík dagana 26. til 27. októ-
ber s.l. Fundinn sátu fulltrúar frá
öllum Norðurlöndunum. Frá Dan-
mörku Thor Dahl-Jensen, frá Finn-
landi Lauri Miettinen og Erik
Áström, frá Noregi Björn Bente-
rud, og frá Svíþjóð Tage Eriksson
og Birger Bergvall. Af íslands
hálfu sátu þingið stjóm og vara-
stjóm Frjálsíþróttasambandsins.
Þá sat forseti Í.S.Í., Benedikt G.
Wáge, þingið sem heiðursgestur.
Þingið var haldið í húsakynnum
Frjálsíþróttasambandsins og var
forseti þess valinn Tage Eriksson,
formaður sænska frjálsíþróttasam-
bandsins, ritarar vom Bragi Krist-
jánsson og Brynjólfur Ingólfsson.
Fjölmörg mál voru rædd á þing-
inu og má af þeim nefna eftirfar-
andi:
þeir ætla að halda titli sínum. Lið
Víkings, KR og Aftureldingar eru
mjög svipuð og í fyrra, en ÍR-liðið
er veikara.
í kvenflokki er Fram öruggasta
liðið, en bæði Valur og Ármann
em lítið lakari. Næsta handknatt-
leiksmótið er Meistaramót Reykja-
víkur, sem nú stendur yfir.
328
Meistaramót Norðurlandanna.
Meistaramót hinna fimm Norð-
urlanda verða 1952 haldin á sama
tíma, þ. e. um helgina 23.—24.
ágúst.
Landskeppnir Norðurlandanna
innbyrðis voru ákveðnar sem hér
segir:
1) Drengjamót Svía, Finna og
Norðmanna fer fram 14.—15. ág.
í Osló eða e. t. v. annars staðar i
Noregi.
2) Landskeppni Dana og Norð-
manna fer fram í Kaupmannahöfn
28.—29. ágúst.
3) Kvennalandskeppni Dana,
Finna og Svía fer fram í Kaup-
mannahöfn 7. sept.
4) Keppni Finna og Norðmanna
í karla- og kvennaflokki í Osló
13. —14. sept.
Ennfremur var tilkynnt á þing-
inu, að Svíar hefðu ákveðið lands-
keppni við Breta 4.—5. septem-
ber í Stokkhólmi og við Þýzkaland
í Dusseldorf 13.—14. sept. og loks
Finnar við Frakka í París 13.—
14. september.
Ekkert boð hefur borizt.
íslendingar hafa enn ekki feng-
ið neitt boð um landskeppni og
ekki treyst sér til að bjóða heim
liði eða ráðast til utanferðar með
landslið á sinn kostnað eins og
ÍÞRÓTTIR