Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 22

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 22
Árbók íþróttamanna 1951 komin út. Árbók íþróttamanna 1951 kom nýlega á markaðinn, en hún flyt- ur yfirlit og fróðleik um íþróttir ársins 1950. Bók þessi er 344 síður, mjög vel frá henni gengið og er prýdd fjölda mynda. Iþróttaunn- endum er eindregið ráðlagt að tryggja sér þessa bók, áður en það er um seinan. Það er þó einn ljóður á þessari ágætu bók og hann stór: hún er of dýr. Kostar 60 kr. í útsölu. Sundmót Ármanns var dauft. Sigurður KR-ingur setti met í 500 m. bringusundi. Þeir voru frekar fáir, sem lögðu leið sína upp í sundhöll, til þess að horfa á hið árlega sundmót Ár- manns. Mótið misheppnaðist að því leyti, að það gekk seint. Kepp- endur voru fáir og mættu ekki all- ir til leiks. Einnig var árangur frekar lakur, ef undanskildir eru Pétur Kristjánsson, sem vann 50 m. baksund á 34.4 og 200 m. skrið- sund á 2:30.8. Einnig Sigurður KR-ingur, sem vann 500 m. bringu- sund á 8:02.8, en sá árangur er 3.2 sek. betri en met Inga Sveins- sonar frá 1941. Sigurður Þorkels- son átti einnig ágætt sund, 8:20.5. Þriðji í keppninni var Sverrir Jóns- son, Ólafsfirði, en ógilti sund sitt. í 50 m. baksundi var árangur flestra keppendanna sæmilegur. Ólafur Guðmundsson varð annar á 35.0 sek., síðan syntu þrír á 36.1. Þórdís vann 100 m. bringusund skv. venju á 1:31.9 mín. Helga Haraldsdóttir vann 50 m. skrið- sund kvenna á sæmilegum tíma, 36.0 sek. Unglingasundin voru jöfn og skemmtileg. Keflvíkingurinn Sigurður Eyjólfsson vann 100 m. bringusund á 1:29.5, Sigrún Þóris- dóttir, Reykholti, 50 m. bringu- sund á 44.5 sek. 100 m. skriðsund drengja vann Gylfi Gunnarsson, IR, á góðum tíma, 1:10.3. Hann er mjög efnilegur sundmaður. — FRÓÐLEIKUR UM SKÁK — Kennslubók í skák hefur Draupnisútgáfan nýlega gefið út og er hún eftir hinn heims- kunna skáksnilling, Emanuel Las- ker. Magnús G. Jónsson hefur þýtt bókina og farizt það mjög vel úr hendi. Bókin er vönduð að öllum frágangi og ódýr, og ættu allir skákunnendur að ná sér í hana, en upplag mun þó, því miður, vera takmarkað. Námskeið í skák hefur Bréfaskóli S.Í.S. ráðizt í og er Baldur Möller, Norðurlanda- meistari í skák, kennari. Er þetta fyrst og fremst ætlað byrjendum, en þó verða kenndar byrjanir og „kombinasjónir" í seinni hluta námskeiðsins. Kennsla fer að sjálfsögðu fram bréflega og eru verkefnin eftir hinn velþekkta skákmann Svía, Gideon Stáhlberg. 344 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.