Allt um íþróttir - 01.10.1951, Síða 24
Bretland.
Allar líkur benda til
þess, að deildakeppnin
ætli að verða tvísýn og
spennandi. Arsenal hefur nú tekið
forystuna eftir 3 sigra í röð: 3-0
yfir Middlesbro, 4-3 á móti Ful-
ham og 1-3 yfir Charlton.
„Þrælasalan" svo kallaða er í
fullum gangi. Kaup Stoke City og
Manchester City á 2 leikmönnum
hafa breytt gengi þessara liða til
hins betra. Stoke keypti írska
landsliðsmanninn Smyth frá Wol-
ves fyrir 23.000 pund og skipti þá
svo um, að liðið vann 5 sigra í röð
eftir jafnmarga ósigra. Manchester
City fékk Ivor Broadis frá Sunder-
land og hefur síðan fengið 9 stig
af 10 mögulegum. Blackpool hefur
keypt hinn smávaxna en snjalla
innherja Newcastle, Taylor, fyrir
27.000 pund.
Staðan í I. deild er nú þessi:
Manch. City 15 6 4 5 21-22 16
Liverpool 16 5 6 5 23-22 16
Wolves 14 7 1 6 33-24 15
W.B.A. 15 ■4 7 4 28-26 15
Blackpool 16 5 5 6 23-27 15
Derby C. 15 6 2 7 25-30 14
Middlesbro 15 5 3 7 29-32 13
Burnley 16 4 4 8 17-27 12
Stoke C. 17 5 2 10 18-38 12
Chelsea 15 5 1 9 19-29 11
Sunderland 14 4 2 8 20-26 10
Huddersf. 16 3 3 10 19-32 9
Fulham 16 3 2 11 22-30 8
Noregur.
Norska landsliðið hef-
ur verið óvenju-athafna-
samt í ár. Leikurinn í
Gautaborg var 9. landsleikurinn í
ár og hann færði Norðmönnum
fyrsta Norðurlandatitilinn í 13 ár.
Úrslit keppninnar í ár urðu:
Norðmenn 3 2 1 0 7-4 5
Danir 3 2 0 1 4-3 4
Svíar 3 1 0 2 7-9 2
Finnar 3 0 1 2 3-5 1
Samvinnan við Júgóslafa heldur
áfram. Þriðji landsleikurinn gegn
þeim á 2 árum fór fram í Osló um
miðjan ágúst. í fyrri hálfleik léku
þeir norska liðið sundur og saman,
en skoruðu aðeins 4 mörk, en Norð-
mönnum tókst að skora 1, og tóku
Arsenal 16 9 4 3 28-15 22
Bolton 15 9 3 3 26-20 21
Portsmouth 15 10 1 4 26-21 21
Manch.Utd. 16 9 3 4 35-22 21
Tottenham 16 9 3 4 32-24 21
Charlton 17 7 4 6 33-34 18
Preston 16 8 2 6 29-21 18
Newcastle 15 7 3 5 38-23 17
Aston Villa 16 '8 1 7 28-30 17
sig síðan saman í síðari hálfleikn-
um, sem þeir unnu með 1-0 (2-4).
í leiknum við Dani höfðu Norð-
menn algera yfirhönd og gerðu þá
breytingu á liðinu, að bakvörður-
inn Spydevold var fluttur fram
sem framv. og lék Lundberg út
úr leiknum. Norðmenn sigruðu
með 2-0.
346
IÞRÓTTIR