Allt um íþróttir - 01.10.1951, Side 30
lovic 55.5. Hástökk: Dimitrijevic
1.95, Zerkov 1.89. Langst.: Brnad
7.45, Milicovic 7.07. Stöng: Mila-
kov 4.10, Dusanovic 3.90. Þríst.:
Zagorc 14.39, Radovanovic 14.38.
Kúluvarp: Sarcevic 14.94, Krupa-
lija 14.33. Kringla: Zerjal 48.50,
Krujavic 47.06. Spjótkast: Dangu-
bic 66.89, K. Vujacic 64.20. Sleggju-
kast: Zerjal 58.80, Gubijan 55.53.
Tugþraut: Marcelja 6340, Rebula
6337, Paget 5257. — Kvenfólkið er
heldur lakara, en þær eru ágætar
í kringlukasti 43.48, 42.02 og 41.12,
kúla 13.14, langst. 5.59.
Frakkland.
ISíðasta mánuðinn hef-
ur franska landsliðið
komið mjög á óvart með
2 jafnteflisleikjum, við Englend-
inga 2-2 í London og Austurríkis-
menn í París, einnig 2-2. Fyrir
leikinn við England var Malmö FF
fengið til að leika æfingarleik við
landsliðið á upplýstum velli í Par-
ís. Sigruðu Frakkar með 4-2.
í byrjun október lék Milan FC
við Racing í París og sigraði með
5-0, þar af skoraði Nordahl 4. —
ítalska liðið var á öllum sviðum
mörgum „klössum" fyrir ofan það
franska. Eini leikmaður R.C.P.,
sem kvað hafa jafnast á við leik-
menn Milan, var Albert, en aðeins
framan af, en þá lék hann ,ítalskt‘.
Þá á hann að hafa tekið að leika
,gönguknattspyrnu‘, sem var þó
heldur betra en ,stöðuknattspyrn-
an‘ sem hinn innherjinn lék, en
hann er Júgóslafi.
Racing er nú 3. í deildakeppn-
inni með 9 stig eftir 7 leiki. Efst
eru Roubaix með 19 og Metz, sem
kom upp úr 2. deild í vor, með 12
stig. Racing tapaði m. a. fyrir
Metz (1-2), en hefur unnið lið eins
og Le Havre (0-2) og Marseilles
(5-1). Eftir þann leik fékk Albert
afbragðsdóma og var kallaður
,hershöfðingi‘ liðsins.
ítalía.
Síðustu kaupin á
Norðurlöndum hafa nú
reynzt þannig, að vonir
virtust standa til að lát yrði á
markaðsferðum ítalskra spekú-
lanta þangað. En svo virðist ekki
vera, og nú orðið eru norskir knatt-
spyrnumenn komnir undir smá-
sjána. Ragnar Larsen frá Sand-
aker, sem lék hér sem lánsmaður,
með Válerengen í sumar, er nú
kominn suður til Rómaborgar, þar
sem Lazio hefur boðið honum
samnnig, en hann vill fá 150.000
kr. fyrir snepilinn. Ekki hefur
frétzt, hvort af samkomulagi hef-
ur orðið. Til Lazio er einnig kom-
inn Svíinn Sigge Löfgren frá Háls-
ingborg, sem verið hefur aðalum-
ræðuefni sænsku blaðanna í sumar.
Nýju liðin í I. deild hafa bæði
leitað norður á bóginn 'í leit að
styrkingum, með nokkuð ólíkum
árangri. Spal bauð danska lands-
liðsmiðframverðinum Dion 0m-
vold samning, sem hann þáði. Fé-
lagið er nú 9. með 5 stig eftir 5
leiki. Legnano krækti í vor í hálft
Malmö-liðið, þar sem Calle Palmér
var, og auak þess fylgdi hinn hálf-
ítalski vinstri útherji MFF með í
352
IÞRÓTTIR