Allt um íþróttir - 01.10.1951, Qupperneq 31

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Qupperneq 31
kaupbæti, en fyrir var Eidefjáll, sem lék hér með Djurgárden 1948. Félagið er nú neðst með ekkert stig. Langbarðalandsþrenningin, Milan, Juventus og Intemazionale, hafa enn á ný forystuna, öll með 9 stig og taplaus. Finnland. Finnskir frjálsiþrótta- menn, fimleikamenn og skíðamenn hafa á undan- förnum áratugum borið hróður lands og þjóðar víða, en finnskir knattspymumenn hafa ekki þótt verulega liðgengir til þeirra starfa. Knattspyman hefur gegnt heldur lítilssigldu aukahlutverki í íþrótta- lífi Finna. En síðustu árin hefur verulegra breytinga orðið vart og má m. a. geta sigranna yfir Hol- lendingum 4-1 og Júgóslöfum 3-2. ,,Vendipunkturinn“ virðist hafa verið hinn mikli ósigur fyrir Sví- um (B-liði) í Malmö haustið 1949, og var sænska liðið skipað 8 leik- mönnum frá MFF. Leiktímabilið er svipað að lengd og hjá okkur, eða að minnsta kosti eins og það var hjá okkur í fyrra. Finnska landsliðið lék nokkra æf- ingaleiki í Danmörku í apríl fyrir landsleikinn í Englandi gegn áhugamannalandsliðinu enska, sem sigraði með 2-1. Síðan hófst Norð- urlandakeppnin með leik við Norð- menn í Helsinki 16. ágúst. í þeim leik sýndu Finnar, að þeir em í mikilli framför. Þeir réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik, og það var Tom Blohm í norska markinu að þakka, að munurinn var í hléi IÞRÓTTIR ekki nema 1-0. Bredesen jafnaði fyrir Norðmenn í síðari hálfleik. Eftir stríðið hafa Svíar ekki metið Finna meir en okkur í sum- ar, nefnilega að tefla gegn þeim B-liði og leika 2 landsleiki sam- tímis. í september léku þeir við Finna í Stokkhólmi samtímis leiknum við Júgóslafa í Belgrad. í þetta sinn sluppu þeir betur en hér í sumar, nú sluppu þeir með skrekkinn. Finnska landsliðið kom gersamlega á óvart með afar tekn- iskum og árangursríkum leik. Það hefur nú bætt úr þeim galla, sem háði því hér 1948, en það eru skot- in. Eftir 27 mín. höfðu Finnar 2 mörk yfir og voru bæði skoruð af 20 m. færi, og úti á vellinum voru þeir afgerandi betri og náðu létt- um og leikandi samleik. Svíunum tókst að jafna á 69. mín. og skora sigurmarkið 3 mín. fyrir leikslok. Síðasti leikur Finna í Norður- landakeppninni fór fram í Höfn í byrjun október og sigruðu Danir með 1:0. Þar staðfestu Finnamir enn betur, að nú verður að fara að taka þá alvarlega í þessari keppni, þeir voru betri úti á vellinum og fengu fleiri tækifæri, en skotin brugðust. Eftir þessa leiki er það álit andstæðinganna, að finnsku innherjamir Rytkönen og Lehto- virta séu í sérflokki meðal inn- herja á Norðurlöndum, ásamt Norðmanninum Bredesen. Finnar léku svo í Amsterdam 3. nóv. við Hollendinga og varð jafntefli 4-4 (2-2). Fréttir af keppnisfyrirkomulagi finnsku knattspymunnar hafa ekki 353

x

Allt um íþróttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.