Allt um íþróttir - 01.10.1951, Qupperneq 32

Allt um íþróttir - 01.10.1951, Qupperneq 32
verið viðamiklar, við vissum ekki einu sinni fyrir hvaða félög þeir landsliðsmenn léku, sem hér voru 1948. Það fer heldur ekki vel á, að hér á þessum vettvangi skuli ekki vera minnzt á finnskar knatt- spymukeppnir, þegar aðgætt er það rúm, sem eytt er í að kynna 'lesandanum viðhorfin á hinum Norðurlöndunum. Úr þessu mun verða reynt að bæta eftir föngum. Eins og áður segir, hófst leiktíma- bilið í apríl og er nú lokið, en er síðast til fréttist, var staðan þessi í I. deild: Kotka 16 8 7 1 39-24 23 IFK Vasa 16 8 6 2 39-23 22 Turun PK 16 6 7 3 34-22 19 Haka 16 7 5 4 35-25 19 Kuopio 16 7 2 7 32-27 16 Turun PS 16 6 4 6 35-35 16 Kiffen 16 7 2 7 36-38 16 VPS 16 4 7 5 30-29 15 Vargarna 16 3 310 17-47 9 Ilves-Kissat 16 1 3 12 16-43 5 Austurríki. Deildakeppnin hófst að nýju í haust með óvæntu gengi liðs „utan úr sveit“, Linz. Annars hefur því lengst af verið þannig farið, að austurrísk knattspyma hefur ver- ið sama og Vínarknattspyrna eða Vínarstíllinn. Linz sigraði í fjór- um fyrstu leikjum sínum, m. a. hið fræga lið Vienna með 4-1. í 5. umf. mætti það svo Austria og eftir 40 mín. hafði það yfir 2-1, missti þá markvörðinn út af og strax eftir hlé einnig miðframvörðinn. Gegn Austria nægir ekki 9-manna lið, lauk leiknum með sigri þess, 10-2. Skipar það nú efsta sætið með 10 stig, Austurríska landsliðið hefur nú skapað sér slíkt orð, að það er tal- ið með sterkustu liðum álfunnar, og er ekki ósennilegt, að það verði fyrst erlendra liða til að sigra enska liðið á heimavelli, en sá leik- ur fer fram á Wembley 28. nóv. LEIÐRÉTTING VIÐ ÚRSLITATÖLUR SAMNDRRÆNU SUNDKEPPNINNAR Framkvæmdanefnd sundkeppn- innar sendi frá sér leiðréttingu á úrslitum sundkeppninnar, sem ger- irir mismuninn enn þá meiri á Is- landi og næsta landi, sem var Finnland. í upphafi var álitið, að Finnland hefði fengið 251.874 þátt- takendur, en þetta reyndist ekki rétt, heldur voru þátttakendumir 176.312, en það gefur 251.874 stig. Ástæðan fyrir þessum mistökum mun hafa verið lélegt símasam- band milli landanna. Áskrifendur! Aðeins skuldlausum áskrifend- um verður sent jólablaðið, sem kemur um miðjan desember. 354 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.