Skinfaxi - 01.11.2013, Side 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 4. tbl. 2013
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Sigurður Guðmundsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar
Bender.
Ritnefnd:
Örn Guðnason formaður,
Gunnar Gunnarsson,
Berglind Ósk Agnarsdóttir,
Pétur Arason og
Jóhanna Hreiðarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Örn Guðnason, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Ragnheiður Högnadóttir,
Baldur Daníelsson,
Kristinn Óskar Grétuson,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Forsíðumynd:
Hildur Maja Guðmundsdóttir, 8 ára
Selfyssingur, fylgist með setningu
27. Landsmóts UMFÍ á Selfossi í sumar.
Myndina tók Gunnar Gunnarsson.
Á tímamótum sem þessum þykir við
hæfi að líta um öxl, fara yfir árið sem
er á enda liðið, og horfa til þess nýja
sem senn rennur í garð. Árið 2013 er
fyrir marga hluta sakir sérstakt innan
UMFÍ, en árið var viðburðaríkt, svo
ekki sé meira sagt, þrjú stór mót voru
haldin auk margra viðburða og
annarra uppákoma.
Eins og flestir hafa fengið að reyna
hefur þjóðin farið í gegnum þreng-
ingar á síðustu árum. Af þeim sökum
hefur víða þurft að skera niður sem
hefur síðan bitnað á íþrótta- og
æskulýðsstarfi. Þrátt fyrir niður-
skurðinn hefur með ótrúlegri seiglu
og skipulagningu tekist að halda
starfseminni úti og á mörgum svið-
um hefur árangurinn verið með mikl-
um ágætum.
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu hefur aldrei fyrr komist jafn
langt, en liðið komst í fyrsta sinn í
umspilsleiki um sæti í lokakeppni
heimsmeistaramótsins. Þar varð
liðið loks að lúta í gras gegn Króötum.
Strákarnir voru aðeins hársbreidd frá
því að komast í sjálfa úrslitakeppnina
í einum af stærstu íþróttaviðburðum
heimsins sem haldinn er á fjögurra
ára fresti. Einhverjir kunna að spyrja
og hafa eflaust velt því fyrir sér af
hverju liðið náði svona langt. Við
því er kannski ekki til einhlítt svar en
umgjörðin í kringum knattspyrnuna
á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum
á síðustu 10–15 árum. Hér hafa risið
yfirbyggð knattspyrnuhús, sparkvell-
ir eru úti um allt land og fleiri knatt-
spyrnumenn fara í atvinnumennsku
og þá til betri liða en áður. Allt þetta
gerir okkur að betri knattspyrnu-
þjóð þegar til lengri tíma er litið.
Kvennalandsliðið komst í annað sinn
í sögunni í lokakeppni en stelpurnar
komust alla leið í 8-liða úrslit á
Evrópumótinu í Svíþjóð. Árangurs
knattspyrnulandsliðanna verður
lengi minnst, að ekki stærra land
skuli getað státað af slíkum árangri
er einstakt.
Frjálsíþróttamenn og fimleikafólk
hafa ekki látið sitt eftir liggja. Aníta
Hinriksdóttir er bjartasta vonin í
frjálsíþróttaheiminum. Heims- og
Evróputitlar í 800 metra hlaupi
skutu henni upp á stjörnuhimininn
svo eftir var tekið um allan heim.
Það verður spennandi að fylgjast
með Anítu á næsta ári. Hópfimleika-
lið Gerplu sýndi enn eina ferðina mátt
sinn og megin þegar liðið tryggði
sér Norðurlandameistaratitilinn í
Danmörku. Svona væri hægt að telja
áfram. Íslenskir íþróttamenn gerðu
vart við sig á árinu svo eftir var tek-
ið um allan heim. Landslið karla í
handknattleik hefur átt fast sæti í
flestum lokakeppnum á þessari öld
en næsta stórmótið bíður við hornið
þegar flautað verður til leiks á
Evrópumótinu í Danmörku.
Það hefur ekki verið mulið undir
íslenskt íþróttafólk en með ástundun
og eljusemi er hægt að ná langt og
við getum öll verið stolt af okkar
fólki. Nú bíður okkar nýtt ár sem
verður ekki síður spennandi en það
sem kveður brátt.
Skinfaxi óskar ungmennafélögum,
sem og landsmönnum öllum, gleði-
legra jóla og farsældar á nýju ári.
Árangur íþróttafólksins okkar í háum
gæðafl okki þrátt fyrir þrengingar
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
G
óð þátttaka var í almennings-
íþróttaverkefnum UMFÍ í sumar
sem leið. Þátttakendur í verkefn-
inu Hættu að hanga! Komdu að hjóla,
synda eða ganga voru duglegir að
hreyfa sig og ganga á fjöll.
Í verkefninu Fjölskyldan á fjallið rituðu
á annan tug þúsunda nöfn sín í gesta-
bækur sem hafði verið komið fyrir á 24
fjöllum. Flest þessara fjalla eiga það sam-
eiginlegt að tiltölulega létt er að ganga
á þau. Markmiðið er fyrst og fremst að
fá einstaklinga og fjölskyldur í léttar fjall-
gönguferðir og stuðla þannig að auk-
inni samveru, útivist og um leið góðri
líkamsrækt. Göngugarpar voru hvattir
til að rita nöfn sín í göngubækurnar á
fjöllum. Verkefnið heldur áfram næsta
sumar og verður það auglýst nánar
þegar nær dregur. Gestabækur verða
áfram á fjöllum og ef til vill bætast fleiri
fjöll við þau sem fyrir eru.
Almenningsíþróttaverkefni UMFÍ:
Margir rituðu nöfn sín
í gestabækur á fjöllum
Ungmennafélag Íslands vill nota
tækifærið og þakka öllum sem tóku
þátt í verkefninu og vonast til að sjá
sem flesta taka þátt í verkefnum
UMFÍ á næsta ári.