Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2013, Blaðsíða 38

Skinfaxi - 01.11.2013, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Í haust var sett af stað verkefni sem kallast Íþróttaakademía Fjölnis (ÍAF) og er það tækifæri ætlað unglingum sem æfa boltaíþróttir í Fjölni og eru í 9. og 10. bekk. Verkefnið snýst um að bjóða upp á skipu- lagða tækniþjálfun í handbolta, fótbolta og körfubolta ásamt hagnýtri fræðslu í þáttum sem skipta máli, s.s. íþróttasálfræði og nær- ingarfræði. Aðalmarkmið ÍAF er að bjóða upp á þjálfun og fræðslu sem styður við það sem þegar er gert í flokkum félagsins, annað og fleira en gert er nú þegar í deildunum. Þetta verkefni er hugsað fyrir íþróttamenn sem vilja ná langt í íþrótt sinni og eru tilbúin að leggja mikið á sig, til að svo megi verða. Sveinn Þor- geirsson er verkefnastjóri verkefnisins. ÍAF byggir á samstarfi unglingadeilda grunnskóla Grafarvogs og Umf. Fjölnis og felst tækifærið fyrir unglingana í að fá að velja ÍAF sem valgrein í námi sínu í stað hefðbund- inna námsgreina. Þess má geta að verkefnið er unnið að fyrirmynd sem hefur gengið afar vel hjá Haukum í Hafnarfirði, Afreksskóla Hauka, undir stjórn Kristjáns Ómars Kristjáns- sonar. Skráning í verkefnið var mjög góð. Um 36 nemendur eru nú skráðir og koma þeir úr boltagreinunum þremur, af báðum kynjum. Haldinn var kynningarfundur með foreldrum og iðkendum í byrjun annar og verkefnið kynnt. Ein meginforsenda þess að verkefnið gengur eins vel og raun ber vitni, er þeir góðu þjálfarar sem fengust til að starfa hjá félaginu. Til að stýra bóklegu tímunum, þar sem allar greinarnar koma saman, voru fengnir Elmar Hjaltalín, yfirþjálfari fótboltans, og Arnór Ásgeirsson íþróttafræðingur. Um tækniþjálfunina sjá þeir Pétur Sigurðsson (körfubolti), Elmar Hjaltalín (fótbolti) og Guð- mundur Rúnar Guðmundsson (handbolti). Hjá Fjölni vona menn að haustönnin, sem er senn á enda runnin, verði sú fyrsta af mörg- um og mun verkefnið verða í stöðugri þróun næstu misserin. Vonast er til að í framtíðinni verði hægt að bjóða upp á þetta tækifæri fyrir fleiri greinar innan Fjölnis. Forsvars- menn félagsins eru fullvissir um að æfing- arnar og fræðslan muni hjálpa íþrótta- mönnum Fjölnis til að ná fram sínum besta árangri þegar fram í sækir. Íþróttaakademía Fjölnis sett af stað Kirkjubæjarklaustur – Verið hjartanlega velkomin Íþróttamiðstöð, sundlaug, upplýsinga- miðstöð og sýningar.Húsavík 20.–22. júní 2014 Sauðárkróki 1.–3. ágúst 2014

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.