Skinfaxi - 01.11.2013, Síða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Í haust var sett af stað
verkefni sem kallast
Íþróttaakademía Fjölnis
(ÍAF) og er það tækifæri
ætlað unglingum sem
æfa boltaíþróttir í Fjölni
og eru í 9. og 10. bekk.
Verkefnið snýst um að bjóða upp á skipu-
lagða tækniþjálfun í handbolta, fótbolta og
körfubolta ásamt hagnýtri fræðslu í þáttum
sem skipta máli, s.s. íþróttasálfræði og nær-
ingarfræði. Aðalmarkmið ÍAF er að bjóða upp
á þjálfun og fræðslu sem styður við það sem
þegar er gert í flokkum félagsins, annað og
fleira en gert er nú þegar í deildunum. Þetta
verkefni er hugsað fyrir íþróttamenn sem vilja
ná langt í íþrótt sinni og eru tilbúin að leggja
mikið á sig, til að svo megi verða. Sveinn Þor-
geirsson er verkefnastjóri verkefnisins.
ÍAF byggir á samstarfi unglingadeilda
grunnskóla Grafarvogs og Umf. Fjölnis og
felst tækifærið fyrir unglingana í að fá að velja
ÍAF sem valgrein í námi sínu í stað hefðbund-
inna námsgreina. Þess má geta að verkefnið
er unnið að fyrirmynd sem hefur gengið afar
vel hjá Haukum í Hafnarfirði, Afreksskóla
Hauka, undir stjórn Kristjáns Ómars Kristjáns-
sonar. Skráning í verkefnið var mjög góð.
Um 36 nemendur eru nú skráðir og koma
þeir úr boltagreinunum þremur, af báðum
kynjum. Haldinn var kynningarfundur með
foreldrum og iðkendum í byrjun annar og
verkefnið kynnt.
Ein meginforsenda þess að verkefnið
gengur eins vel og raun ber vitni, er þeir
góðu þjálfarar sem fengust til að starfa hjá
félaginu. Til að stýra bóklegu tímunum, þar
sem allar greinarnar koma saman, voru
fengnir Elmar Hjaltalín, yfirþjálfari fótboltans,
og Arnór Ásgeirsson íþróttafræðingur. Um
tækniþjálfunina sjá þeir Pétur Sigurðsson
(körfubolti), Elmar Hjaltalín (fótbolti) og Guð-
mundur Rúnar Guðmundsson (handbolti).
Hjá Fjölni vona menn að haustönnin, sem
er senn á enda runnin, verði sú fyrsta af mörg-
um og mun verkefnið verða í stöðugri þróun
næstu misserin. Vonast er til að í framtíðinni
verði hægt að bjóða upp á þetta tækifæri
fyrir fleiri greinar innan Fjölnis. Forsvars-
menn félagsins eru fullvissir um að æfing-
arnar og fræðslan muni hjálpa íþrótta-
mönnum Fjölnis til að ná fram sínum besta
árangri þegar fram í sækir.
Íþróttaakademía
Fjölnis sett af stað
Kirkjubæjarklaustur
– Verið hjartanlega velkomin
Íþróttamiðstöð, sundlaug, upplýsinga-
miðstöð og sýningar.Húsavík
20.–22. júní 2014
Sauðárkróki
1.–3. ágúst 2014