Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2013, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.11.2013, Blaðsíða 9
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9 Vonumst eftir fjölda umsókna strax við fyrsta umsóknarfrest – Sérðu fram á auknar styrkveitingar á komandi misserum? „Já, vissulega vonum við það. Fjármagn- ið mun aukast hægt og bítandi næstu ár þar til það nær hámarki árið 2020. Við mun- um fara í öflugar kynningar á nýju áætlun- inni strax í upphafi ársins 2014 og vonumst því til þess að fá fjölda umsókna strax við fyrsta umsóknarfrest. Við vonumst til þess að halda í gömlu styrkþegana og hjálpum þeim inn í nýja áætlun og einnig verður unnið að því að fá nýja umsækjendur og þar með fjölgar umsóknunum. Það verður áskorun og við tökumst bjartsýn á við hana.“ Spennandi fyrir krakka að fara sem sjálfboða- liði til Evrópu – Er ekki víða að finna tækifæri fyrir ungt fólk og um leið mikla möguleika? „Jú, áætlunin býður upp á mikið af tæki- færum fyrir ungt fólk. Það sem mér finnst einna mest spennandi fyrir krakka er að fara sem sjálfboðaliðar til Evrópu. Þar geta þau verið allt upp í 12 mánuði og unnið að ýmiss konar verkefnum. Allir, sem hafa gert þetta, segja að það hafi opnað fyrir þeim algjörlega nýjan heim. Þau hafa góð- an stuðning en eru engu að síður að fást við ný viðfangsefni á nýjum stöðum og takast á við sjálf sig. Eftir þessa reynslu koma þau heim miklu sterkari og með víðari sjóndeildarhring og segja að þau muni lifa á þessu alla ævi. Það er oft þannig með krakka að þau eru ekki alveg viss um hvað við eigi að taka að loknum menntaskóla en þau langar til að upplifa eitthvað nýtt og spennandi. Þá skortir hins vegar pen- inga. Í þessum verkefnum þurfa þau í mesta lagi að leggja út 10% af ferðakostn- aði, annað fá þau greitt. Þeim er séð fyrir húsnæði og fæði eða þau fá matarpeninga og smávegis vasapeninga. Þeim er séð fyrir öllum tryggingum og þau eru með frían lækniskostnað að öllu leyti, svo að þetta er öruggasta umhverfi sem ungt fólk á völ á. Um leið öðlast krakkarnir gífur- lega reynslu sem þau búa að alla ævi. Því miður höfum við ekki fengið nærri nógu mikið af ungu fólki og það er kannski vegna þess að unga fólkið okkar er alltaf búið að skuldbinda sig með ýmsum hætti, það er eiginlega vandamálið. Annars eru bara spennandi tímar fram undan, fullt af tækifærum með auknu fjármagni. Ungt fólk hefur úr mörgu að velja, það er ekki spurning,“ sagði Anna R. Möller, forstöðu- maður Landsskrifstofu Evrópu unga fólksins. N ý kynslóð Evrópuáætlana var kynnt á þrefaldri opnunarráðstefnu á Hótel Sögu 22. nóvember sl. Þar var einnig Erasmus+ áætlunin opnuð formlega og kynnt á Íslandi í fyrsta sinn. Síðdegis sama dag var haldin uppskeruhátíð allra Evrópu- áætlana sem Íslendingar hafa tekið þátt í, í 20 ár. Erasmus+ Árið 2014 tekur gildi ný mennta-, íþrótta- og æskulýðsáætlun á vegum Evrópusam- bandsins. Nefnist hún ,,Erasmus +“. Íslend- ingar hafa aðgang að þessari áætlun í gegnum EES-samninginn. Þetta er í fyrsta skipti sem íþrótta er getið í sérstakri áætl- un hjá ESB. Erasmus+ opnar því á tölu- verða möguleika fyrir íslenska íþróttahreyf- ingu til að fá styrki í margvísleg verkefni. Einkum er horft til verkefna á sviði lýð- heilsu, grasrótarverkefna í íþróttum en einnig er sjónum beint að verkefnum til að koma í veg yfir lyfjamisnotkun og ólög- lega veðmálastarfsemi tengda íþróttum. Hægt er að sækja um frá 80 milljónum til 320 milljóna í mismunandi verkefni. Samstarfsverkefni og íþróttaviðburðir Að sögn Andrésar Péturssonar hjá Rannís, sem hefur tekið að sér að vekja athygli íþróttahreyfingarinnar á þessu áhugaverða tækifæri, er ýmislegt sem íslensk íþróttahreyfing getur sótt um. „Verkefnum er skipt í tvo flokka; Sam- starfsverkefni og svo íþróttaviðburði. Í fyrri flokknum er lögð mikil áhersla á gras- rótarverkefni en í síðari flokknum er áætl- unin að styrkja viðburði sem auka áhuga almennings á hreyfingu. Einnig er mögu- leiki að sækja um styrk til að halda sér- staka Evrópska viku íþrótta. Svo má ekki gleyma því að Evrópusambandið legg- ur mikla áherslu á styrki til þeirra aðila sem af einhverjum ástæðum eiga undir högg að sækja, til dæmis fatlaðir ein- staklingar. En öll verkefni verða að vera unnin í samvinnu við önnur Evrópu- lönd,“ bætir hann við. Allir geta sótt um Andrés bendir á að nánast allir þeir sem tengjast íþróttum geti sótt um. „Þetta geta verið stóru hreyfingarnar ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd fyrir einstakar íþróttagreinar, héraðssambönd en einnig einstök íþróttafélög. Þar að auki geta ein- stök sveitarfélög sótt um styrki í sam- vinnu við íþróttasamtök,“ segir hann. Hann hvetur forráðamenn íþróttafélaga til að leggja nú hausinn í bleyti til að koma upp með spennandi hugmyndir í þessu sambandi. „Ég hef varpað því fram að Íslendingar ættu að endurvekja Samnorrænu sundkeppnina sem var mjög vinsæl á Íslandi í mörg ár. Það þarf reyndar að fá fleiri þjóðir til samstarfs því að lágmarksfjöldi í svona íþróttavið- burði er tólf þjóðir.“ Nýtum tækifærin Erasmus+ áætlunin gildir í sjö ár, frá 2014 til 2020. Fyrstu umsóknarfrestir eru í mars 2014 en einnig í apríl fyrir stærri verkefni. „Við hjá Rannís höfum mikinn áhuga á því að Íslendingar nýti sér þessi tæki- færi strax frá upphafi. Ástæðan er sú að þetta er ný áætlun og er ekki stór hluti af Erasmus+. Því getur verið að stærri þjóðirnar spái ekki mikið í þennan hluta áætlunarinnar strax og það gefur okkur tækifæri til að fá stærri bita af kökunni en ella. Það skapar líka tengsl fyrir Íslend- inga strax frá upphafi.“ Andrés segir að Rannís hafi þegar kynnt forsvarsmönnum ÍSÍ og UMFÍ þessa möguleika. Mikill áhugi sé hjá þessum samböndum að kynna sér þessi mál nánar. Stefnt sé að því að halda opinn fund um þau eftir áramótin. „Íslendingar hafa náð mjög góðum árangri í rannsóknar- og þróunaráætl- unum ESB og mennta- og æskulýðs- sjóðunum. Við hjá Rannís sjáum því ekki neina meinbugi á því að við getum náð sama árangri með þennan nýja íþrótta- sjóð,“ segir Andrés Pétursson, sérfræð- ingur hjá Rannís. Andrés Pétursson hjá Rannís: Ýmislegt sem íslensk íþrótta- hreyfing getur sótt um Andrés Pétursson, sérfræðingur hjá Rannís.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.