Skinfaxi - 01.11.2013, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Göngum um Ísland
Fjölskyldan á fjallið
Haustönnin 2013
tókst með eindæm-
um vel og teljum við,
sem stöndum að
búðunum, að starf
okkar sé alltaf að
þróast og verða betra og betra með hverri
vikunni sem líður. Aðsóknin var mjög góð
og við höfum tekið eftir því að nemendur
þrýsta æ meira á skóla sína um að fá að
koma í Ungmenna- og tómstundabúðir-
nar, sem er mjög gott. Orðsporið dreifist
greinilega hratt milli ungmenna og fleiri
og fleiri vita af búðunum og út á hvað
þær ganga.
Menning, hreyfing, útvist
og félagsfærni
Námskeiðin á Laugum einkennast af því
að vera óhefðbundin og fjölbreytileg
þannig að allir ættu að finna sig í einu eða
fleiru af þeim námskeiðum sem boðið er
upp á. Öll eiga þau það sameiginlegt að
unnið er markvisst á einhvern hátt að eink-
unnarorðum búðanna, sem eru: menning,
hreyfing, útvist og félagsfærni.
Út fyrir þægindarammann
Við reynum af fremsta megni að ná því
besta fram í öllum og að láta þeim þátttak-
endum sem til okkar koma líða sem best á
meðan á dvöl þeirra stendur. Ekki er samt
þar með sagt að allt sem þeir gera hér sé
þeim auðvelt. Oft þurfa þeir að koma sér
út fyrir þægindaramma sinn í leið sinni að
því að líða vel í því sem þeir gera.
Kynnast hópfélögum
sínum á nýjan hátt
Á Laugum er reynt að skilja þátttakend-
ur frá áreiti því og álagi sem þeir eru undir
dags daglega. Við leitumst við að gefa þeim
alveg nýja upplifun og tækifæri til að kynn-
ast hópfélögum sínum á nýjan hátt. Oft
verður mikill vinskapur krakkanna á milli
sem nær út fyrir veggi Lauga og brúar bilið
á milli skóla og jafnvel landshluta. Hér fer
fram óeigingjarnt og metnaðarfullt starf
í þágu krakkanna sem hingað koma, svo
að þau fari heim sterkari en þau komu,
reynslunni ríkari og með góðar minningar
frá frábærri viku.
Jörgen Nilsson
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum:
Krakkarnir fara oft í skemmtilega
leiki og þá er glatt á hjalla.
Nemendur úr Öldutúnsskóla og Vogaskóla
í ungmennabúðunum í haust sem leið.