Skinfaxi - 01.11.2013, Síða 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
S
jálfboðaliðastarf felur í sér sam-
stöðu og gagnkvæma tillitssemi
sem finna má hvar sem er í heim-
inum, á öllum tungumála- og
menningarsvæðum. Sjálfboða-
liðar öðlast lífsfyllingu við að leggja fram
starfskraft sinn endurgjaldslaust. Störf
þeirra skipta miklu máli og eru dæmi um
þann dugnað, það verðuga og mikilvæga
hlutverk sem sjálfboðaliðarnir sinna í
samfélögum manna.
Fjölþætt samfélagsleg þjónusta
Hér á landi má finna sjálfboðaliða að
störfum á öllum stigum samfélagsins, í
hinum ýmsu sjálfboðaliðasamtökum og
öðrum félögum. Allir eiga sjálboðaliðarnir
það sameiginlegt að þeir veita fjölþætta
samfélagslega þjónustu og berjast fyrir
samfélagslegum úrbótum. Má þar t.d.
nefna íþrótta- og ungmennafélagshreyf-
inguna, Rauða krossinn, björgunarsveit-
irnar, skátana, kvenfélögin, kórana, áhuga-
mannaleikfélögin og hin ýmsu góðgerðar-
samtök þar sem þúsundir manna gefa
störf sín á hverjum degi í þágu félags-
starfsins og samfélagsins.
Þjóðhagslegur ávinningur
Sjálfboðaliðasamtök eins og Ungmenna-
félag Íslands eru hluti af þriðja geiranum
en líta ber á hann sem viðbót við einka-
geirann og opinbera geirann. Alþjóðlegar
rannsóknir sýna að eftir því sem sjálfboða-
liðastarf í frjálsum félagasamtökum er öfl-
ugra, þeim mun traustari eru innviðir sam-
félagsins. Þjóðhagslegur ávinningur af
starfi sjálfboðaliða er því mikill, um það
eru allir sammála. Þeim fjármunum sem
hið opinbera, sveitarfélög, fyrirtæki og
aðrir hópar eða einstaklingar verja í sjálf-
boðaliðasamtök er því vel varið. Það er
einnig staðreynd að án fjárframlaga frá
þessum aðilum gætu sjálfboðaliðasam-
tökin ekki haldið úti eins öflugri starfsemi
og raun ber vitni.
Mikill sparnaður
Flest félög af öllu tagi treysta að miklu
leyti á starf sjálfboðaliða og væri starf
þeirra í lamasessi ef ekki kæmi til óeigin-
gjarnt starf þeirra sem gefa vinnu sína.
Það þarf varla að taka fram hversu miklir
fjármunir sparast á ári hverju vegna sjálf-
boðastarfa – væntanlega hleypur það á
milljörðum.
Bætt lýðheilsa og forvarnastarf
Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar
er bætt lýðheilsa og forvarnastarf meðal
forgangsverkefna og samfélagslegt mikil-
vægi frjálsra félagasamtaka og sjálfboða-
liðastarf innan þeirra viðurkennt. Í sáttmál-
anum er lýst yfir vilja til þess að greiða götu
slíkrar starfsemi og mikilvægi félagasam-
taka til að vinna að því markmiði að efla
og bæta íslenskt samfélag. Okkur, sem
vinnum í þriðja geiranum, var það mikið
fagnaðarefni að lesa þessar yfirlýsingar í
stjórnarsáttmálanum. Það er grasrótinni
mikilvægt að upplifa samfélagslega mikil-
vægt og skilgreint hlutverk sitt með þeim
hætti sem í honum er lýst. Nú bíðum við
spennt eftir því hvort ríkisstjórn og stjórn-
völd fylgi eftir þessum góðu fyrirætlunum,
ekki bara með orðum heldur einnig í verki.
Styrkjum samtök sjálfboðaliða
Til að starfsemi sjálfboðaliðasamtaka
geti haldið áfram að blómstra þurfum við
að taka höndum saman og ryðja úr vegi
hindrunum sem standa í vegi fyrir auknu
sjálfboðaliðastarfi. Við þurfum að styrkja
samtök sjálfboðaliða og auka skilning á
gildi og mikilvægi sjálfboðaliðastarfs í
þágu þjóðarinnar. Síðast en ekki síst þurf-
um við að þakka sjálfboðaliðum fyrir vel
unnin störf á sýnilegan hátt.
Vinnan skiptir máli
Ungmennafélag Íslands fagnaði alþjóð-
legum degi sjálfboðaliðans og ungmenna-
félagar um allt land halda áfram að vinna
sitt göfuga starf í þágu samborgara sinna
þennan dag sem aðra daga, vitandi að
það skiptir máli og er samfélagi okkar
ómetanlegt.
Ávinningurinn er okkar
Á alþjóðlegum degi sjálfboðaliðans voru
stjórnvöld og aðrir aðilar hvött til að gleyma
ekki sjálfboðaliðasamtökunum og styrkja
þau með öflugum hætti. Ávinningurinn er
okkar allra.
Til hamingju með daginn, allir sjálfboða-
liðar á Íslandi!
Helga G. Guðjónsdóttir
Alþjóðlegur
dagur sjálfboðaliðans
5. desember
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.