Skinfaxi - 01.11.2013, Side 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Alls fóru 24 keppendur frá
HHF á Silfurleika ÍR. Mikil
stemning var í hópnum og
skemmtu bæði keppendur
og foreldrar sér vel. Níu kepp-
endur tóku þátt í fjölþraut
barna sem var ætluð fyrir 10 ára og yngri.
Þjálfari var Davíð Þorgils Valgeirsson. Hall-
dór Jökull Ólafsson fékk silfur í kúluvarpi 11
ára pilta þegar hann kastaði 9,74 m. Saga
Ólafsdóttir lenti í 2.-3. sæti í hástökki 13
ára stúlkna er hún stökk yfir 1,45 m. Regína
Þórey Einarsdóttir fékk brons í 60 m hlaupi
13 ára stúlkna og hljóp hún á 8,68 sek. Þá fékk
Liv Bragadóttir fékk brons í 600 m hlaupi 12
ára stúlkna er hún hljóp á 1:58,79 mín.
Átta keppendur frá UÍA
fóru á mótið ásamt þjálfar-
anum Lovísu Hreinsdóttur.
Allir stóðu sig vel og bættu
sinn persónulega árangur í
a.m.k einni grein og einnig unnu þau til tíu
verðlauna allt í allt. Steingrímur Örn Þor-
steinsson í 13 ára flokki varð í fyrsta sæti í
200 m hlaupi á 27,31 sek. Hann sigraði í þrí-
stökki, stökk 10,40 m, varð annar í 60 m
hlaupi á 8,20 sek. og þriðji á hástökki þegar
hann fór yfir 1,57 m. Að lokum var Steingrím-
ur Örn fimmti í 60 m grindahlaupi á 11,18
sek. Daði Þór Jóhannsson í 13 ára flokki
hreppti silfur í 600 m hlaupi á 1,50,17 mín.
Hann náði í brons í 200 m hlaupi, hljóp á
27,66 sek. Daði Þór stökk 1,54 metra í há-
stökki og lenti í fimmta sæti og hann stökk
síðan 9,88 m í þrístökki og hafnaði í fimmta
sæti. Daði Þór lenti í sjötta sæti í 60 m hlaupi
og 60 m grindahlaupi. Hann hljóp 60 metr-
ana á 8,61 sek. og 60 metra grindahlaupið á
11,40 sek. Almar Aðalsteinsson keppti í 11
ára flokki og varð í öðru sæti í 600 m hlaupi á
1,56,97 mín. Hann varð síðan í sjötta sæti í 60
m hlaupi á 9,44 sek. Daði Fannar Sverrisson
varð annar í kúluvarpi í 17 ára flokki með kast
upp á 13,38 metra. Atli Pálmar Snorrason
varð í þriðja sæti í 800 m hlaupi í flokki 15
ára á 2,20,38 mín. Hann varð síðan sjötti í
þrístökki, stökk 10,48 m. Helga Jóna Svans-
dóttir keppti í fimm greinum. Hún varð í
þriðja sæti í þrístökki, stökk 10,19 m, fjórða í
60 m hlaupi á 8,57 sek. og einnig í fjórða sæti
í 60 m grindahlaupi á 9,82 sek. Hún varð í
fjórða sæti í hástökki, fór yfir 1,40 m. Loks
varð hún sjötta í 200 m hlaupi á 28,52 sek.
Hrefna Ösp Heimisdóttir keppti í 15 ára
flokki. Hún varð fjórða í 200 m hlaupi á 28,18
sek., sjötta í þrístökki, stökk 9,54 m, og loks
varð hún í sjöunda sæti í 60 m hlaupi á 8,66
sek. Mikael Máni Freysson, 15 ára, tók einnig
þátt og þrátt fyrir að vera meiddur bætti
hann tíma sinn í 60 m hlaupi og var við sitt
besta í 200 m hlaupi. Hann hljóp 60 metrana
á 8,14 sek. og 200 metrana á 26,43 sek.
Fimm aldursflokkamet voru slegin á 18. Silfurleikum ÍR
í frjálsum íþróttum sem fóru
fram í Laugardalshöll í þann 17.
nóvember. Þá náðist eitt lág-
mark fyrir HM-unglinga og mörg
hundruð persónuleg met féllu í
góðri stemmningu í troðfullri Laugardals-
höllinni. Keppendur á leikunum voru hátt í
átta hundruð, víðs vegar að af landinu, og
hafa aldrei verið fleiri.
Þórdís Eva Steinsdóttir, FH, bætti aldurs-
flokkametið í þrístökki stúlkna 13 ára þegar
hún stökk 11,28 m. Guðbjörg Jóna Bjarna-
dóttir, ÍR, bætti aldursflokkametið í 200 m
hlaupi 12 ára stúlkna þegar hún hljóp á 27,17
sek. Kolbeinn Tómas Jónsson, Aftureldingu,
bætti aldursflokksmetið í kúluvarpi 13 ára
pilta og varpaði kúlunni 15,05 m. Fannar
Yngvi Rafnarsson, Þór í Þorlákshöfn, bætti
aldursflokkametið í þrístökki 15 ára pilta með
12,98 m stökki og félagi hans, Styrmir Dan
Hansen, líka í Þór, bætti aldursflokksmetið í
sömu grein í flokki 14 ára pilta með 12,66 m
stökki. Þá náði Aníta Hinriksdóttir lágmarki
fyrir heimsmeistaramót unglinga 19 ára og
yngri sem fram fer í Oregon í júlí þegar hún
hljóp 800 metrana á 2:05,91 mínútu.
Krakkar í frjálsíþrótta-
deild Selfoss stóðu sig
mjög vel á mótinu og
bættu flest hver eigin árang-
ur sinn. Þegar upp var staðið
unnu þau til 15 verðlauna sem er mjög gott
á svo stóru móti. Kolbeinn Loftsson vann
gullverðlaun í hástökki með 1,38 m og í þrí-
stökki með 9,33 m og varð þriðji í 60 m hlaupi
á 9,08 sek. og í kúluvarpi (2 kg) með 9,40 m.
Árangur hans í þrístökkinu er HSK-met en
fyrra metið átti Styrmir Dan Steinunnarson,
Þór. Hákon Birkir Grétarsson vann gullverð-
laun í kúluvarpi (2 kg) með 10,03 m og varð
annar í hástökki með 1,33 m. Hildur Helga
Einarsdóttir varð önnur í kúluvarpi (2 kg) með
8,39 m. Pétur Már Sigurðsson vann gullverð-
laun í hástökki með 1,63 m, varð annar í kúlu-
varpi (3 kg) með 12,13 m og þriðji í þrístökki
með 10,27 m.
Keppendur frá Ung-
mennafélagi Akureyrar
stóðu sig einnig með
prýði. Kolbeinn Fannar
Gíslason sigraði 60 m hlaupið í flokki 12 ára
pilta á tímanum 8,47 sek. Ragúel Pino Alex-
andersson, sem einnig keppti í flokki 12 ára
pilta, sigraði í eftirfarandi greinum: 600 m
hlaupi á tímanum 1:45,09 mín., 60 m grin-
dahlaupi á tímanum 10,65 sek. og hástökki
með stökk upp á 1,51m. Þá varð hann í öðru
sæti í þrístökki með stökki upp á 8,97 m og
í kúluvarpi með kasti upp á 8,94 m. Ragúel
varð í 3 sæti í 60 m hlaupi á tímanum 8,53 sek.
Sunneva Kristjánsdóttir, sem keppti í flokki
11 ára stúlkna, varð í öðru sæti í hástökki
þegar hún vippaði sér yfir 1,33 m. Rún Árna-
dóttir, sem keppti í flokki 15 ára stúlkna, sigr-
aði í hástökki þegar hún flaug yfir 1,55 m
og varð í 3. sæti í kúluvarpi með kasti upp
á 11,66 m. Sesselja Dís Hreiðarsdóttir, sem
keppti í flokki 14 ára, varð í 2. sæti í kúluvarpi
með kasti upp á 9,97 m. Ásgerður Jana
Ágústsdóttir, sem keppti í flokki 16–17 ára
stúlkna, sigraði í hástökki þegar hún vippaði
sér yfir 1,63 m og kúluvarpi með kast upp á
13,87 m. Þá varð hún í 2. sæti í 60 m grinda-
hlaupi á tímanum 9,44 sek. og í þriðja sæti í
60 m hlaupi á tímanum 8,41sek.
Silfurleikar ÍR í frjálsum íþróttum:
Góður árangur og frábær þátttaka
Steingrímur Örn
Þorsteinsson, UÍA, 13
ára, frá Ketilsstöðum
í Hjaltastaðaþinghá,
sigraði í 200 metra
hlaupi. Hinrik Snær
Steinsson, FH, (til
vinstri) varð í 2. sæti
og Daði Þór Jóhanns-
son, frá Fáskrúðsfirði
(til hægri), varð í 3.
sæti.
Þrístökk 15 ára pilta:
Fannar Yngvi Rafnar-
son, Umf. Þór, í 1. sæti
á nýju Íslandsmeti,
12,98 m, 2. sæti (til
vinstri) Guðmundur
Smári Daníelsson,
UMSE, 11,76 m, og
3. sæti (til hægri)
Guðmundur Karl
Úlfarsson, Ármanni,
11,39 m.
Hástökk stúlkur 11ára:
1. sæti Solveig Þóra
Þorsteinsdóttir, Umf.
Þór, 1,43 m (HSK-met),
2. sæti (til vinstri)
Sunneva Kristjáns-
dóttir, UFA, 1,33 m, og
3. sæti (til hægri) Elín
Helena Karlsdóttir,
Breiðabliki, 1,33 m.