Skinfaxi - 01.11.2013, Síða 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Heilög jólin halda ber
á hamingjunnar sviði.
Árs og friðar óska þér
og öllu þínu liði.
Þessa vísu orti Helgi Zimsen fyrir fáein-
um misserum, en jólavísur eru þema þátt-
arins að þessu sinni.
Margir hagyrðingar yrkja einmitt vísur
um og fyrir jólin til að koma sjálfum sér
eða öðrum í jólaskap eða jafnvel til að
skrifa á jólakort til ættingja og vina. Eitt
af þeim félögum sem hefur í heiðri hefð-
bundna vísnagerð er Kvæðamannafélagið
Iðunn. Á hverju ári, rétt fyrir jól, sendir
félagið út fréttabréf sitt og oftar en ekki
fylgja með nokkrar vísur eftir Iðunnar-
félaga.
Fyrst er hér ferskeytt staka eftir Bjarg-
eyju Arnórsdóttur, sem orti svo:
Þó að taki vetur völd
vonir mun ei buga,
jólaföstu kyrrðin köld
kveikir ljós í huga.
Ormur heitinn Ólafsson, fyrrverandi
formaður Iðunnar, orti jólavísu árið 1980,
sem margir geta eflaust tekið undir:
Vísnaþáttur
Höskuldur Búi Jónsson
Á hátíð ljóss er hækkar sól
hygg ég allir finni
að okkar verða æskujól
ofarlega í minni.
Sigurður dýralæknir Sigurðarson orti
þessa ferskeytlu:
Veiti jól um veröld enn
von og trú og gleði
og breyti þeim í betri menn,
sem breyskir eru í geði.
Bjarni Valtýr Guðjónsson, fyrrverandi
gjaldkeri Iðunnar, orti þessa skemmtilegu
langhendu:
Dagarnir úr djúpi rísa
daprast myrkratökin hljótt.
Bráðum jólaljósin lýsa,
lengist dagur, hverfur nótt.
Loks er hér falleg vísa eftir kvæða-
konuna Ásu Ketilsdóttur:
Verma sál í vetrarsnæ
og vekja gleði mína.
Jólaljós um borg og bæ
blika, glitra, skína.
En við endum þó á föstum liðum eins
og venjulega. Í seinasta þætti setti ég fram
fyrriparta og óskaði eftir botnum. Tveir
góðir botnar bárust, en það var Jóhannes
Sigmundsson, fyrrverandi formaður HSK
og núverandi heiðursformaður frá Syðra-
Langholti, sem botnaði svo:
Styrkjum vöðva, virkjum heila
væn er glíman hverja stund.
Þarflaust er um það að deila:
Þetta allra kætir lund.
Niður sólin sekkur hratt
sýnir kjólinn rauða.
Hennar ból er hafið glatt,
hlíf og skjól gegn dauða.
Vel leyst hjá Jóhannesi. Takið eftir inn-
ríminu í seinni vísunni, þannig að úr
verður ljómandi góð hringhenda.
Hér eru svo fyrripartar til að glíma við
fyrir næsta þátt:
Enn blæs vetur ósköp kaldann
ís og hret að landi.
-
Sólin upp rís bljúg og blíð
bræðir vetrarhjarta
Ég hvet sem flesta til að botna þessa
fyrriparta og senda þættinum, auk frum-
ortra vísna. Hægt er að senda efni á Skin-
faxa, Sigtúni 42, 105 Reykjavík eða með
tölvupósti á hoskibui@gmail.com.
Kvæðakveðja
Höskuldur Búi Jónsson
Fjórða Landsmót UMFÍ 50+ verður
haldið á Húsavík dagana 20.–22. júní
næsta sumar. Af því tilefni var haldin
kynning á boccia 19. nóvember sl. í
íþróttahúsinu á Húsavík Farið var yfir
undirstöðuatriði og reglur í þessari
íþrótt sem nýtur æ meiri vinsælda. Góð
mæting var á kynninguna og voru þátt-
takendur frá Húsavík og nærliggjandi
sveitum.
Eldri ungmennafélagar og FÁÍA, félag
áhugafólks um íþróttir aldraðra, bjóða
ungmennafélögum um land allt að fá
til sín námskeið eða kynningu í hinum
ýmsum greinum eins og boccia, pútti,
dansi og ringó, og í þeim greinum sem
boðið er upp á á Landsmótum UMFÍ
50+. Áhugasömum er bent á að hafa
samband við Sigurð Guðmundsson á
skrifstofu UMFÍ.
Boðið upp á kynn-
ingu í keppnis-
greinum á Lands-
móti UMFÍ 50+