Skinfaxi - 01.11.2013, Qupperneq 36
36 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Velkomin á 17. UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ
á Sauðárkróki verslunarmannahelgina
1.-3. ágúst 2014
Skagfirðingar bjóða ykkur velkomin á skemmtilegasta frjálsíþróttavöll landsins
þaðan sem aðeins er steinsnar í knattspyrnuvelli, íþróttahús, sundlaug,
golfvöll, reiðhöll og aðstöðu fyrir allar aðrar keppnisgreinar,
auk þess sem tjaldsvæði eru í stuttu göngufæri.
www.visitskagafjordur.is
Það verður kátt á Króknum
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
P
étur Eyþórsson, Glímufélaginu
Ármanni, og Marín Laufey Davíðs-
dóttir, Héraðssambandinu Skarphéðni,
voru valin glímufólk ársins 2013, en stjórn
Glímusambands Íslands ákvað þetta á
stjórnarfundi 27. nóvember síðastliðinn.
Pétur er 35 ára gamall og hefur stundað
glímu í yfir tuttugu ár. Pétur varð Evrópu-
meistari í glímu í -81 kg flokki, sigraði tvö-
falt í Bikarglímu Íslands og svo vann svo
Grettisbeltið í áttunda sinn sem gerir
hann að einum sigursælasta glímukappa
Íslands frá upphafi. Pétur hefur ótvírætt
verið fremsti glímumaður Íslands undan-
farin ár. Hann glímir vel og er góð fyrir-
mynd jafnt innan vallar sem utan.
Marín Laufey er 18 ára gömul og átti
frábæru gengi að fagna á glímuvellinum
árið 2013. Marín varð Evrópumeistari í
glímu í -90 kg flokki, sigraði tvöfalt í Bikar-
glímu Íslands, varð tvöfaldur Íslandsmeist-
ari og sigraði í Íslandsglímunni og hlaut
þar með Freyjumenið í þriðja sinn. Marín
er fyrirmyndaríþróttakona, jafnt innan
vallar sem utan.
Pétur og Marín Laufey glímufólk ársins
GLÍMA: