Skinfaxi - 01.11.2013, Page 44
44 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Reykjavík
Arkþing ehf., Bolholti 8, 2. hæð
Ásbjörn Ólafsson ehf.,
Köllunarklettsvegi 6
Bílasmiðurinn hf., Bíldshöfða 16
Blaðamannafélag Íslands,
Síðumúla 23, 3. hæð
Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17
Gáski ehf., Bolholti 8
Gull- og silfursmiðjan ehf.,
Álfabakka 14b
Heilsubrunnurinn ehf., Kirkjuteigi 21
Henson Sports Europe á Íslandi ehf.,
Brautarholti 24
Höfðakaffi ehf., Vagnhöfða 11
Iceland Seafood ehf.,
Köllunarklettsvegi 2
Kjaran ehf., Síðumúla 12–14
Landsnet hf., Gylfaflöt 9
Löndun ehf., Kjalvogi 21
Rafstilling ehf., Dugguvogi 23
Seljakirkja, Hagaseli 40
Stólpi ehf., Klettagörðum 5
Talnakönnun hf., Borgartún 23
Teiknistofan Arkitektar ehf.,
Brautarholti 6
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.,
Vesturhlíð 2
Verslunin Fríða frænka, Vesturgata 3
Ögurvík hf., Týsgötu 1
Kópavogur
Landmótun sf., Hamraborg 12
Namo ehf., Smiðjuvegi 74, gul gata
Rafmiðlun hf., Ögurhvarfi 8
Söluturninn Smári, Dalsvegi 16c
Garðabær
Garðabær, Garðatorgi 7
Raftækniþjónusta Trausta ehf.,
Lyngási 14
Hafnarfjörður
PON - Pétur O. Nikulásson ehf.,
Melabraut 23
Verkalýðsfélagið Hlíf, Reykjavíkurvegi 64
Reykjanesbær
Reykjanesbær, Tjarnargötu 12
Starfsmannafélag Suðurnesja,
Krossmóum 4
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur,
Krossmóa 4
Verkfræðistofa Suðurnesja hf.,
Víkurbraut 13
Verslunarmannafélag Suðurnesja,
Vatnsnesvegi 14
Grindavík
Ungmennafélag Grindavíkur,
Mánagerði 2
Akranes
Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarson,
Dalbraut 6
Íþróttabandalag Akraness,
Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum
Runólfur Hallfreðsson ehf.,
Álmskógum 1
Straumnes ehf., Krókatúni 22–24
Hrönn Jónsdóttir:
Starfið í hreyfingunni
meira en ég gerði mér
grein fyrir
„Ég hef verið félagi í ungmennafélagshreyf-
ingunni svo lengi sem ég man eftir mér. Í Ung-
mennafélaginu Dagrenningi í Borgarfirði
byrjaði ég mjög ung að aldri eða í yngri deild
sem þar er starfandi. Ég man eftir því þegar
ég tók þátt í þrettándagleði. Eftir það má
segja að ekki hafi verið aftur snúið og ég hef
starfað í ungmennafélagi allar götur síðan.
Síðan varð ég framkvæmdastjóri UMSB 2010
allt þar til í haust sem leið. Þar öðlaðist ég góða
reynslu sem kemur mér að góðum notum í
framtíðinni,“ sagði Hrönn Jónsdóttir úr Borgar-
firði sem er meðstjórnandi í nýrri stjórn Ung-
mennafélags Íslands.
Hrönn stundaði íþróttir lengi og þá aðal-
lega frjálsar íþróttir. Einnig lagði hún á tíma-
bili stund á körfubolta og sund. Eins og hún
kemst sjálf að orði var hún nánast í öllu sem
bauðst.
„Ég hlakka mikið til að vinna í nýju stjórn-
inni. Verkefnin eru næg og ég get ekki séð
annað en að spennandi tímar séu fram undan.
Með stjórnarsetunni gefst manni tækifæri til
að kynnast starfseminni betur og því sem er
að gerast innan hreyfingarinnar. Starfið er
svo umfangsmikið og í raun miklu meira en
maður gerði sér kannski grein fyrir áður. Það
hefur lengstum ekki verið takmark hjá mér
að gefa kost á mér í stjórn UMFÍ en síðasta
árið fór ég að velta þessum möguleika fyrir
mér. Áhuginn magnaðist, ég lét svo að lokum
slag standa og bauð mig fram. Þessi hreyfing
hefur upp á ýmislegt að bjóða, meira en
margan grunar. Þetta á eflaust eftir að verða
mikil og góð reynsla fyrir mig, að fá þetta
tækifæri til að vinna með þeim reynslubolt-
um sem eru fyrir í stjórninni,“ sagði Hrönn
Jónsdóttir í samtalinu við Skinfaxa.
Nýliðar í stjórn Ungmennafélags Íslands:
Kristinn Óskar Grétuson:
Möguleikar í öllum
hornum
„Ég var afskaplega ánægður þegar ég náði
kjöri til stjórnar á Sambandsþinginu í Stykkis-
hólmi. Ég kynntist mörgu góðu fólki á þing-
inu en mannauður í hreyfingunni er mikill.
Það eru gríðarlega miklir möguleikar í starf-
inu og því lít ég björtum augum fram á veg-
inn,“ sagði Kristinn Óskar Grétuson sem situr
í varastjórn UMFÍ.
Kristinn Óskar sat í stjórn Kraftlyftingasam-
bands Íslands 2004. Hann sigraði í keppninni
Sterkasti maður Íslands á árunum 2005–2008.
Þá tók hann þátt í Evrópumótum og nokkr-
um Hálandaleikum. Í keppninni sterkasti mað-
ur Íslands 2009 varð Kristinn Óskar fyrir því
óhappi að meiðast en hafnaði engu að síður
í öðru sæti. Hann hefur ekkert keppt eftir það
en árið 2011 var hann kosinn í stjórn Ung-
mennafélags Stokkseyrar og er það fyrsta að-
koma hans að ungmennafélagshreyfingunni.
Hann hefur unnið að góðgerðamálum, skipu-
lagði m.a. stórtónleika á Nasa auk margra ann-
arra viðburða. Hann hefur einnig unnið í for-
varnamálum innan sveitarfélagsins Árborgar.
„Ég lít á stjórnarsetuna í UMFÍ sem mikið
tækifæri til að koma góðum málum til leiðar.
Það eru spennandi tímar fram undan í hreyf-
ingunni og óendanlegir möguleikar í öllum
hornum í þessari fjöldahreyfingu,“ sagði
Kristinn Óskar Grétuson.