Skinfaxi - 01.11.2013, Síða 46
46 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Borgarnes
Matstofan ehf., Kjartansgötu 22
Samtök sveitarfélaga Vesturlands,
Bjarnarbraut 8
Stykkishólmur
Þ.B. Borg - steypustöð ehf.,
Silfurgötu 36
Hellissandur
KG Fiskverkun ehf., Melnesi 1
Kristinn J. Friðþjófsson ehf., Háarifi 5, Rifi
Ísafjörður
Útgerðarfélagið Kjölur ehf., Urðarvegi 37
Ævintýradalurinn ehf., Heydal
Patreksfjörður
Oddi hf., Eyrargötu 1
Tálknafjörður
Gistiheimilið Bjarmalandi ehf.,
Bugatúni 8
Tálknafjarðarhreppur, Miðtúni 1
Þórsberg ehf., Strandgötu 25
Norðurfjörður
Hótel Djúpavík ehf., Djúpuvík
Hvammstangi
Húnaþing vestra, Hvammstangabraut 5
Blönduós
Glaðheimar - Hótel Blönduós,
Aðalgötu 6
Stéttarfélagið Samstaða, Þverbraut 1
Sauðárkrókur
Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1
K-Tak ehf., Borgartúni 1
Tannlækningast Páls Ragnars ehf.,
Sæmundargötu 3a
Verslun Haraldar Júlíussonar,
Aðalgötu 22
Vinnuvélar Guðmundar/Skúla sf.,
Borgarröst 4
Varmahlíð
Akrahreppur Skagafirði, Miklabæ
Akureyri
Hnjúkar ehf., Kaupvangur Mýrarvegi
Ísgát ehf., Laufásgötu 9
Orlofsbyggðin Illugastaðir, Fnjóskadal
Blikkrás ehf., Óseyri 16
Helga Jóhannesdóttir,
gjaldkeri UMFÍ:
Hreyfingin hefur mikla
þýðingu og leikur stórt
hlutverk í samfélagi
okkar
„Það komu fram óskir um að ég byði mig
fram til stjórnarsetu í UMFÍ. Mér fannst þetta
vera spennandi og ég vil láta gott af mér leiða
í þessari hreyfingu. Það er af nægu að taka
og mér finnst hreyfingin hafa mikla þýðingu
og leika stórt hlutverk í samfélagi okkar,“
sagði Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri, í nýrri
stjórn Ungmennafélags Íslands.
Helga hefur í nokkur ár starfað innan Ung-
mennafélagsins Aftureldingar í Mosfellsbæ.
Hún hefur setið í aðalstjórn félagsins sem
gjaldkeri og varaformaður og svo er Helga
varamaður í stjórn UMSK. Helga lék um
tíma handbolta með HK, bæði í 2. flokki og
meistaraflokki.
„Mér finnast spennandi tímar fram undan
hjá UMFÍ. Tækifærin eru mörg, hreyfingin
hefur unnið að góðum málum og mun gera
það áfram,“ sagði Helga Jóhannesdóttir.
Nýliðar í stjórn Ungmennafélags Íslands:
Ragnheiður Högnadóttir:
Gaman að vinna með
skemmtilegu fólki
„Maður beið eftir því til tólf ára aldurs að
verða meðlimur í ungmennafélagi. Það var
þvílík tilhlökkun hjá unglingunum hér að
ganga í ungmennafélag og verða félagi í
USVS. Ég keppti sjálf ekki mikið en var orðin
stjórnarmaður í Ungmennafélaginu Drangi
14 ára gömul og má segja að ég hafi starfað
hjá félaginu eða sambandinu allar götur síðan.
Ég er búin lifa í þessu samfélagi alla tíð og
ala upp fjögur börn í þessu umhverfi. Þetta
hefur verið yndislegur tími og ég myndi engu
breyta þótt ég ætti þess kost að byrja aftur,“
segir Ragnheiður Högnadóttir, í varastjórn
UMFÍ.
Ragnheiði hefur fundist spennandi að
vinna á vettvangi UMFÍ og því ákvað hún að
gefa kost á sér til stjórnarsetu. UMFÍ er gömul
hreyfing og stendur fyrir góð gildi en þarf
samt að uppfæra sig inn í nútímann.
„Þetta er verkefni sem mig langar að taka
þátt í því að þessi hreyfing hefur upp á
margt að bjóða. Það er gaman að vinna með
skemmtilegu fólki en þannig fólk er alls
staðar í Ungmennafélagi Íslands. Vegna
starfsins á maður vini hringinn í kringum
landið sem er ómetanlegt,“ sagði Ragn-
heiður Högnadóttir.
Göngum um Ísland
Fjölskyldan á fjallið