Ægir - 01.02.2014, Page 10
10
Guðrún S. Jónsdóttir er frá Vest-
mannaeyjum og tengist sjávar-
útveginum sterkum böndum.
Hún byrjaði í Fisktækniskólan-
um síðastliðið haust og er einn
af tólf nemendum í árgangin-
um. „Ég hef alla mína tíð verið
viðloðandi fisk. Ég fór mikið
niður á bryggju en pabbi minn
var skipasmiður. Ég var líka sjó-
mannskona í ein 20 ár en mað-
urinn minn var með trillu í Vest-
mannaeyjum. En ég kem úr allt
annarri starfsgrein því ég var
hárgreiðslukona. Síðan fór ég
að hanna skartgripi en þegar
sonur minn fór í sjávarútvegs-
fræði á Akureyri fór ég að hugsa
minn gang. Það laukst upp fyrir
mér hve dýrmætur fiskurinn er
og hvað hann gerir mikið fyrir
Ísland. Maður má líka eldast í
starfi innan þessarar greinar. Ég
veit að ég get fengið vinnu í
tengslum við námið og ég hef
reyndar fengið loforð þar um.
Ég get líka farið út í heim með
próf frá þessum skóla og unnið
þar við sjávarútveg,“ segir Guð-
rún.
Hún segir Fisktækniskólann
opna fyrir sér margar dyr. Hún
geti unnið í fiskvinnslu, á skrif-
stofu sjávarútvegsfyrirtækja og
við gæðastjórnun hjá hvaða
matvælavinnslufyrirtæki sem
er. Námið bjóði upp á það.
„Ég hef mestan áhuga á að
vinna við gæðastjórnun eða
markaðsmál. Ég fer innan tíðar í
starfsnám hjá Samherja á Akur-
eyri og verð þar í tengslum við
markaðssetningu og gæða-
stjórnun.“ Henni þykir einnig
áhugavert að fara inn á rann-
sóknarstofur og kynna sér mál
sem lúta að auknum gæðum af-
urðanna í tengslum við rétta
meðhöndlun og kælingu.
Guðrún segir að skólinn geri
þá kröfu til fyrirtækja sem taki
að sér nemendur að þau fylgi
þeim vel eftir og uppfræði þá.
„Ég er viss um að innan tíðar
förum við að hafa fisk í matinn
á jólunum. Ég minnist þess
alltaf þegar ég heyrði útlending
sem hafði flust til Íslands segja
að hann vildi hafa fisk í matinn
á jólunum því það væri eðal
máltíð. Ég held að það sé margt
til í þessu og sömuleiðis er
viðhorfið til sjávarútvegs að
breytast talsvert. Það þykir ekk-
ert slor lengur að vera í slori.“
Hún segir að þrátt fyrir tals-
verðan aldursmun á yngstu
nemendum Fisktækniskólans
og þeim elstu sé þetta sam-
heldinn hópur og ekkert kyn-
slóðabil skilji nemendurna að.
„Ég finn mig mjög vel og hlakka
á hverjum degi til að koma í
skólann. Ég er stolt af sjálfri mér
að hafa drifið mig í Fisktækni-
skólann. Starfsfólkið hérna er
líka mjög sérstakt og gott.“
Tilhlökkun
að fara í
skólann
– segir Guðrún S. Jónsdóttir
sem ákvað að leggja greiðuna
á hilluna og snúa sér að fiskinum
Guðrún S. Jónsdóttir frá Vestmannaeyjum hefur mestan áhuga á
því að starfa við gæða- og markaðsmál.