Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2014, Blaðsíða 17

Ægir - 01.02.2014, Blaðsíða 17
17 „Þetta er fyrsti hópurinn hjá okkur sem fer í gegnum raun­ færnimatið en um er að ræða tilraunaverkefni sem að okkar mati lofar mjög góðu. Þetta eru reynsluboltar í greininni sem eru með þessum hætti að nýta sér starfsreynslu sína til að stytta verulega nám sitt hér í skólanum hjá okkur,“ segir Nanna Bára Maríasdóttir hjá Fisktækniskólanum í Grindavík en nú í vetur var í fyrsta skipti í boði svokallað raunfærnimat hjá skólanum fyrir það fólk sem kýs að auka við menntun sína í fiskvinnslu og fá áralanga reynslu í faginu metna sem hluta námsins. Þetta hefur gef­ ist mjög vel og tveir úr nem­ endahópnum ljúka nú í vor prófi í frá skólanum, stytta í raun námið úr tveimur árum niður í eina önn. „Í þessum hópi er fólk sem hefur allt upp í 30 ára reynslu úr fiskiðnaði og meðalaldurinn í þessum hópi er nálægt 40 ár- um. Það segir sig sjálft að þetta fólk kemur með mjög mikla þekkingu inn í námið og hefur því ekki þörf fyrir að sitja grunn- fræðslu í greininni. Hópurinn fór í gegnum raunfærnimatið í desember síðastliðnum og síð- an heldur fólk áfram í þeim áföngum hjá okkur sem uppá vantar en það er misjafnt hvaða fög um ræðir og hversu mikið fólk þarf að taka. Að jafnaði er fólk þó að stytta þetta nám um eitt og hálft ár með raunfærni- matinu þannig að þetta er mjög spennandi valkostur fyrir þrautreynt fiskvinnslufólk til að afla sér aukinnar menntunar í faginu,“ segir Nanna Bára. Starfsmenn Fiskvinnsluskólans útfærðu raunfærnimatið, sem er kerfisbundið mat á þekkingu viðkomandi nemanda, byggt á upplýsingum um nemendurna og samtölum. „Flestir komast að því í matinu að þeir hafa víðtækari þekkingu í fiskiðnaði en þeir gerðu sér fyrirfram grein fyrir. Margir eru að hugsa sér námið til að styrkja sig í starfi, aðrir eru að leggja grunn að enn frekara námi. Í þessum hópi er fólk með reynslu allt frá snyrti- línunni upp í starf framleiðslu- stjóra þannig að það á við um alla að hægt er að nýta starfs- reynsluna til að stytta leiðina að prófgráðu í fisktækni,“ segir Nanna Bára. Fisktækniskóli Íslands í Grindavík: Starfsreynsla styttir fisktækninámið Fisktækniskóli Íslands í Grindavík. F isk v in n sla F isk v in n sla Nemendur úr raunfærnimatshópnum í rekstrarfræðitíma í Fisktækniskólanum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.