Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.2014, Side 14

Ægir - 01.02.2014, Side 14
Prófanir eru nú hafnar á nýrri vél frá Marel sem fengið hefur nafnið FleXicut og notar há­ þróaða röntgentækni til að greina beingarð í hvítfiski og skera hann burt af mikilli ná­ kvæmni með vatnsskurði. Með nýju vélinni stígur Marel fyrsta skrefið í nýrri kynslóð vinnslu­ kerfis fyrir hvítfisk sem fyrir­ tækið boðaði á síðasta ári. Kristján Hallvarðsson, fram­ kvæmdastjóri vöruþróunar hjá Marel segir vélina geta leyst af hólmi þær hendur í fiskvinnsl­ unni sem skeri beingarðinn úr flökunum en hann segir ekki síður mikilvæga fyrir greinina þá möguleika sem FleXicut vél­ in opni fyrirtækjunum til að framleiða nýjar afurðir, þ.e. bita. Þar nefnir hann sem dæmi hnakka með roði. „Leiðarljós í allri okkar þróun er að auka nýtingu, bæta hrá- efnismeðhöndlun og auka sjálf- virkni. Markmiðið er að stytta tím ann sem hvert flak er að fara í gegnum vinnsluferilinn og leggja jafnframt áherslu á að sá hluti flaksins sem er verðmæt- astur fari bæði sem hraðast á endastöð og sé snertur sem minnst á þeirri leið. FleXicut vélin er eitt skref í þessu ferli sem við höfum markað okkur að stefna á, liður í nýrri kynslóð vinnslukerfa frá okkur, “ segir Kristján. Tvær tæknilausnir samaneinaðar í einni vél Tvö atriði standa upp úr í upp- byggingu FleXicut vélarinnar. Marel kynnir FleXicut: Beingarður skorinn vélrænt og meiri möguleikar í bitaskurði F isk v in n sla Kristján Hallvarðsson, framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá Marel. „Ég er ekki í vafa um að þessi tækniþróun okkar getur, líkt og áður, hjálpað fiskvinnslunum úti á mörkuðunum og skilað þeim nýjum viðskiptavinum og auknum tekjum í framtíðinni.“ 14

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.