Morgunblaðið - 27.01.2015, Blaðsíða 1
Gærdagurinn var einkar viðburða-
ríkur hjá Barnaspítala Hringsins en
auk þess að kynna nýjan vef sinn
var nýr tækjabúnaður kynntur til
sögunnar.
Óhætt er að segja að glatt hafi
verið á hjalla á spítalanum en það
vildi svo til að kvenfélagið Hringur-
inn varð 111 ára í gær. Félagið hélt
upp á áfangann með því að líta aug-
um hluta þess tækjabúnaðar sem
keyptur var fyrir þær 110 milljónir
króna sem félagið gaf Barnaspítala
Hringsins í fyrra.
Á nýjum vef Barnaspítala
Hringsins, barnaspitali.is, má síðan
finna ítarlegt kynningarefni þar
sem hægt er að fræðast um ólíkar
deildir spítalans. Þjónusta spítalans
er einnig kynnt til sögunnar, starfs-
fólkinu sem myndar fagteymin eru
gerð skil og er þjónustunni líkt við
byltingu fyrir foreldra.
davidmar@mbl.is
Nýr vefur Barnaspítala Hringsins, barnaspitali.is, hefur verið tekinn í notkun auk nýs tækjabúnaðar
Morgunblaðið/Eggert
Glatt á hjalla þegar veg-
legar gjafir voru kynntar
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. J A N Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 22. tölublað 103. árgangur
EÐALFAGUR
SELLÓTÓNN LJÓM-
AÐI HUNANGSHLÝR
ÞEIR FLUGU
YFIR
SKAFLANA
HELDUR SÉR
FJÖRUGUM MEÐ
FJALLGÖNGUM
BÍLAR ÓLAFUR STEINARS 10DÓMUR UM EINLEIK BRYNDÍSAR 39
Kaupás,
sem meðal
annars rek-
ur versl-
anir Krón-
unnar og
Nóatúns,
getur ekki
keypt þau
svið úr sláturtíðinni í haust sem
fyrirtækið telur sig þurfa. Inn-
kaupastjóri telur það háalvarlegt
að geta ekki fengið vöru sem niður-
greidd er af ríkinu. »8
Kaupás fær ekki
nóg af sviðum
Eykur kostnaðinn
» SI segja lækkun endur-
greiðslu virðisaukaskatts
vegna viðhalds hafa hækkað
byggingarvísitöluna.
» Samtökin óttast að svört at-
vinnustarfsemi muni aukast
vegna meiri álaga.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þrátt fyrir launaskrið og að raun-
gengi krónu hafi ekki verið jafn
hátt síðan 2008 er áfram útlit fyrir
skort á nýjum íbúðum fyrir með-
altekjufólk á Íslandi.
Offramboð var af íbúðarhúsnæði
eftir efnahagshrunið og telja Sam-
tök iðnaðarins (SI) að sá lager hafi
klárast síðla árs 2012.
Skattalækkanir skila sér ekki
Almar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri SI, segir samtökin
áætla að skapast hafi uppsöfnuð
þörf fyrir þúsundir íbúða, þá fyrst
og fremst á höfuðborgarsvæðinu.
Nú séu fyrst og fremst byggðar
stórar og dýrar íbúðir vegna hás
lóðaverðs.
Ari Skúlason, sérfræðingur hjá
Landsbankanum, segir efnahags-
batann ekki skila sér í framboði
íbúða. „Það er ekki nóg framboð af
íbúðum … sem venjulegt fólk vill,
sem eru tiltölulega minni íbúðir.
Nú í kjölfar kaupmáttarstyrkingar
og leiðréttingarinnar – sem hefur
eytt óvissu – ætti kaupgetan að
öllu jöfnu að hafa aukist. Framboð
hefur hins vegar ekki aukist að
sama skapi,“ segir hann.
Stjórn Búseta telur bygginga-
vöruverslanir ekki skila skatta-
lækkunum til neytenda og hefur
því ákveðið að flytja inn bygging-
arefni.
Húsnæðisvandinn
magnast enn frekar
SI segja uppsafnaða þörf fyrir þúsundir nýrra íbúða
MEkki byggt fyrir venjulegt … »4
„Með smíði þessara nýju skipa
viljum við sjá framþróun og þarna
verður sannarlega um framþróun
að ræða,“ segir Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, forstjóri HB Granda, um
samning sem fyrirtækið hefur gert
við Skagann og 3X. Í nýjum tog-
urum HB Granda verða sjálfvirk
flutningakerfi kara af vinnsludekki
og mannlaust lestarkerfi. Vil-
hjálmur segir að þar með falli út
hættulegustu og erfiðustu störfin
um borð, þ.e.a.s. vinna í lest.
Skaginn og 3X hafa einnig unnið
að íslausu kælikerfi um borð í tog-
urum og unnið er að fleiri lausnum
á sjó og landi. »14
Erfiðustu og hættu-
legustu störfin hverfa
Hafin er gerð nýs aðalskipulags
fyrir Garðabæ. Þar verða allar
gerðir af híbýlum, sambland af sér-
býli og fjölbýli, en meginstefið er að
vera með frekar lágreista byggð.
Þetta segir Gunnar Einarsson bæj-
arstjóri í viðtali í blaðinu í dag.
Komið er við í Garðabæ annan dag-
inn í röð í greinaflokknum Heim-
sókn á höfuðborgarsvæðið. Meðal
annars efnis er umfjöllun um úti-
vistarsvæði Garðbæinga, starfsemi
á Vífilsstöðum og Alþjóðaskólann.
Þá kemur fram að fólk með háar
tekjur er áberandi meðal íbúa bæj-
arfélagsins. »18-19
Áfram lágreist
byggð í Garðabæ
Lífeyrissjóður-
inn Gildi mun
ekki taka þátt í
fjármögnun
Hagvaxtarsjóðs
Íslands sem ætl-
að er að fjár-
festa í verk-
efnum sem
tengjast ýmsum
innviðum samfélagsins. Að sögn
forsvarsmanna Gildis leist þeim
ekki á þær hugmyndir sem for-
vígismenn Hagvaxtarsjóðsins báru
á borð þegar hugmyndin að baki
honum var kynnt á síðasta ári.
Enn er beðið svara um hvort
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins taki þátt en Lífeyrissjóður
verslunarmanna mun að öllum
líkindum leggja sjóðnum til 4
milljarða króna. Ljóst er að sjóð-
urinn verður ekki 30 milljarðar
eins og að var stefnt heldur að
minnsta kosti 10 milljörðum
minni. »20
Óvissa er uppi
um fjármögnun
Hagvaxtarsjóðs