Morgunblaðið - 27.01.2015, Blaðsíða 35
skráningu húsasögu Bolungarvíkur,
Patreksfjarðar og Bíldudals vegna
snjóflóðahættumats og hefur verið
ferðamálafulltrúi Vestfjarða í afleys-
ingum frá 1998 og leiðsögumaður
þýskumælandi ferðamanna á sumrin
frá 1992, m.a. hjá Vestfjarðaleið og
Snæland Grímsson: „Ferðirnar með
foreldrum mínum og ferðalag með
austurrískri vinafjölskyldu um land-
ið, sumarið 1991, ásamt búsetu er-
lendis, vakti áhugann á að sýna er-
lendum ferðamönnum hina stór-
brotnu náttúru okkar. Mér finnst það
alltaf jafn skemmtilegt og gefandi.
Það er líka gefandi að kenna ungu
fólki – a.m.k. þegar maður sér árang-
ur erfiðisins.“
Sólrún hefur setið í stjórn kvenna-
deildar Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar í Bolungarvík, í stjórn Ung-
mennafélags Bolungarvíkur,
sunddeildar UMFB og Skíðafélags
Ísfirðinga, hefur starfað í kjörstjórn
Bolungarvíkurkaupstaðar í rúm 20
ár og verið formaður hennar frá
2008. Þá situr hún í stjórn Heilbrigð-
isteftirlits Vestfjarða og safnaráði
norðanverðra Vestfjarða.
Þegar börnum og barnabörnum
sleppir hefur Sólrún yndi af skíða-
ferðum, ferðalögum almennt, prjóna-
skap og lestri góðra bóka.
Fjölskylda
Eiginmaður Sólrúnar er Jónas
Guðmundsson, f. 28.5. 1958, en hann
tók við embætti sýslumanns á Vest-
fjörðum um síðustu áramót og var
áður sýslumaður í Bolungarvík.
Foreldrar hans: Bergljót Líndal, f.
18.9. 1934, hjúkrunarforstjóri í
Reykjavík, og Guðmundur Jónasson,
f. 12.9. 1929, d. 16.6. 1962, frá Flatey
á Skjálfanda, kennari í Reykjavík.
Börn Sólrúnar og Jónasar eru
Helga Theodóra Jónasdóttir, f. 14.5.
1989 (stjúpdóttir Sólrúnar) BS í sál-
fræði, búsett í Reykjavík en unnusti
hennar er Daði Heiðar Kristinsson
lögfræðingur og er sonur þeirra Jón-
atan Leó Daðason, f. 17.8.2014; Hall-
dóra Jónasdóttir, f. 12.6. 1994, leik-
skólaleiðbeinandi í Reykjavík;
Þórhildur Bergljót Jónasdóttir, f. 1.7.
1997, menntaskólanemi, búsett í Bol-
ungarvík; Einar Geir Jónasson, f.
15.12. 2002, grunnskólanemi í Bol-
ungarvík.
Foreldrar Sólrúnar eru Una Hall-
dóra Halldórsdóttir, f. 26.7. 1933,
skrifstofumaður og síðast skólaritari
í Bolungarvík, og Geir Guðmunds-
son, f. 9.5. 1931, verkstjóri í salt-
fiskverkun og safnvörður síðustu
starfsárin.
Úr frændgarði Sólrúnar Geirsdóttur
Sólrún
Geirsdóttir
Ásgeir Jónsson
sjóm. í Dýrafirði
og í Bolungarvík
Elísabet Soffía Guðmundsd.
húsfr. í Dýrafirði og í Bolungarvík
Guðmundur Sigurjón Ásgeirsson
sjóm. í Bolungarvík
Jensína Ólöf Sólmundsdóttir
húsfr. og verkak. í Bolungarvík
Geir Guðmundsson
verkstj. og síðar safnvörður í Bolungarvík
Sólmundur Guðmundsson
sjóm. í Bolungarvík
Guðrún
Pálmadóttir
húsfr. í Dýrafirði og
Bolungarvík
Gunnar
Guðmundsson
múrari í Rvík
Páll Sólmundsson
sjóm. í Bolungarvík
Guðmundur
Pálsson leikari
Hrafnhildur Hagalín
leikskáld og listrænn
ráðunautur við Borgar-
leikhúsið
Ástrós
Gunnarsdóttir
dansari í
Brüssel
Baltasar Breki
Baltasarsson
Samper leikari
Margrét
Guðfinnsdóttir
húsfr. í
Bolungarvík
Jón Eggert SigurgeirssonVíðir Jónssonskipstj. á Kleifabergi
Jónatan Einarsson fram-
kvæmdastj. í Bolungarvík
Elías Jónatansson
bæjarstjóri í Bolungarvík
Guðfinnur Einarsson fram-
kvæmdastj. í Bolungarvík
Hildur Einarsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Halldóra Einarsdóttir
hússtjórnarkennari í Rvík
Einar Benediktsson
fyrrv. forstjóri Olís
Einar Kristinn Guðfinnsson
forseti Alþingis
Kristín
Sigurðardóttir
ljósmóðir í Garðabæ
Guðbrandur
Benediktsson
safnstj.
Borgarsögusafns
Reykjavíkur
Halldór Benediktsson
sjóm. í Skötufirði og Bolungarvík
Guðríður Víglundsd.
húsfr. í Bolungarvík
Halldór Halldórsson
verkstj. og síðar skrifstofum. í Bolungarvík
Guðrún Guðfinnsdóttir
húsfr. og verkak. í Bolungarvík
Una Halldóra Halldórsdóttir
skrifstofum. í Bolungarvík
Guðfinnur
Einarsson
sjóm. í Skötufirði og
í Tjaldtanga við Djúp
Halldóra Jóhannsdóttir
húsfr. í Skötufirði, í Tjaldtanga við Djúp og í Bolungarvík
Ásgeir Haraldsson
barnalæknir
Ragnheiður Haraldsdóttir
forstjóri
Krabbameinsfélagsins
Einar
Guðfinnsson
athafnamaður í
Bolungarvík
Sigurborg Sigurgeirsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Guðmundur Baldur
Sigurgeirsson
Sigmar Guðmundsson
fréttamaður
Pálmi Gestsson
leikari
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015
Jón Pjetur Eyþórsson fæddist áÞingeyrum 27.1. 1895. For-eldrar hans voru Eyþór Bene-
diktsson bóndi og Björg Jósefína Sig-
urðardóttir. Þau fluttu að Hamri í
Ásum er Jón var á öðru ári og þar
fæddust yngri systkinin, Benedikt,
Hólmfríður Guðrún, Jónína Jórunn,
Margrét Sigríður og Björg Karitas,
en hálfbróðir Jóns, tæpum áratug
eldri, var Sigurður Nordal prófessor.
Eiginkona Jóns var Kristín Vigfús-
dóttir frá Vatnsskarðshólum og eign-
uðust þau sex börn.
Jón lauk stúdentsprófum frá
Menntaskólanum 1917, stundaði nám
í verkfræði í Kaupmannahöfn og síð-
an í veðurfræði, fyrst í Kaupmanna-
höfn en síðan í Osló og lauk þaðan
cand.mag.-prófi 1923. Hann starfaði
auk þess í Bergen frá 1921 hjá Vil-
helm Berknes sem varð heimsfrægur
veðurfræðingur vegna rannsókna
sinna fyrir langtíma veðurspár. Vil-
helm varð prófessor í veðurfræði í
Bergen, kom upp og skipulagði fjölda
veðurathugunarstofa í Vestur-Noregi
og þangað streymdu nemendur sem
áttu eftir að komast í fremstu röð
veðurfræðinga næstu áratugi.
Jón starfaði við veðurspár, stað-
setningu og byggingu veðurathug-
unarstöðva á hæstu fjallatindum og
kom að fyrstu útsendingum veður-
spáa í norska útvarpið.
Jón flutti heim 1926 til að taka þátt
í uppbyggingu veðurathugana, ný-
stofnaðrar Veðurstofu Íslands og síð-
an útvörpun á veðurspám þegar Rík-
isútvarpið var stofnað 1930.
Jón var auk þess brautryðjandi í
jöklarannsóknum hér á landi, fór í
tvær frægar jöklarannsóknaferðir
1939 og 1951. Hann stofnaði Jökla-
rannsóknarfélag Íslands 1950 og var
formaður þess til dauðadags. Félagið
átti eftir að vinna afar þýðingarmikla
grunnvinnu á sviði jöklarannsókna.
Auk þess var Jón einn af brautryðj-
endum á sviði hafísrannsókna og
loftslagabreytinga hér á landi. Hann
sat í útvarpsráði 1932-46 og flutti oft
erindi í þættinum Um daginn og
veginn.
Jón lést 6.3. 1968.
Merkir Íslendingar
Jón
Eyþórsson
95 ára
Margrét Ásgeirsdóttir
90 ára
Jóhanna Jóhannsdóttir
85 ára
Björn Olsen Jakobsson
80 ára
Jóhanna Elísabet Pálsdóttir
Steinunn Ólafsdóttir
75 ára
Albert Finnbogason
Bergljót Gunnarsdóttir
Esther Ruth Isaksen
Friðbjörn B. Bjarnason
Jóhannes Stefánsson
Jón Ólafsson
Sturla Snorrason
Þorleifur Hjalti Þórarinsson
70 ára
Barbara Anna
Ármannsdóttir
Guðný Hinriksdóttir
Guðrún Hrönn
Kristinsdóttir
Hjördís Sigurðardóttir
Hreinn Eggertsson
Jenný Forberg
Jóhannes Ragnar E.
Jóhannesson
60 ára
Eyja Þóra Einarsdóttir
Guðmundur Halldórsson
Guðni Þór Sveinsson
Guðrún Hallgrímsdóttir
Guðrún Steingrímsdóttir
Jenný Jónsdóttir
Jóhanna Rósa
Þorsteinsdóttir
Jóhann Úlfarsson
Pétur Hallgrímsson
Sigurður Sigurðsson
Þorbjörn Hermann
Viggósson
50 ára
Bryndís Brynjólfsdóttir
Einar Sveinsson
Eiríkur Þórðarson
Guðrún Ragna
Ragnarsdóttir
Jo Ann Önnudóttir
Jón Trausti Traustason
Magnhildur Pétursdóttir
Margrét S. Ingimund-
ardóttir
Sigþór Hilmisson
Steinar Pálmason
Tomasz Jegor
Þórólfur Sigjónsson
40 ára
Agnieszka Dorota Slota
Arnar Þór Sigurðarson
Dóra Matthíasdóttir
Elheme Veselaj
Elzbieta Danuta Kowalska
Erna Bryndís Róbertsdóttir
Giuseppe Paduano
Guðmundur Þór
Sævarsson
Herdís Gunnlaugsdóttir
Holm
Hlynur Örn Björgvinsson
Mieczyslaw Pienczykowski
Sigrún H. Kristjánsdóttir
Silvija Fomiceva
Svava Kristín
Sigurðardóttir
Tomasz Rojecki
30 ára
Alba Maria Martinez
Gonzales
Dagný Berglind Gísladóttir
Eugen Ioan Goriac
Ólöf Sunna Gissurardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Tinna ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett,
lauk leiklistarnámi frá
Rose Bruford of Theater
and Performance í Lond-
on og er leikari og nemi í
söng.
Maki: Karl Birkir Flosa-
son, f. 1988, nemi í mann-
fræði við HÍ.
Foreldrar: Þorvaldur Þor-
valdsson, f. 1957, húsa-
smiður og nemi í ítölsku,
og Anna Hrefnudóttir, f.
1956, myndlistarkona.
Tinna Þorvaldsd.
Önnudóttir
40 ára Sigurrós ólst upp
í Reykjavík og býr þar,
lauk BS-prófi í alþjóða-
markaðsfræði og er vöru-
stjóri hjá Toyota.
Maki: Davíð Stefán Guð-
mundsson, f. 1975, fram-
kvæmdastjóri hjá Talenta.
Börn: Sandra Rós, f.
2001, Sóley María, f.
2006, og Pétur Hrafn, f.
2012.
Foreldrar: Ástrós Har-
aldsdóttir, f. 1950, og Pét-
ur Sigurðsson, f. 1949.
Sigurrós
Pétursdóttir
40 ára Sverrir ólst upp á
Selfossi, er þar búsettur
og starfar fyrir Barna-
verndarstofu á Lækjar-
bakka, á heimili fyrir ung-
linga.
Maki: Álfheiður Tryggva-
dóttir, f. 1979, kennari.
Synir: Einar Breki, f.
2005, Jón Tryggvi, f.
2008, og óskírður, f. 2014.
Foreldrar: Jóna Ástríður
Jóhannsdóttir, f. 1951, og
Einar Geir Guðnason, f.
1957.
Sverrir Jón
Einarsson
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is