Morgunblaðið - 27.01.2015, Side 14
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sjálfvirkt flutningakerfi kara af
vinnsludekki og mannlaust lestar-
kerfi mun gjörbreyta meðhöndlun
afla og bæta aðbúnað og vinnulag
sjómanna. Slíkt kerfi er hluti af
samningi sem undirritaður hefur
verið á milli HB Granda og Skagans
á Akranesi og 3X Technology á Ísa-
firði um vinnslu- og lestarbúnað
þriggja nýrra togara HB Granda,
sem verða smíðaðir á næstu miss-
erum í Tyrklandi. Verðmæti samn-
inganna er um 1.190 milljónir króna.
Tóm kör verða flutt á sjálfvirkan
hátt upp úr lest, en röðun og frá-
gangur fisks mun fara fram á
vinnsludekki. Karastöflun og flutn-
ingur frá vinnsludekki niður í lest
verður sjálfvirkur og einnig lager-
kerfi í lest, sem og lestun og losun
skipsins.
„Þarna verður sannarlega
um framþróun að ræða“
„Með smíði þessara nýju skipa
viljum við sjá framþróun og þarna
verður sannarlega um framþróun að
ræða,“ segir Vilhjálmur Vilhjálms-
son, forstjóri HB Granda. „Stærsta
einstaka breytingin er sjálfvirkt
flutningakerfi á körunum, en þar
með falla út hættulegustu og ef-
iðustu störfin um borð í skipunum,
þ.e.a.s. vinna í lest flestra skip-
anna.“
Vilhjálmur segir að teymi manna
frá HB Granda, 3X, Skaganum og
Nautic, sem er hönnuður skipanna,
hafi unnið að þessari lausn í hálft
annað ár. Hugmyndin hafi þróast og
breyst mikið á þessum tíma, en nú
verði farið í að smíða frumgerð bún-
aðarins í aðstöðu Skagans á Akra-
nesi. Hún verði prófuð í þaula og
vankantar sniðnir af, reynist þeir
einhverjir vera.
Vilhjálmur segir að samningarnir
nú séu í takt við metnaðarfulla end-
urnýjun flota fyrirtækisins. Aukin
gæði, lægri rekstrarkostnaður og
umfram allt bætt vinnuaðstaða og
aðbúnaður sjómanna séu leiðarljós
við smíði nýju skipanna.
Vel fylgst með Málmeynni
Spurður hvort ís eða ofurkæling
verði notuð til að kæla fisk um borð í
skipunum segir Vilhjálmur að bún-
aður á vinnsludekki gefi möguleika
á báðum lausnunum. „Við leggjum
af stað þannig að gert er ráð fyrir ís
til að kæla aflann, en við munum
fylgjast vel með hvernig gengur á
Málmey SK. Vinnslukerfin eru hins
vegar eins, og ef vel gengur þá er
möguleiki á ofurkælingu fyrir
hendi,“ segir Vilhjálmur.
Búnaðurinn verður settur í skipin
þegar þau koma ný heim úr skipa-
smíðastöð í Tyrklandi, það fyrsta
síðla sumars 2016. Fleiri munu ef-
laust fylgjast með hvernig vinnsla
og kæling gengur með nýjum bún-
aði um borð í Málmey, en þar verður
fiskurinn ofurkældur í fyrsta skipti í
togara án þess að ís verði notaður.
Hafa forystumenn Skagans sagt að
eftir þessar breytingar sé rétt að
tala um ferksfisktogara í stað ísfisk-
togara.
Risastórt skref
„Til viðbótar verður nú stigið það
risastóra skref að lestarkerfið verð-
ur mannlaust. Talað hefur verið um
það í tugi ára að létta vinnuna um
borð í skipunum og þarna er það
gert svo um munar. Á sama tíma
fáum við betri meðhöndlun og röðun
á fiskinum,“ segir Ingólfur Árnason,
framkvæmdastjóri Skagans og 3X.
Málmey fer til veiða um næstu
helgi sem ferskfisktogari, en skipinu
var breytt í Póllandi í sumar og síð-
an var nýr vinnslu- og kælibúnaður
settur í það á Akranesi. Nýverið
fékkst 80 milljóna króna styrkur frá
Noregi til rannsókna og þróunar á
þessari nýju tækni en rannsóknar-
aðilarnir eru Matís og Iceprotein á
Sauðárkróki.
Tæknilausnir í landi
„Áður höfðum við þróað nýjar
sjálfvirkar lausnir til vinnslu á upp-
sjávarfiski, en slík kerfi eru komin
víða hér á landi og í Færeyjum. Með
þessum tveimur síðustu verkefnum
teljum við okkur hafa stigið stór
skref í meðferð á bolfiski og hannað
frá grunni nýja vinnslurás um borð í
ferskfiskskipum.
Næstu skref snúa að tæknilausn-
um í landi til að auka sjálfvirkni og
við erum byrjaðir að vinna að því
verkefni,“ segir Ingólfur.
Sjálfvirkni verður í lestarkerfi
Nýtt kerfi frá 3X og Skaganum í þrjá nýja togara HB Granda Sjálfvirkt flutningakerfi kara gjör-
breytir meðhöndlun afla og bætir aðbúnað sjómanna Í takt við metnaðarfulla endurnýjun á flotanum
Mikil endurnýjun
» HB Grandi hefur samið um
smíði á fimm nýjum fiskiskip-
um í Tyrklandi.
» Fyrra uppsjávarveiðiskipið
verður væntanlega afhent
núna í apríl og fær nafnið Ven-
us NS. Í lok árs verður seinna
uppsjávarveiðiskipið afhent og
mun það heita Víkingur AK.
» Tveir af ísfisktogurunum
verða afhentir á árinu 2016 og
mun sá fyrri heita Engey RE og
sá seinni Akurey AK.
» Síðasti ísfisktogarinn verður
afhentur í Tyrklandi á árinu
2017 og kemur hann til með að
bera nafnið Viðey RE.
Við undirskrift Ingólfur Árnason, Vilhjálmur Vilhjálmsson og Albert
Högnason, þróunarstjóri Skagans / 3X Technology.
Nýtt kerfi Sjálfvirkt
lestarkerfi fyrir 625
kör, sem taka um 200
tonn af afla í lest.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015
HÁR
Dreifingaraðili
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á
BEAUTY
INSIDERS´CHOICE
W I N N E R
COSMETIC EXECUTIVE
WOMEN UK
2014
Rótarlitun
WOW Þekur grá hár • Lýsir dökka rót • Fljótlegt • Endist á milli þvotta • 6 litir
Skoðaðu kynningarmyndböndin
á facebooksíðu hár ehf
Sölustaðir WOW
Amber
Fagfólk
Flóki
Gott Útlit
Gresika
Hair brush
Hársaga
Hársetrið
Hjá Dúdda
Hjá Ernu
Höfuðlausnir
Klippart
Klipphúsið
Kúltúra
Labella
Medúlla
Modus
Ozio
Papilla
ProMode
Salon Veh
Scala
Senter
Stjörnusól
Strípur
Ingólfur segir að hjá Skag-
anum og 3X sé þessa dag-
ana unnið að mörgum verk-
efnum. Íslaus kæling um
borð í fiskiskipum hafi þeg-
ar vakið mikla athygli og
trúlega munu margir vilja fá
nánari fréttir af lestakerf-
inu.
Útgerðir hér á landi og er-
lendis fylgist náið með og
fyrirspurnir hafi m.a. borist
frá Suður-Afríku og Nýja-
Sjálandi. Ingólfur segir það
mikla viðurkenningu að HB
Grandi velji lausnir frá 3X
og Skaganum. Fyrirtækin
hafi lengi átt farsæl sam-
skipti, m.a. í þróunarvinnu.
„Það farsæla samstarf er
staðfest með þessum samn-
ingi,“ segir Ingólfur.
Margir hafa
sýnt áhuga
FYRIRSPURNIR FRÁ SUÐUR-
AFRÍKU OG NÝJA-SJÁLANDI
Greiðslukorta-
velta ferðamanna
hér á landi jókst
um 25% í desem-
ber samanborið
við sama mánuð
árið 2013. Veltan
var 6,5 milljarðar
króna eða um 1,3
milljörðum krón-
um meiri en í des-
ember árið 2013.
Hæstu upphæðum í desember
vörðu útlendingar til kaupa í versl-
unum 1,4 milljörðum króna, litlu
lægri upphæð til skipulegra ferða
með ýmsum ferðaþjónustuaðilum
1,3 milljarður kr., og þriðju hæstu
upphæðinni var varið til hótela og
gistihúsa eða 1,1 milljarði kr. Mest
hlutfallsleg aukning í kortaveltu er-
lendra ferðamanna frá desember í
fyrra var í skipulögðum skoðunar-
ferðum sem ferðaþjónustuaðilar
bjóða. Aukningin í þeim útgjaldalið
nam 67% á milli ára.
Kortaveltan jókst
um fjórðung frá
desember 2013
Sjá Erlendir ferða-
menn í Haukadal.