Morgunblaðið - 27.01.2015, Side 18

Morgunblaðið - 27.01.2015, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015 GARÐABÆR H EI MS ÓKN Á HÖFUÐBO R G A R S V Æ Ð IÐ 2015 „Vífilsstaðahlíð, sem er innan landamæra Garðabæjar, er eina af perlum Heiðmerkur,“ segir Helgi Gíslason framkvæmdastjóri Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur. „Þetta svæðið snýr mót suðri og er því sól- ríkt og í brattri hlíðinni er jarðveg- urinn frjór. Því eru þarna stund- aðar ýmsar áhugaverðar tilraunir í skógrækt. Þá er þetta mjög fjölsótt útivistarsvæði.“ Í haust var unnið að ýmsum um- hverfisbótum í sunnanverðri Heið- mörk. Settir voru upp bekkir, úti- grill, göngustígar og bílastæði lagfærð og svo framvegis. Yfir- byggt skýli á þessum stað var hins vegar tekið niður, enda orðið að- dráttarafl fyrir nætur- og drykkju- gleði. Þá var vegurinn í gegnum skógræktarsvæðið sem þarna ligg- ur endurbættur á kostnað Garða- bæjar. Samstarfssamningur sveitarfé- lagsins og skógræktarinnar sem hefur gilt síðustu árin rann út um síðustu áramót. Helgi Gíslason væntir þess hins vegar að samn- ingur þessi verði endurnýjaður fljótlega, enda sé gagnkvæmur áhugi á því. Raunar sé suðursvæðið áhersluatriði um þessar mundir, en ráðgert sé að grisja skógana þar nú á útmánuðum. Einnig verði gróð- ursett þar í sumar, rétt eins og ann- arsstaðar í Heiðmörk sem er 3.200 hektarar og því einn víðfeðmasti skógur á landinu. Þá er nýlega byrjað að vinna nytjavið úr Heið- merkurskógum og reynslan af því lofar góðu. sbs@mbl.is Útivistarsvæði í suðri Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skógarmaður Helgi Gíslason við fræðsluskilti í grænni Vífilsstaðahlíðinni. Hjalladalur Skógurinn á sér marg- ar birtingarmyndir og skiptir litum. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Íbúar bæjarins eru kröfuharðir og við reynum að mæta þeim kröfum,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, en nýlega var kynnt gerð aðalskipulags Garðabæjar 2016 til 2030. Margt hefur breyst í bænum að undanförnu, til að mynda hefur sveitarfélagið sameinast Álftanesi auk þess sem ný byggð rís nú brátt í Urriðaholti. „Grundvöllurinn fyrir þessu nýja aðalskipulagi er sá að við vorum að sameina sveitafélögin. Á Álftanesi var skipulagið í gildi til 2024 og okkar skipulag var í gildi til 2016. Það var því gráupplagt að taka upp nýtt að- alskipulag sem byggir m.a. á þessum eldri skjölum,“ segir hann. Skóli rís í Urriðaholti „Við þurfum að skoða með hvaða hraða og hversu þétt við ætlum að byggja upp bæinn. Við eigum nægj- anlega mikið landsvæði til að vera fjöl- menn en það er ekki markmið í sjálfu sér, það þarf að byggja bæinn hægt og rólega upp. Við höfum þá fyrir innvið- unum í leiðinni og getum mætt íbúun- um með góðri þjónustu,“ kveður Gunnar en þess má geta að samkvæmt skipulaginu á að byggja fjölbreytt. „Þar verða allar gerðir af híbýl- um, getum við sagt. Meginstefið er þó að vera með frekar lágreista byggð. Við viljum þróa bæinn áfram með því að hafa góða samblöndu af sér- býli og fjölbýli, bæði fyrir ungt fólk og eldra fólk,“ segir hann. Hann kveður einnig í bígerð að reisa grunnskóla í Urriðaholtinu. „Við munum byggja hann í takti við uppbyggingu í hverfinu. Það er búið að fara í jarðvegsvinnu og við reiknum með að þar geti hafist starf- semi í september 2016. Þetta er ein stærsta fjárfestingin sem við erum að fara í núna. Auk þess erum við að byggja við Hofsstaðaskóla. Á undan- förnum árum höfum við verið með allt að 1,3 milljarð króna í fjárfest- ingar og ég sé ekki fram á að það Uppbygging Byggð rís hratt við Urriðaholt, þar mun m.a. rísa grunnskóli. Þar verða bæði einbýlis- og fjölbýlishús. Meginstefið að vera með fremur lágreista byggð  Mikil uppbygging í Urriðaholti  1,3 milljarður króna í fjárfestingar Flatirnar í Garðabæ eru eftirsótt íbúðarhverfi og þar býr margt efnafólk. Hverfið, sem byggðist á sjöunda áratugnum, er með sterk- an svip. Þar eru vel á þriðja hundrað einbýlishús og fáein rað- hús, mörg teiknuð af þekktum arkitektum. Flest eru húsin einnar hæðar í fúnkisstíl með stórum og björtum gluggum og svefn- herbergisálmum. Lóðir eru vel grónar og garðar áberandi í götu- myndinni. Jeppar og eðalvagnar af dýrustu sort eru áberandi við hús- in þegar ekið er um hverfið að loknum vinnudegi eða um helgar, enda benda opinberar hagtölur til þess að hvergi á landinu búi auð- ugra fólk en í Garðabæ. Þekktasti íbúinn á Flötunum er Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra, formaður Sjálfstæðis- flokksins. Foreldrar hans og margir frændur búa einnig í hverfinu. Fjölskyldan hefur verið mjög áhrifamikil í bæjarpólitíkinni og var faðir hans, Benedikt Sveinsson, leiðtogi bæjarstjórn- arinnar um árabil. Hann var þá jafnframt einn aðaleigandi stórfyr- irtækja eins og Eimskips og Sjó- vár-Almennra. Morgunblaðið/Ómar Efnafólk Bílarnir við einbýlishúsin bera vitni um góðan hag íbúanna. Flatirnar eru mjög eftirsótt íbúðarhverfi  Fólk með háar tekjur áberandi í Garðabæ Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Á STIGUM, TRÖPPUM, ÁSTÖNDUM OG BÚKKUM Í YFIR 30 ÁR Þarftu að framkvæma? Við eigum pallana fyrir þig

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.