Morgunblaðið - 27.01.2015, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 27.01.2015, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 2015 ✝ Jóhannesfæddist á Furubrekku í Staðarsveit 25. júlí 1923. Hann lést 26. nóvember 2014. Foreldrar Jó- fríður Kristjáns- dóttir og Páll Þórðarson. Þau eignuðust tvo syni, Jóhannes og Þórð. Fósturdóttir, Aðal- heiður, ólst upp með þeim. Jóhannes kvæntist Þuríði Guðmundsdóttur 1953 og eignaðist með henni eina dóttur, Ástríði Guðbjörgu. Fyrir átti Þuríður synina Guðmund Svavarsson og Gísla J. Gíslason sem hann gekk í föðurstað. Guðmundur er kvæntur Hrafnhildi Gunn- arsdóttur Börn Guðmundar eru: Gríma, gift Sigurði Hall- dórssyni, þeirra börn eru Vera og Emil, fyrir átti Sig- urður dótturina Minný. Þór- hildur, hennar börn eru Rag- ney Lind, Karen Lilja og Bryndís Lára. Sigríður, gift Snær. Fyrir á Eysteinn son- inn Snorra. Jóhanna, sam- býlismaður Darri Hilmars- son. Þau eiga dreng ný- fæddan. Fyrri hluta ævi sinnar vann Jóhannes mest við raf- lagnir og tók þátt í að raf- væða landið. Seinna varð hann hugvits- og athafna- maður og rak fyrirtæki í Mosfellsbæ, Borgarnesi, Hveragerði og Hvolsvelli með Þuríði sér við hlið. Jólaseríur sem hann framleiddi stóran hluta ævinnar lýsa ennþá á aðventu víða um land. Á sjö- unda áratugnum hóf hann að hreinsa landið af brota- málmum og hóf útflutning á þeim. Seinna tók við þróun á öryggislokum á lyfjaglös, eit- urefnaflöskur og öryggislæs- ingar á lyfjaskápa. Þau hjón- in bjuggu í Kaupmannahöfn í 14 ár en þar fékk Jóhannes góða fyrirgreiðslu varðandi uppfinningar sínar á Tecno- logisk Institut fyrir prófanir og þróun. Þau fluttu til Ís- lands 1994 og bjuggu eftir það í Hveragerði. Þuríður lést 13. júní 2012. Seinni árin fór heilsunni hrakandi og var hann vist- maður á hjúkrunarheimilinu Ási sl. fjögur ár. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Jan David Tysk, þeirra synir eru Jón Óskar og Sig- urður Óskar. Börn Hrafnhildar eru: Ragnheiður Arngrímsdóttir, gift Árna Mar Haraldssyni, þeirra börn eru Kristinn Logi og Alexander Hrafn, fyrir á Ragnheið- ur soninn Arngrím Braga. Gunnar Arngrímur Arn- grímsson, hans sonur er Sölvi. Gísli er kvæntur Hólm- fríði Skaftadóttur Þau eiga þrjár dætur: Þuríður er gift Vigni Demussyni, synir henn- ar og Þorvaldar Snorrasonar eru Snorri, Gísli og Skafti. Fyrir á Vignir dótturina Erlu Ósk. Margrét, hennar sonur er Ísak, Þóra, gift Grétari Snorrasyni, þeirra synir eru Hólmar og Steinar. Ástríður er gift Gunnlaugi Björnssyni, þeirra börn eru: Gígja, sam- býlismaður hennar er Ey- steinn Einarsson, börn Ást- ríður Embla og Gunnlaugur Elsku pabbi. Þú varst góð fyr- irmynd þeim sem trúa á bjart- sýnina í lífinu, alltaf bjartsýnn sjálfur, sama hvað á bjátaði. Það var heldur ekki til það vandamál sem ekki var hægt að leysa. Úr- ræðagóður sögðu bændurnir í sveitinni. Þú varst á undan þinni samtíð þegar þú á áttunda áratugnum vannst að þróun á öryggislokum á lyfjaglös en áttir í mestu erf- iðleikum með að sannfæra ráða- menn þjóðarinnar um nauðsyn setningar reglugerðar um þessi mál. Þú tókst þátt í sýningum austan hafs og vestan á hönnun þinni; öryggislok á lyfjaglös en einnig á eiturefnaflöskur sem og öryggislæsingar á lyfjaskápa. Þú varst einnig frumkvöðull þegar kom að því að hreinsa landið af brotamálmum, fórst vítt og breitt um landið og keypt- ir brotajárn af bændum. Jóla- seríurnar sem þú þróaðir og framleiddir stóran hluta ævinn- ar prýða ennþá landið. Þú ferðaðist mikið og gerðir samninga í útlöndum, bæði um sölu brotamálma, uppfinninga og einkaleyfa. Þú lést það ekki aftra þér að vera nánast mállaus á erlenda tungu því það var alltaf hægt að fá hjálp hjá stúdentum við túlkun þegar mikið lá við. Þú trúðir á það besta í mann- inum og gerðir aldrei ráð fyrir öðru frá öðrum. Mörgum varstu hjálpsamur sem voru atvinnu- lausir og greiddir götu þeirra. Sumum komstu á rétta braut eftir feilspor í lífinu. Þær voru ófáar ferðirnar sem við keyrðum fyrir Hvalfjörð þeg- ar við bjuggum í Borgarnesi og mamma var á sjúkrahúsi í Reykjavík. Þá var sungið alla leiðina til að stytta ferðina og margir voru þeir textarnir sem ég lærði á þeirri leið. Davíð Stef- ánsson var í miklu uppáhaldi hjá þér og mörg ljóðin eftir hann sem þú fórst með við hátíðleg tækifæri. Síðustu árin fór heilsu þinni hrakandi og þú varst undir lokin farinn að bíða eftir hvíld- inni. Þín verður sárt saknað. Þín Ástríður. Jóhannes S. Pálsson Í dag kveðjum við kæran vin. Vin- átta okkar hófst þegar ég hóf störf í Kaplakrika og það bar aldrei skugga á hana fram að dán- ardægri þínu, elsku vinur. Traustari vin var ekki hægt að óska sér, alltaf varstu tilbúinn að koma og hjálpa ef á þurfti að halda. Í öllum okkar flutn- ingum á milli íbúða þá held ég að það hafi sjaldan gerst að þú hafir ekki verið aðalmaðurinn í flutningunum. Það leið ekki Benedikt Ernest Rutherford ✝ Benedikt(Bennó) Ernest Rutherford fæddist 4. júlí 1943. Hann lést 18. janúar 2015. Útför Bene- dikts fór fram 26. janúar 2015. sá dagur að við heyrðumst ekki í síma, stundum tvisvar til þrisvar yfir daginn. Ef þú varst ekki búinn að hringja fyrir há- degi hélt ég að eitthvað væri að og hringdi til að at- huga hvort ekki væri allt í lagi. Þegar hún Gunna þín keypti bílinn og lét skrá hann á þig þá loksins léstu það eftir þér að fara að keyra aftur. Og þvílík blessun sem þessi bíll varð, gast skellt þér í heimsókn til okkar eftir að við fluttum í Breiðholtið. Man hvað þú varst nú stoltur og ánægður þegar þú stóðst fyrir framan hurðina hjá okkur, nýbúinn að keyra úr Hafnarfirðinum. Veiðiferðirnar okkar, mað- ur minn, hvað ég á eftir að sakna þeirra. Ferðirnar upp í Kvíslaveitur og ekki síður undirbúningurinn og spennan fyrir því að komast tveir sam- an uppeftir til að veiða. Spennan bar okkur stundum ofurliði og við héldum allt of snemma af stað uppeftir. Urð- um þá jafnvel að bera grjót í skurði á veginum til að kom- ast á leiðarenda og stóðum þá stundum á klakabunkum við veiðarnar. En næsta vor var þetta allt gleymt, veiðiferðin í huga okkar farin við bestu að- stæður, sól og heiður himinn allan tímann. Ekki voru síðri ferðirnar okkar á alla FH- leikina, bæði handboltinn og fótboltinn átti hug okkar allan og eftir að ég flutti aftur í bæ- inn var að sjálfsögðu farið á alla heimaleiki liðsins sem tök voru á. Ef við komumst ekki á leikina og þeir voru sýndir í sjónvarpi þá var að sjálfsögðu hringst á í hálfleik og svo eft- ir leik til að spá og spekúlera í leik liðsins, bölvað vel og lengi ef þeir töpuðu en sigri fagnað vel og innilega. Eftir sit ég með fullt af yndislegum minningum sem ég á eftir að ylja mér við þangað til við hitt- umst aftur, þegar minn tími kemur. Ég er alveg viss um það að þú átt eftir að bíða mín með veiðistangir í hendi og spyrja hvort við eigum ekki að drífa okkur af stað. Mikið á ég eftir að sakna samtala okkar, kæri vinur. Þegar síminn hringir þá á ég alltaf eftir að vona að á línunni sért þú og að ég fái að heyra röddina þína aftur, þetta sé ekkert nema slæmur draumur. Við Helga eigum eftir að sakna þín sárt, Bennó minn, og kveðj- um þig í dag með miklum trega. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Páll og Helga. Einn helsti vel- gjörðarmaður Há- skóla Íslands, Bent Scheving Thor- steinsson, er nú fallinn frá eftir langa og viðburðaríka ævi. Fyrir hönd starfsfólks lyfja- fræðideildar HÍ vil ég senda eiginkonu hans Margaret og fjölskyldu þeirra okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Bent var mikill áhugamaður um vísindi og rannsóknir og færði Há- skóla Íslands háar fjárhæðir í verðlauna- og styrktarsjóði. Einn þessara sjóða sem Bent Bent Scheving Thorsteinsson ✝ Bent HillmanSveinn Schev- ing Thorsteinsson fæddist 12. janúar 1922. Hann lést 7. janúar 2015. Útför Bents var gerð 15. janúar 2015. og Margaret færðu Háskólan- um er Verðlauna- sjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving Thor- steinssonar. Hann var stofnaður árið 2001 og er mark- mið hans að veita verðlaun fyrir vís- indaleg afrek og styrkja rannsóknir og framhaldsnám í lyfjafræði. Sjóðurinn er tileinkaður föður Bents, Þorsteini Scheving Thorsteinsyni sem var lyfsali í Reykjavíkurapóteki frá því að hann lauk lyfjafræðinámi árið 1918 og fram til ársins 1962. Þorsteinn lagði mikið af mörk- um í sinni fræðigrein, hann kom að menntunarmálum lyfjafræðinga og átti í áratug sæti í prófnefnd fyrir lyfja- fræðinema. Hann var auk þess virkur í félagsmálum og var um tíma formaður félags íslenskra lyfjafræðinga og var einn af stofnendum Apótekarafélags Íslands. Hann stundaði einnig ritstörf og gaf út bækurnar Lyfjahandbók lækna og Nokkur lyfjasamheiti og var formaður nefndar sem tók saman lyfja- forskriftir sem gefnar voru út árið 1938 undir heitinu Di- spensatorium Islandicum. Þor- steinn var því sérlegur velgjörð- armaður lyfjafræðinnar og Háskóla Íslands líkt og sonur hans. Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving Thor- steinssonar hefur verið mikil lyftistöng fyrir framhaldsnám í lyfjafræði og nú þegar hafa 24 styrkir verið veittir úr honum. Þessar viðurkenningar eru mik- ilvæg hvatning fyrir unga vís- indamenn til að láta gott af sér leiða fyrir Háskóla Íslands, þjóðina og á alþjóðavettvangi. Verðlaunin hafa nýst doktors- nemum m.a. til að vinna hluta af rannsóknum sínum við erlenda háskóla eða stofnanir og til að kynna verkefnin sín á vísinda- ráðstefnum. Ég var í fyrsta hópi dokt- orsnema sem hlutu verðlaun úr sjóðnum og komu þau sér einstaklega vel fyrir rannsókn- ir mínar. Ég er þeim hjónum ævinlega þakklát fyrir stuðn- inginn. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með doktorsnáminu í lyfjafræði á Íslandi vaxa og dafna og nú eru yfir tuttugu doktorsnemar skráðir við deildina frá sex löndum. Bent og Margaret eiga ríkan þátt í þeim upp- gangi. Bent var ávallt áhuga- samur um styrkhafana og setti sig inn í verkefni þeirra þó að mörg þeirra væru bæði sér- hæfð og torskilin fyrir leik- mann. Starfsmenn lyfjafræðideild- ar minnast Bents með hlýhug og þakka góða kynningu og framlag þeirra hjóna til efling- ar rannsókna og framhalds- náms í lyfjafræði. F.h. starfsfólks lyfjafræði- deildar Háskóla Íslands Sesselja Ómarsdóttir deildarforseti. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR Þ. GUÐMUNDSSONAR stýrimanns, Eiðismýri 30. . Kristín Einarsdóttir, Sævar Sigurðsson, Björg Þórarinsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Hallvarður Agnarsson, Einar Sigurðsson, Auður Þorsteinsdóttir, Elvur Rósa Sigurðardóttir, Smári Örn Baldursson, afa- og langafabörn. Þakka auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar, KRISTÍNAR INGÓLFSDÓTTUR, Grænumýri 18, Akureyri. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Einihlíðar á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun og hlýhug í hennar garð. . Ólöf Ingunn Ingólfsdóttir og fjölskylda. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Rifgirðingum, lést á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi miðvikudaginn 21. janúar. Jarðsett verður frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 30. janúar kl. 14.00. Þökkum starfsfólki Dvalarheimilisins frábæra umönnun síðastliðin ár. Kristján Kári Jakobsson, Torill Strøm, Þórhildur H. Jakobsdóttir, Sigurður Sívertsen, Jón J. Jakobsson, Hulda Birgisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, INGI KRISTINSSON, fyrverandi skólastjóri, Tómasarhaga 34, lést laugardaginn 24. janúar. Útförin verður auglýst síðar. . Hildur Þórisdóttir, Þórir Ingason, Þorbjörg Karlsdóttir, Kristinn Ingason, Bergdís H. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆMUNDUR HÖRÐUR BJÖRNSSON, fyrrverandi flugumsjónarmaður, Háholti 16, Hafnarfirði, lést mánudaginn 19. janúar á Landspítala Fossvogi. Útförin verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 29. janúar kl. 15.00. . Eyjólfur Þór Sæmundsson, Gerður S. Sigurðardóttir, Gunnar H. Sæmunsson, Sigríður B. Stefánsdóttir, Þórey Ósk Sæmundsdóttir, Friðþjófur H. Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, RAGNA BJARNADÓTTIR áður til heimilis í Stekkjaflöt 14, Garðabæ, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 20. janúar. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 2. febrúar kl. 15.00. Ólafur G. Einarsson, Ásta R. Ólafsdóttir, Þröstur Sigurðsson, Ólafur Þór Þrastarson, Fannar Steinn Þrastarson, Viktor Ingi Þrastarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.