Reykjalundur - 01.06.1954, Blaðsíða 6

Reykjalundur - 01.06.1954, Blaðsíða 6
Oddur Ólafsson yfirlæknir: Byggingarframkvæmdir að Reykjalundi 3. júní 1944 — 3. júní 1954 Oddur Ólafsson. Varla er unnt að gfeta byggingarfram- kvæmda STBS að Reykjalundi undanfarin 10 ár, án þess að fara nokkrum orð'um um aðdraganda þeirra. Árið 1940 ákvað miðstjórn STBS að ein- l>eita kröftum félagsskaparins að byggingu Vinnuheimilis fyrir berklasjúklinga. Árið 1941, síðsumars, skipaði hún nefnd, að nokkru leyti utan miostjómar til þess að vinna að' undirbúningi málsins og 1942 var skipuð önnur nefnd innan miðstjórnar í sama augnamiði. Nefndir þessar unnu saman að undirbúningi málsins, einkum að tillögum um stað, byggingarframkvæmdir, rekstursmöguleika. og fjáraflanir. Smám saman fengu hugmyndir manna um þetta framtíðarfyrirtæki SÍBS fastara form og 30 marz 1944 festi STBS kaup á landi, þar sem byggja skyldi hið væntanlega vinnu- heimili. Landsvæði þetta var 32 ha. að stærð, keypt úr jörðinni Suð'ur-Reykir í Mosfells- sveit. Helztu ástæður fyrir staðarvalinu voru þessar: Landið lá 18 km frá Reykja- vík í góðu vegasambandi, þar var heitt vatn og Sogsrafmagn, þar voru kaldavatns- leiðslur og skolpleiðslur í jörðu. Auk þess stóðu á landinu tugir hermannaskála, er við töldum að gætu orðið' okkur að liði meðan á byggingarframkvæmdum stæði. Stórar bújarðir voru á næstu grösum og því auðvelt um kaup á landbúnaðarafurð- um til lieimilisnota. Er staðurinn hafði verið valinn, voru næstu verkefni að fá uppdrætti að' heim- ilinu. Leitað var til skrifstofu húsameist- ara ríkisins, sem ekki taldi sig geta lokið verkinu á tilsettum tíma, og að athuguðu máli, voru arkitektarnir Gunnlaugur Hall- dórsson og Bárður Isleifsson ráðnir til að annast það vandaverk. — Þing SÍBS var kallað saman í maí, er uppdrættir lágu fyrir, og var þar samþykkt að reisa vinnuheimilið á áðurnefndum stað og sam- kvæmt uppdrætti þeirra Gunnlaugs og Bárðar. Samþykkt var og að byggingar- framkvæmdir skyldu þegar hefjast og þeim hraðað svo sem unnt væri. Sérstök byggingarnefnd var kosin til þess að sjá um framkvæmdirnar fyrir hönd miðstjórn- ar. I þá nefnd voru kosnir þeir Árni Ein- arsson, Sæmundur Einarsson og Oddur Ólafsson. Nú hófust einhverjir þeir erfiðustu og þófkenndustu samningar, sem StBS hefir nokkru sinni lent í, en það voru samningar við hina nýskipuðu sölunefnd setuliðs- eigna um kaup á hermannaskálum þeim, er á landinu stóð'u. Samningum þeim lauk þannig, að nefndin seldi einstaklingi alla 4 heykjalttndtjr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.