Reykjalundur - 01.06.1954, Side 8

Reykjalundur - 01.06.1954, Side 8
stofa raforkumálastjóra raflagnir húsanna. Jón Sigurðsson, núverandi slökkviliðs- stjóri, teiknaði hitalögn og Sigurður Olafs- son, verkfræðingur, járnalögn. Þá þurfti að ráða iðnaðarmenn til starfa og reyndist það miklum erfiðleikum háð. Allir voru störfum hlaðnir, höfðu fest sig um lengri tíma. Loks tókst okkur að fá þá Aðalstein Sigurðsson, og Svavar Benediktsson múrara til þess að hlaða upp á helgum þau 10 smáhýsi, er fyrst skyldi byggja. Menn þessir voru að byggja stórhýsi niður í Reykjavík, komu til okkar á föstudagskvöidum og fullhlóðu hvert hús á einni helgi. Trésmiði tókst að fá, aðallega utan af landi, þar á meðal Hjört Kristjánsson frá Isafirði, sem hefir verið' nýtur starfsmaður Reykjalundar æ síðan. Hitalögn tók að sér Sigurður Guð- mundsson, rörlagningameistari og raflagnir fyrirtækið Skinfaxi h.f. Verkamenn tókst að fá hér og hvar að af landinu. Verkstjóri þeirra var ráðinn Páll Ingólfsson. Þriðja dag júnímánaðar, árið 1944, var frumundirbúningi að framkvæmdum lokið. Þann dag hélt miðstjórn SIBS, ásamt nokkrum sjálfboðaliðum, upp í Mosfells- sveit og eftir að forseti SÍBS, Andrés Straumland, hafði tekið fyrstu skóflustung- una, var grunnur fyrsta lniss Vinnuheim- ilisins grafinn þennan eftirminnilega júní- dag. Eftir þetta hófust framkvæmdir með miklum hraða, allskonar el'ni og áhöld streymdu að, yfir 30 iðnaðar og verkamenn voru önnum kafnir við starfið 10 st. dag- lega og sumir unnu jafnvel lengri vinnu- dag. Takmarkið var að liafa 5 lnis tilbúin um áramótin. Þetta tókst fyrir frábæra at- orku þeirra, er hér unnu og einstakan vel- vilja allra þeirra, er leitað var til um aðstoð. Á þeim tíma voru mikil efnisvand- ræði í þessu landi. Margt þurfti að fá lánað, hér og þar, smala ýmsum smáldutum hjá einstaklingum eða byggingarfélögum, ef þeir voru ófáanlegir í verzlunum. — Marg- ur var snúningurinn, mörg vonbrigð'in — þegar öll von virtist vera úti um að fá það, er vantaði, en gleðistundirnar yfir- gnæfðu þó alla örðhgleika, ekki sízt, þegar við, eftir langa leit, duttum ofan á réttan aðila og fengum vandræðin leyst. Þetta sumar varð mikil breyting hér á staðnum, hermannaskálarnir hurfu, einn af öðrum, en upp risu smáhýsin 10 með slíkum hraða, að varla munu dæmi til hérlendis. I ágúst voru þökin komin á flest húsin. I okt. voru þau fokheld og um áramót voru fyrstu 5 húsin tilbúin til notkunar og hin 5 mjög langt komin. Auk þess hafði hermanna- skálum þeim, er við áttum, verið' breytt í eldhús, borðstofu, saumastofu, tré- og járnsmíðaverkstæði, bíósal og margt fleira. Vélar og áhöld höfðu verið keypt til verk- stæðanna og komið fyrir þannig, að 1. febr. ’45, eða 8 mán. eftir fyrstu skóflustunguna, gat rekstur og móttaka vistmanna hafist og á þeim tíma fékk staðurinn hið þekkta nafn sitt, Reykjalundur, samkvæmt til- lögu prófastsins séra Hálfdáns heitins Ilelgasonar. Þótt því marki væri náð, að geta hafið reksturinn, var þetta þó aðeins upphafið að byggingarframkvæmdum Reykjalund- ar. Veturinn 1945 voru seinni 5 smáhýsin tekin í notkun og um vorið var hafin bygg- ing starfsmannabústaðar og 11. smáhýsis- ins. Auk þess hófst nú gatnagerð og ýmis- konar lagfæring landsins, sem var þó mikl- um annmörkum háð, vegna braggarúst- anna. 1946, 2. apríl, hófst bygging aðalhúss Vinnuheimilisins, stærð og gerð hefir áður verið' getið um. A þeim tíma var enn mjög erfitt um efni og vinnuafl, þar við bættist, að SÍBS átti aðeins 5000 kr. í sjóði, er bygging þessa stórhýsis hófst. Bygging aðalhússins er mesta átak SIBS í bvgging- armálum. 6 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.