Reykjalundur - 01.06.1954, Qupperneq 20

Reykjalundur - 01.06.1954, Qupperneq 20
Marteinsklæðið í Cluny er annað stærst íslenzkra altarisklæða, og má því ætla að það hafi verið’ fyrir háaltari í fremur stórri kirkju. Myndreitimir eru r-2, í þremur riið- um, og er saga hans sögð í sömu röð og þegar skrifað er á hók. Enda þótt lesendur mínir séu kannski lúterskir trúvillingar og heilögum Mar- teini lítt að skapi, getur það samt orðið þeim til nokkurrar sáluhjálpar að lesa sögu hans á þessu fornhelga klæði. Hver veit, nema það sé einmitt formóðir einhvers þeirra, sem hafi ort það í höndunum guði sínum til dýrðar endur fvrir löngu. Saga heilags Marteins hefst einn frost- kaldan morgun um vetur. Hann ríður út um borgarhliðið, þar sem klæðlausir bein- ingarmenn standa í hópum, og hefur suma kalið um nóttina. Þeir beiddu vegfarendur ásjár, en enginn rétti þeim hjálparhönd. Og þegar nú Marteinn ríður þarna um, gengur einn beiningarmannanna í veg fyrir hann og biður gefa sér klæði. „En hvað mátti hann gefa, — eins og stendur í fornri sögu Marteins, — þar sem hann hafði ekki nema klæði þau, er hann stóð í. því hann hafði veitt allt annað aumum mönnum. Þá brá hann sverð'i því er hann var gyrður, og reist í sundur möttul sinn í miðju og gaf hálfan þurfamanninum, en hálfan skrýddi liann sig.“ Það' er þessi atburður, sem við sjáum á fyrstu mynd klæðisins. Mér hefur nú satt að segja alltaf fundizt það hálf kurfslegt af heilögum Marteini að vera að evðileggja möttulinn í stað þess að gefa manninum hann allan. Eitthvað hefur þetta að minnsta kosti fengið á hann, því hina næstu nótt finnst honum Kristur koma til sín, klæddur möttulshelmingnum, og segja við englana sem með honum voru: „Martinus, prímsigndur, aðeins skiýddi mig þessu klæði.“ A myndinni sjáum við Martein rísa upp í lokrekkju sinni og fórna höndum, en til fóta hangir skjaldarmerki hans með liljunni frönsku. Yfir særigur- himninum er Kristur með möttulshlutinn vl'ir herðarnar, en til beggja handa við hann eru englahöfuð með rauða bletti i kinnum. Himneskar englameyjar héldu sér talsvert til í þá daga, ekki síður en þær jarðnesku nú! Hvort sem Marteinn hefur nú lagt réttan skilning í orð Herrans eða ekki, þá áleit hann þau vera áminningu til sín, að hann léti skíra sig almennilegri skírn. A næstu mynd sjáum við hann því ofan í djúpum skírnarsá, og er meira að segja búinn að fá geislabaug strax. (Það er eins og örlætið’ hafi ekki verið of mikið í ])á tíðina.) Við hlið hans stendur lderkur í hvítum skrúða, en hönd guðs kemur af hiranum og bendir á Martein. Turnbvgg- ingarnar til beggja handa sýna okkur að atburðurinn gerist í kirkju. Hann var 18 vetra þegar liann tók skírn, segir sagan. TJpp frá þessu færist Marteinn allur í aukana. Hann klæðist svörtum munka- kufli, snýr mönnum til réttrar trúar og skírir. Svo er það einn dag, að til hans kem- ur prímsigndur maður að hevra kenningar lians. En eftir nokkra daga tók maður þessi rið’usótt og varð bráðkvaddur áður en nokkurri skírn yrði komið við. Marteinn kunni auðvitað ekki við að lát.a manninn fara út í einhverja óvissu, því prímsigning er eiginlega hvorki hálf kaka né heil. Því sagði hann mönnum að fara út frá líkinu og lagðist á bæn. Og sjáum til! Eftir tvær stundir reis sá framliðni upp við dogg, og undruðust menn stórlega guð'dómsmátt heilags Marteins. Svo hefur hann eflaust skírt manninn í snatri. Fjórða mvndin sýnir okkur einmitt þennan atburð. Þetta virðist vera ungur og hárprúður maður, og enn sjáum við hönd guðs niður úr skýj- unum. Það er a.lltaf sama sagan, þegar þeir lieil- ögu fá æfingu í að reisa menn upp frá dauð- um. Þá er tæpast að menn fái lengur að 18 ItEYK.JAT.rXDUH
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.