Reykjalundur - 01.06.1954, Page 36

Reykjalundur - 01.06.1954, Page 36
Fulltríiar á 9. Jringi S.I.fí.S. minnast 10 ára byggingarafmœlis Reykjalundar. en ekki eru tök á að rekja efni þeirra hér. Þingið samþykkti, að sambandsstjórnin ynni að eftirfarandi málum: Geri allt, sem unnt er til að framkvæmdum að Keykja- lundi verði að mestu lokið innan 4—5 ára, — auki tekjur Hlífarsjóðs, — athugi mögu- leika á byggingu verkstjóraíbúðar fyrir Vinnustofur S.Í.B.S. að Ivristnesi, — at- hugi möguleika á húsakaupum fyrir starf- semi sambandsins, — ha.fi sem nánast sam- starf við deildir sambandsins og auki áhuga félagsmanna fyrir eflingu Vöruhappdrætt- isins, — bjóði árlega, ef fært þykir, 20—30 meðlimum félagsdeildanna til vikudvalar að Reykjalundi og verði þar þá flutt fræðsluerindi um störf S.Í.B.S. og félags- mál almennt, — safni skýrslum um hús- næðismál berklasjúklinga og veiti þeim þá aðstoð, sem skrifstofa sambandsins getur í té látið, — beiti sér fyrir því, að félags- deildirnar stofni til handíða og listmuna- sýningar í Reykjavík haustið 1955, — ger- ist aðili að stofnun landssambands öryrkja, telji hún það horfa til þjóðarheilla, — komi fram æskilegum breytingum á lögunum um alþýðutryggingar, þegar þau verða endur- skoðuð, — freisti þess, að fá einhverju áorkað varðandi húsnæðismál Vífilsstaða í samráði við yfirlækni staðarins, — athugi möguleika á útgáfu félagsblaðs. Ymsar aðrar tillögur koniu fram á þing- inu og hlutu samþykki þess, en efni þeirra verður ekki rakið hér. Ur sambandsstjórn gengu Björn Gnð- 34 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.