Reykjalundur - 01.06.1954, Page 38
Árni úr Eyjum:
SPJALL
um kurteisi, landhelgismál, feguiáarsamheppni
o.fl.
Heyrðu manni;
— allt í ganni!
Virðulegur borgari fetar fáfarið stræti í
kvöldblíðunni, sæll og ánægður með tilver-
una. Hann er kannske að hugsa um hag-
stæða afkomu fyrirtækisins og höfuð hans
fullt af skemmtilegum tölum. Nema hann
sé að' velta vöngum vfir elskunni sinni —
þegar allt í einu er hrópað hvellum rómi
fyrir aftan hann: - Heyrðu,
manni! Hann hrekkur upp
úr hugleiðingur sínum, lít-
ur snöggt við og sér skælbrosandi smá-
gutta, freknóttan, sem kallar til viðbótar:
— Allt í ganni! — og er þar með horfinn
fyrir horn. Maðurinn hefur misst þráðinn
og um leið góða skapið.
Já, það er víst von, að kvartað' sé vfir
ókurteisi barna, enda gert, bæði í ræðu og
riti. Og' satt er það: börn geta verið nötur-
lega ókurteis við fullorðið fólk — og ekki
bót mælandi. En stundum er fullorðið fólk
ókurteist við börn — og ekkert um það
rætt né ritað'. Hvernig væri, að vér, hinir
fullorðnu, reyndum að ganga á undan með
góðu eftirdæmi, reyndum að halda virðu-
leik vorum gagnvart börnunum og gættum
þess ávallt að sýna þeim ful'la kurteisi? Það
er til lítils að fjargviðrast yfir óknyttum
þeirra og ósiðum. Nær væri oss að athuga
vorn gang. Ljóst verður við' slíka athugun,
að fullorðnir gera sér að féþúfu að selja
börnum og unglingum skemmtanir og af-
þreyingu ýmiskonar, sem ldýtur að miða
Kvikmyndir, saka
mólarit, sjoppur
o. fl.: verzlunar-
vara til afsiðunar.
beint til afsiðunar. Kvik-
myndaflóðið — ýmist ó-
merkilegt rusl eða æsandi
slagsmála- og manndrápa-
myndir, sakamálarit, mor-
andi í morðum og kynferðisglæpum, hazar-
blöð á svörtum markaði, sjoppur o. s. frv.
— allt er þetta verzlunarvara til afsiðunar
og spillingar.
Því ber sannarlega að þakka það, sem
gert er fyrir börnin til þess að vinna gegn
spillingaröflunum. Má t. d. nefna starfsemi
skólagarða, unglingavinnu á sjó og landi.
músíkfræðslu (t. d. starfsemi Laugarness-
skólans í þá átt og félagið „Tslenzk tónlist-
aræska“), íþrótta- og skátahrevfingu o. s.
frv. — Þetta- miðar allt til góð's, en burt
með spillinguna sem verzlunarvöru. Gerum
vort til að auka þroska og
manndóm æskunnar — og,
gott fólk, verum kurteis við
börnin, þá fer va-rla hjá því, að þau verði
líka kurteis við oss, varla að öðrum kosti.
Vel á minnst, kurteisi: Danir eru kurteist
fólk og vel siðað. Margt höfum vér fengið
frá Dönum, fyrr og síðar, bæði ætt og óætt,
og mikið fannst manni gaman að familí-
sjónal, þegar maður var ungur — en þrátt
fyrir það hefur þessari ágætu frændþjóð
vorri ennþá sézt yfir þá sjálfsögðu kurteisi
að skila oss aftur handritunum að gullald-
arbókmenntum vorum.
Verum kurteis við
börnin.
3«
REYK.JALUNDUR