Reykjalundur - 01.06.1954, Qupperneq 43

Reykjalundur - 01.06.1954, Qupperneq 43
landi. í þeim í'lóðum fórust lóO manits, en ank þess varð gífurlegt tjón á mannvirkj- um. Þar liafa þó orðið stærri slys af snjó- flóðum. Það mesta, er sögur fara af, varð árið l!)l(i — 13. desember, þegar rúmlega 9000 austurrískir og ungverskir hermenn fórust undir hundruðum smálesta af snjó. Snjóflóð geta steypzt niður með allt að' 150 km hraða á klukkustund og áætlað hefir verið að í sumum þeirra hafi verið allt að 5 miilj. smálesta af snjó. Þegar ógnandi snjóhengjur hafa mynd- azt í fjallahlíðum svissnesku Alpanna, læð- ast íbúarnir áfram, kirkjuklukkurnar hljóðna, dyrum er lokað með hægð og þar, sem hættan er mest, er skíðamönnum bannað að slá skíðunum saman, til að ná af þeim snjónum. Hægur vindblær nægir stundum tii að koma snjófloðinu af stað. I skýrslum um orsakir snjóflóða er talið. að hljómar frá cello hafi einu sinni sett skriðuna af stað, ef til vill er það ástæðan til þess hversu fáir eelloleikarar fyrirfinnast í Sviss. Hættan, sem af snjóflóðum stafar, nær langt út fyrir farveg þeii'ra. Um leið og þau steypast niður, myndast stormsveipir svo ofsalegir að hús fjúka af grunni og tré slitna upp með rótmn hundruð metra utan skrið- unnar. Einn slílcur stormsveipur feykti langferðavagni af brú i Arlberg skarði, í Austurríki í desember 1952 og fórust þar tuttugu og þrír brezkir skíðamenn. A síðari tímum, hafa handsprengjur og fallbyssukúlur verið mikið notaðar til að hleypa snjóflóðunum af stað og beina þeim í þær áttir, sem heppilegastar teljast. I síð- asta stríði var svissneski herinn látinn æfa sig í að koma af stað snjóflóðum í varnar- skyni, og síðan er hermönnum kennt að synda einskonar baksund í ilóð'unum. Árið 1952 runnu sex menn rúma tvö hundruð metra með mjúkri snjóskriðu á þennan hátt og sluppu ómeiddir. Hér á landi hafa snjóflóð oft valdið stór- tjóni. Bændabýli hafa skyndilega graí'izt í snjó og heimilismenn ýmist farizt, eða bjargazt við illan leik. Ferðamenn hafa einnig oft lent undir hengjum, sein sprungið hafa fram, er þeir áttu leið undir bröttum fjallahlíðum. Fyrir mörgum árum var maður að huga að kindum norður í Strandasýslu. Skyndi- lega sprakk hengja undan fótum hans, og hann rann með henni niður snarbratta fjallshlíðina. Af tilviljun hafði hann ekki grafizt í snjóiim, en föt hans voru ýmist týnd eða sundurtætt. Hann stóð upp, hélt heimleiðis og taldi sig ómeiddan með öllu. En þegar heim kom, komst hann að raun um að höfuðleðrið hafði rifnað frá hvirfli að eyra öðrum megin og heyrn á því eyranu var horfin með ölln. I augum þessa gamla bónda er fjallið mikið og fagurt, og honum jafn hjartfólgið, þótt hann hafi fórnað' því hálfri heyrn sinni. Og þannig fer þeim þjóðum, sem í fjall- lendi búa. Tign og ró tindanna binda þær átthagaböndum, er aldrei slitna, hversu mikilla fórna, sem þeir kreíjast. Ráðningar á krossgátu: Lnrétt: 1. krafs — 4. auður — 7. lausn — 9. sólskin — 11. asa — 13. tau — 14. ámur — 16. refti — 18. ræður — 20. kná — 21. tug — 22. stara — 24. tugga — 26. tað' — 27. kær — 29. rak — 30. amasama — 33. árana — 34. rausn — 35. arkar. Lóðrétt: 1. kjóar — 2. fló — salti — 4. askur — 5. uni — 6. refur — 8. USA — 9 safnaða — 10. náðugra — 12. sekta — 15. mugga — 17. tár — 19 æta — 22. staur — 23. akarn — 24. trana — 25. akrar 28. æsa — 31. más — 32. mar. REYKJALUNDUIt 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.