UTBlaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 15

UTBlaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 15
UTBLAÐIÐ | 15 „Við hófum útrásina löngu áður en það hugtak komst í tísku í ís- lensku atvinnulífi með því að fara að vinna fyrir Gulf Air í Bahrain 1984. Stærsta einstaka verkefnið var svo þegar Hugbúnaður gerðist undirverktaki í Kanada við gerð flugumsjónarkerfis fyrir íslenska flugstjórnarsvæðið. Draumurinn var samt alltaf að búa til virkilega útflutningsvöru, forrit sem myndi seljast í stórum stíl um allan heim. Hann varð að veruleika 1991 þeg- ar við byrjuðum að flytja út sam- skiptaforritið HBX-PAD. Það seld- ist í nokkrum þúsundum eintaka í að minnsta kosti 60 löndum og kaupendur voru meðal annarra stórir alþjóðlegir bankar og fjöl- þjóðafyrirtæki.“ segir Sigurður Elí- as Hjaltason, stjórnarformaður Hugbúnaðar hf. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í Kópavogi en hefur 90% tekna sinna af starfsemi erlendis. Ráðamenn Hugbúnaðar not- uðu drjúgan hluta hagnaðar af sölu samskiptaforritsins góða í þróunarvinnu og til varð verslun- arkassakerfið Ebeneser sem náði útbreiðslu hérlendis og erlendis. Tekjur af þeirri sölu voru meðal annars notaðar til að þróa tvö önnur verslunarkerfi (Centara(tm) og CenTux(tm)) og ýmis stoðkerfi tengd þeim. Nú er svo komið tug- ir þúsunda verslunarkerfa Hug- búnaðar eru í notkun í 30 löndum um víða veröld og kerfin bara seljast og seljast! Það þurfti mikla þrautseigju til að koma mönnum á bragðið en nú mæla kerfin ein- faldlega með sér sjálf, segir Sig- urður Elías. „Við komum okkar fyrst á framfæri í litlum verslunum, síðan stærri, svo keðjum tíu verslana og koll af kolli. Núna er stærsti ein- staki viðskiptavinur okkar, erlend verslunarkeðja, handhafi 15.000 kerfisleyfa frá okkur og það er varla til sá verslunarrekandi á Vesturlöndum sem ekki þekkir okkur af eigin raun eða afspurn. Við getum bankað á dyr hvar sem við viljum, ef við höfum á annað borð innlendan aðila til að annast þjónustu á staðnum.“ Betri sölumenn hugbúnaðar en hlutabréfa! Hugbúnaðarmenn byggja sem sagt fyrirtækið sitt upp af innra fé og láta eitt leiða af öðru. Þrónuar- kostnaður er jafnan mjög mikill og tekjur skila sér ekki fyrr en ný vara er tilbúin og markaðsstarf skilar árangri. Tekjur af sölu pakkavöru eru þar að auki sveiflukenndar en þrátt fyrir allt þetta hefur hagnaður Hugbúnaðar á einu ári í tvígang verið meiri en velta fyrirtækisins árið áður. Og eins og nærri má geta skiptir gengi íslenskrar krónu miklu máli fyrir reksturinn þegar horft er til þess að tekjurnar verða til að mestu erlendis en stærstur hluti útgjalda fellur til hér heima. „Það er oft erfitt að fá fjárfesta til að öðlast trú á því sem við erum að fást við. Þegar Internet- bólan var sem stærst vildum við ekki lofa fjárfestum meiri arði en við töldum okkur geta staðið við. Reyndin varð því sú að ýmsir aðr- ir í hugbúnaðargeiranum þóttust geta skapað meiri arð en við töld- um raunhæft og því trúðu fjárfest- ar. Eftir að blaðran sprakk var hugtakið hugbúnaðarfyrirtæki nánast bannorð í fjárfestingageir- anum í langan tíma og fyrirtæki okkar lenti óverðskuldað á svört- um lista með öllum hinum. Okkur hefur nefnilega alltaf gengið betur að selja vörur en hlutabréf, ólíkt sumum öðrum fyrirtækjum!“ segir framkvæmdastjóri Hugbúnaðar hf. „Við getum þakkað þolinmæði viðskiptabanka okkar að það tókst að stýra fyrirtækinu fram hjá skerjum þegar þróunarkostnaður var að sliga það. Árangur mark- aðsstarfsins lét á sér standa og þá reyndi á. En við komumst yfir erf- iðasta hjallann, viðskiptavinum fjölgaði og nú stöndum við á traustum tekjugrunni með vöru sem selst vel og líkar vel. Þarf að biðja um meira en ánægða viðskiptavini?“ Seiglan færði Hugbúnaði heimsmarkaðinn  Sigurður Elías Hjaltason, stjórnarformaður Hugbúnaðar hf.

x

UTBlaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: UTBlaðið
https://timarit.is/publication/1121

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.