UTBlaðið - 20.01.2006, Side 16
16 | UTBLAÐIÐ
Hver vill ekki hafa allar heimsins
upplýsingar aðgengilegar frá skrif-
borðinu sínu? Netið er miðillinn
sem allir sækja í og því mikilvægt
fyrir okkur Íslendinga að menn-
ingararfurinn okkar sé líka að-
gengilegur á Netinu með öllu
hinu sem þar er að finna. Lands-
bókasafn Íslands-Háskólabóka-
safn hefur að undanförnu unnið
markvisst að því að koma íslensk-
um menningararfi í stafrænt form
og gera hann aðgengilegan utan
veggja safnsins. Safnið hefur skil-
greint sig sem þekkingarveitu og
mikilvægur þáttur í þeirri stefnu
er að gera íslenskt efni aðgengi-
legt á Vefnum. Þróun stafræns
þjóðbókasafns er mikið verkefni
og talsvert góður grunnur hefur
orðið til á nokkrum árum. Hið
eina sem notandinn þarf er
nettengd tölva og síðan á leiðin
að liggja á nýjan vef Landsbóka-
safnsins www.bok.hi.is sem
geymir lykilinn að allri þeirri
þekkingu sem komin er í stafrænt
form.
Á vef Landsbókasafns er nú
þegar meira en ein milljón síðna
aðgengileg í stafrænu formi. Þar
má nefna efni sem tengist Íslend-
ingasögum, bæði handritum og
prentuðu efni, á vef sem kallast
Sagnanetið http://www.sagna-
net.is. 350 forn kort má finna á
vefnum http://kort.bok.hi.is/. Inn-
an skamms verða öll blöð og
tímarit, sem komið hafa út á ís-
lensku fyrir árið 1920, komin á
vefinn http://timarit.is. Talsvert af
handritum og gömlum íslenskum
bókum, sem eru óðum að slitna
og verða úr sér gengnar af mikilli
notkun í safninu, hafa einnig
ratað á Vefinn. Nú má spyrja af
hverju safnið takmarki sig við
svona gamalt efni. Við því er ein-
falt svar: Safnið má ekki setja efni
á Vefinn nema eigendur höfund-
arréttar veiti heimild til þess. Und-
antekningin er Morgunblaðið sem
hefur gert samning við safnið um
að mynda allt blaðið og er ætlun-
in að allt Morgunblaðið frá 1913-
2000 verði komið á Vefinn á
þessu ári. Við myndvinnslu á
texta er beitt tækni sem kölluð er
ljóskennsl. Hún gerir texta í staf-
rænum myndum leitarhæfan og
þannig er hægt að leita eftir orð-
um og orðahlutum, sem auðveld-
ar mjög alla notkun efnisins.
Vefir afritaðir og varðveittir
Enn eitt spennandi verkefni sem
safnið vinnur að er söfnun á ís-
lenska vefnum. Landsbókasafn af-
ritar öll íslensk lén þrisvar á ári og
efnið sem þannig safnast er varð-
veitt á Landsbókasafni til síðari
tíma notkunar. Nokkrir vefir
verða afritaðir oftar, einkum þeir
sem breytast oft, svo sem frétta-
vefir. Í vor verður farið að safna
efni sem snertir afmarkaða efnis-
flokka og verður byrjað með því
að þaulsafna efni sem tengist
sveitarstjórnarkosningunum.
Hvað svo? Það er markmið
safnisins að koma á fót íslensku
stafrænu þjóðbókasafni sem er
opið öllum heiminum gegnum
Netið. Með einni leitargátt á vef-
svæði safnsins verður hægt að fá
upplýsingar um hvaðeina sem
hefur verið skrifað á íslensku um
hvert viðfangsefni, t.d. byggðar-
lag, einstakling eða hvert það
málefni sem ber á góma í umræð-
unni. Allt á þetta að verða leitar-
hæft með einni samhæfðri leit.
Bækur, tímarit og prentað efni er
í vinnslu en annað efni, svo sem
hljóð og myndir, ætti einnig
heima í þessu stafræna þjóðbóka-
safni.
Lýst eftir styrktaraðilum!
Landsbókasafn hefur unnið þessi
verkefni að mestu leyti fyrir styrki
og nú er mikill áhugi á að koma
upp annarri vinnslulínu fyrir staf-
ræna eftirgerð utan Reykjavíkur,
til dæmis á Akureyri. Það efni
sem mest þykir vanta í stafræna
þjóðbókasafnið eru gömlu dag-
blöðin: Tíminn, Alþýðublaðið,
Þjóðviljinn og Dagur við hlið
Morgunblaðsins. Okkur vantar
styrktaraðila sem tækju að sér að
kosta myndun á ofangreindum
blöðum og einnig á landsmála-
blöðunum, bæði gömlum og nýj-
um, sem geyma mikilvægar upp-
lýsingar um byggðir landsins.
Landsbókasafn Íslands-Há-
skólabókasafn er ein mikilvægasta
þekkingarveita landsins. Þar er
tæknin og þekkingin til staðar til
að gera Ísland að fyrsta landi í
heimi sem hefur komið öllu sínu
eldra menningarefni í stafrænt
form og gert það aðgengilegt um
veraldarvefinn. Þetta er hægt - en
aðeins með auknum stuðningi við
verkið.
Með Bókhlöðuna á borðinu hjá þér
– eftir dr. Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, landsbókavörð
Virkjum alla - rafrænt samfélag er
þriggja ára átaksverkefni Húsavík-
urbæjar, Aðaldælahrepps og Þing-
eyjarsveitar sem hlaut styrk frá
Byggðastofnun árið 2004. Aðal-
samstarfsaðilar eru Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga og Sparisjóður
Suður-Þingeyinga, ásamt ANZA hf
sem er helsti tæknilegi lausnarað-
ili verkefnisins, Idega og Auð-
kenni ehf. Markmið verkefnisins
er tvíþætt; annars vegar að auka
þekkingu íbúa á upplýsingatækni
með fjölbreyttu úrvali tölvunám-
skeiða, hins vegar að færa þjón-
ustu sveitarfélagana í rafrænt form
og gera íbúum þannig kleift að
sinna erindum sínum á þjónustu-
torgum sem opnuð verða á vef-
síðunni: www.skjalfandi.is. Verk-
efnið skiptist í nokkra þætti sem
miða allir að markvissri uppbygg-
ingu hins rafræna samfélags. Settir
voru á laggir vinnuhópar um ein-
staka verkþætti. Þar störfuðu yfir
sextíu manns og skiluðu þeir nið-
urstöðum sem notaðar voru við
skipulagningu á þjónustu veftorg-
anna.
Helstu þættir verkefnisins Virkj-
um alla Fjarskipti og tæknileg
grunngerð
Möguleikar til nettenginga eru
ákaflega misjafnir í Þingeyjarsýslu
og hallar þar mjög á fyrir þá sem
búa utan þéttbýliskjarna. Við gerð
verkáætlunar Virkjum alla var gert
ráð fyrir að öll heimili landsins
gætu fengið ISDN tengingu en all-
ir vita að sú þjónusta dugar
skammt. Ein af megináherslum
Virkjum alla er því að þrýsta á
fjarskiptafyrirtæki og stjórnvöld að
sinna uppbyggingu fjarskiptaþjón-
ustu. Tækniþróunin hefur gert
þjónustufyrirtækjum kleift að
bjóða ódýrari lausnir en áður og
hefur eMax riðið þar á vaðið á
verkefnasvæðinu. Þá gerði verk-
efnisstjórn nýlega samstarfssamn-
ing við Símann um tilraunir með
þráðlaust netsamband með nýrri
tækni sem kallast WiMax.
Fræðsla og þekking
Stefnt er að því að uppræta
hræðslu og kunnáttuleysi og gefa
íbúum tækifæri til þess að nýta
kosti upplýsingatækninnar sér og
sínum til framdráttar. Virkjum alla
hefur skipulagt fræðsludagskrá í
samráði við Fræðslumiðstöð Þing-
eyinga sem tók að sér umsjón
með tölvunámskeiðum fyrir íbúa.
Eldri kynslóðin fær sérstaka að-
stoð frá nemendum í grunnskól-
unum í héraðinu, á námskeiðum
sem kallast „Kynslóðabrúin“. Þar
snýst hlutverkaskipanin við og
yngri kynslóðin leiðbeinir þeim
eldri við að læra á tölvuna og rata
um Netið. Þá munu íbúar hafa að-
gang að fjarnámi með gagnvirku
kennsluefni um tölvunotkun á
Fræðslutorgi, þar sem leitast er
við að gera námið áhugavert og
skemmtilegt. Stuðst var við
vefnámskeið hannað af Mennta-
smiðju kvenna og spannar það
allar helstu aðgerðir sem tölvu-
notendur þurfa að kunna skil á,
ásamt þjálfun í notkun Netsins við
að rata um völundarhús Veraldar-
vefsins.
Virkjum alla keypti tíu fartölvur
sem fluttar eru á milli staða í sér-
stökum ferðakössum og segja má
að nú sé hægt að halda námskeið
við kertaljós útí sveit ef þurfa
þykir! Fræðslumiðstöðin mun
bjóða stéttarfélögum, félagasam-
tökum og öðrum áhugasömum að
nota tövukennsluverið til að halda
kynningar á áhugaverðum vefsíð-
um með upplýsingum og þjón-
ustu í tengslum við áhugamál
og/eða atvinnugreinar.
Rafræn þjónusta
Fimm þjónustutorg verða opnuð á
www.skjalfandi.is:
• Skjálfandatorg opnar fólki að-
gang að þjónustu, fróðleik og
afþreyingu sem í boði verður á
hinum veftorgunum. Skjálfanda-
torg er þannig rafræn ásýnd
byggðarlagsins sem kappkostað
verður við að halda lifandi og
ferskri, til dæmis með fréttum af
framgangi verkefnisins.
• Íbúatorg er sameiginlegur vett-
vangur sveitarfélaganna, ríkis-
ins, þjónustustofnana og fyrir-
tækja sem veita íbúum aðgang
að stjórnsýslusviðum, upplýs-
ingum og gagnvirkri þjónustu
með einföldum hætti. Íbúatorg-
ið er einnig vettvangur fyrir lýð-
ræðislega umræðu, s.s. með
opnu samskiptatorgi og við-
horfskönnunum um ýmis mál-
efni sem snerta byggðarlagið.
Notendur Íbúatorgs munu skrá
sig inn í upphafi og fá sent lyk-
ilorð sem gefur þeim aðgang að
margvíslegri þjónustu sem spar-
ar bæði tíma og fyrirhöfn.
Einnig munu íbúar geta átt sam-
skipti við þjónustufulltrúa á
skrifstofu síns sveitarfélags og
fengið svör við fyrirspurnum.
• Fræðslutorg miðlar upplýsing-
um um námskeið í boði Virkj-
um alla og Fræþings og um
fræðsluviðburði sem á döfinni
eru á verkefnasvæðinu, auk
hagnýts fróðleiks um nám yfir-
leitt.
• Sparitorgi er ætlað að efla íbúa
til góðrar fjármálastjórnunar í
heimilis- og fyrirtækjabókhald-
inu með því að auka við þjón-
ustu sem þeim stendur til boða
í heimabönkum. Lögð verður
áhersla á fræðslu og fólki lögð
til ýmis verkfæri sem auðvelda
því að skipuleggja útgjöld sín
og sparnað.
• Heilsutorg verður lykill að betri
heilbrigðisþjónustu með nýjum
samskiptaleiðum til að auð-
velda aðgengi íbúa að heilsu-
gæsluþjónustu og miðla upplýs-
ingum um heilbrigt líferni Í
upphafi verður lögð áhersla á
ráðgjöf fyrir þá sem hætta að
reykja og síðar verður fjallað
offitu, sykursýki, áfengisneyslu
og fleira. Þá mun Heilbrigðis-
stofnunin starfrækja nýtt rafrænt
tímabókunarkerfi heimilislækna
á Heilsutorgi, sem er fyrsta sitt
tegundar á landinu. Miklar von-
ir eru bundnar við þróun þess-
ara lausna í samstarfi við Theri-
ak og TM Software á Akureyri.
Þá er stefnt að opnun rafræns
markaðstorgs sem hefur það
markmið að auka samkeppnis-
hæfni fyrirtækja og stofnana sem
vilja nýta sér upplýsingatæknina
til aukinnar markaðssóknar
og/eða auka rekstrarhagræðingu.
Rannsóknir á samfélaginu
Mikil áhersla verður lögð á rann-
sóknir á áhrifum verkefnisins á
samfélagið svo hægt sé að meta
hvaða áhrif aukin notkun upplýs-
ingatækninnar hefur á íbúa, fyrir-
tækjarekstur og þjónustu opin-
berra stofnana.
Skjálfandi í faðmi þekkingar
– eftir Susan Martin, verkefnisstjóra Virkjum alla
Húsavík.