UTBlaðið - 20.01.2006, Page 22
22 | UTBLAÐIÐ
Árið 2004 lauk samstarfsverkefni
nokkurra ríkisstofnana og fyrir-
tækja í einkaeigu um frumgerð að
tölvukerfi sem nefndist „Sam-
ræmdur gagnagrunnur um náttúru
Íslands“, eða Náttúruvefsjá í dag-
legu tali. Verkefnið hlaut í upp-
hafi RANNÍS- styrk árið 1999 og
var hann síðar framlengdur. Þessi
frumgerð sýndi að hægt væri að
birta fjölbreytt gögn um eðli ís-
lenskrar náttúru á landi, sjó og
vatni í margmiðlunarviðmóti á
Vefnum og var þar bæði miðað
við þarfir almennings og sérfræð-
inga. Kerfið var smíðað með það
fyrir augum að opinberar stofnan-
ir gætu miðlað gögnum í al-
mannaeigu sem víðast um samfé-
lagið í anda þeirrar upplýsinga-
stefnu sem stjórnvöld hafa mark-
að.
Verkefnið um gagnagrunn um
náttúru Íslands snerist um að þróa
og þaulreyna frumgerð að sam-
ræmdum, dreifðum gagnagrunni,
og reyndist ómetanlegt öllum
samstarfsaðilum við framþróun
gagna- og upplýsingamála. Meðal
stofnana sem nutu góðs af verk-
efninu má sérstaklega nefna
Orkustofnun, sem í framhaldi af
þessu verkefni, og að hluta sam-
hliða því, kom sér upp öflugri
Gagnavefsjá í samvinnu við Ís-
lenskar orkurannsóknir.
Hún er aðgengileg á íslensku
og ensku á heimasíðunni
http://www.gagnavefsja.is og frá
heimasíðum stofnananna.
Gögn í hálfa öld
Gagnavefsjá veitir aðgang að
gögnum um náttúru og auðlindir
Íslands sem Orkustofnun og Ís-
lenskar orkurannsóknir (ÍSOR)
hafa safnað í yfir 50 ár. Allt frá ár-
inu 1989 hefur verið unnið að því
að vista gögnin í gagnagrunni og
gera þau þannig aðgengileg sér-
fræðingum sem vinna á þessum
stofnunum. Með tilkomu hugbún-
aðar sem gerir gögn aðgengileg á
landfræðilegan hátt um Vefinn var
árið 2003 hafist handa við að
hanna Gagnavefsjá og var verk-
efnið að hluta fjármagnað með
styrk frá fjármálaráðuneytinu til
að efla íslenska upplýsingasamfé-
lagið. Gagnavefsjáin var síðan
formlega opnuð af iðnaðarráð-
herra á ársfundi Orkustofnunar
24. mars 2004. Síðla árs 2005
hófst svo samstarf á þessu sviði
við Umhverfisstofnun (UST).
Með Gagnavefsjá er hægt að
nálgast upplýsingar á kortagrunni
sem varða rannsóknir á vatnafari
landsins, jarðfræði, jarðhita, orku-
notkun og náttúruvernd og jafn-
framt ýmis staðfræðigögn, svo
sem vegi og hæðarlínur. Hægt er
að leita í og teikna upp landfræði-
lega dreifingu mismunandi gagna-
hópa og setja hin ýmsu gögn í
mismunandi samhengi. Þannig er
hægt að nálgast skýrslur sem
Orkustofnun og ÍSOR hafa gefið
út á pdf-formi, nokkuð af ljós-
myndum, dýptarkortum stöðu-
vatna og ótal margt annað. Gögn-
in birtast á hæðarlínu- og vatna-
grunni Landmælinga Íslands.
Mest af þeim upplýsingunum
sem aðgengilegar eru um Gagna-
vefsjá eru gögn í opinberri eigu
eða hefur verið aflað fyrir ríkis-
framlög en nokkuð af gögnum
eru í eigu orkufyrirtækja og ann-
arra, og eru þau birt í Gagnavefsjá
með góðfúslegu leyfi þeirra. Á
upphafssíðu Gagnavefsjár er hægt
að skoða uppruna og heimildir
mismunandi gagnaflokka og þar
er einnig tekið fram ef frekari
notkun eða tilvísun í upplýsingar
er háð leyfi þeirra sem til hafa
kostað.
Fyrir almenning og sérfræðinga
Annars vegar veitir Gagnavefsjá
sérfræðingum sem vinna að rann-
sóknar- og eftirlitsstörfum hjá
Orkustofnun, ÍSOR og Umhverfis-
stofnun auðveldari yfirsýn og að-
gengi að gögnum og hins vegar
er Gagnavefsjá ætlað að gefa al-
menningi kost á að nálgast ýmsar
áhugaverðar upplýsingar um nátt-
úru og auðlindir landsins. Gagna-
vefsjá hefur og mun í framtíðinni
stuðla að opnu vísindasamfélagi á
Íslandi þar sem stofnanir og fyrir-
tæki fá aðgang að gögnum hvers
annars. Dæmi um þetta er sam-
vinna við Lagnaval (www.lagna-
val.is), Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og Veðurstofu Íslands.
Vonast er til að Gagnavefsjá
eigi eftir að nýtast nemendum
grunnskóla, framhaldsskóla og
háskóla.
Ávinningurinn af verkefninu
hefur helst komið fram sem mikill
hvati til að gera meira af gögnum
Orkustofnunar, ÍSOR og Umhverf-
isstofnunar aðgengileg á korta-
grunni á skipulegan hátt. Einnig
hefur það stuðlað að beinu sam-
starfi stofnana. Verkefnið hefur
verið kynnt innanlands og utan
og hefur í kjölfarið orðið vakning
í þessum efnum hjá sambærileg-
um opinberum þjónustu- og rann-
sóknaraðilum. Einnig hefur aukist
skilningur á mikilvægi þess að
gera gögn og upplýsingar að-
gengileg og hvernig slík birting
gagna hefur vakið athygli á stofn-
ununum og bætt ímynd þeirra. Á
síðastliðnu ári var Gagnavefsjá
valin fulltrúi Íslands, í flokki vís-
inda, í landskeppni nýmiðlunar-
keppni Sameinuðu Þjóðanna
(World Summit Award). Sam-
keppnin var skipulögð undir
merkjum leiðtogafundar Samein-
uðu Þjóðanna um upplýsingasam-
félagið með það að markmiði að
brúa bilið milli þeirra þjóða sem
skammt og langt eru komnar með
að notfæra sér upplýsingatækni.
Það er við hæfi á UT-degi hins
opinbera að stíga fram fyrir
skjöldu og bjóða stjórnendum op-
inberra stofnana að spara sér allt
að 20% af rekstrarkostnaðar við
upplýsingatækni með útvistun
UT-verkefna til einkaaðila. Slíkt
hagræði í rekstri hins opinbera
myndi jafnframt fjölga til muna
störfum í hátækniiðnaði og auka
jafnt vöxt sem velgengni íslenskra
UT-fyrirtækja.
Ríkisvæðing upplýsingatækni
Hið opinbera hefur á undanförn-
um 10 árum hætt beinum afskipt-
um af rekstri fyrirtækja í flestum
atvinnugreinum. Þar má nefna
byggingariðnað, fjarskipti, fjár-
málaviðskipti og sjávarútveg.
Þessi einkavæðing fyrirtækja og
viðfangsefna ríkisins, ásamt hag-
stæðu og kraftmiklu samkeppn-
isumhverfi, er ein helsta ástæðan
fyrir hagsæld og góðum lífskjör-
um á Íslandi í dag. En lengi má
gott bæta. Ein atvinnugrein hefur
nefnilega að mestu orðið útundan
í þessu ferli og það er íslenskur
upplýsingatækniiðnaður þar sem
umsvif hins opinbera eru gríðar-
lega umsvifamikil og fara ört vax-
andi. Ríkisvæðing UT-verkefna er
útbreidd og almenn öfugþróun.
Þessari staðreynd átta sig fáir á.
Kannski er ástæðan sú að umsvif
ríkisins í upplýsingatækni eru
mjög dulin að því leytinu til að
ríkið rekur engin upplýsinga-
tæknifyrirtæki, heldur fer þessi
starfsemi fram í hundruðum
tölvudeilda á vegum ráðuneyta og
opinberra stofnana.
Loforð og efndir
Tæpur áratugur er liðinn síðan
stjórnvöld ákváðu að einkavæða
Skýrr hf. Fyrirtækið var í kjölfarið
selt og stjórnvöld mótuðu mjög
framsækna stefnu um að efla
upplýsingasamfélagið, styðja við
greinina í hvívetna, fjölga störfum
og leita til einkaaðila í stóraukn-
um mæli með hvers konar UT-
þjónustu. Stjórnvöld hafa síðan
bætt um betur og mótað sér mjög
ákveðna einkavæðingarstefnu
varðandi opinber innkaup, hag-
ræðingu og sparnað í opinberum
rekstri þar sem er meðal annars
kveðið skýrt á um að leita skuli til
einkaaðila þegar um er að ræða
verkefni sem eru jafn vel eða bet-
ur leyst af þeim en ríkinu. Efndir
góðra fyrirætlana stjórnvalda
skipta UT-iðnaðinn miklu máli
því upphæð þeirra UT-verkefna,
sem ríkið sinnir á eigin spýtur,
nemur milljörðum króna á árs-
grundvelli.
UT-þjónusta ríkisins veltir tug-
milljörðum króna
Íslenskur upplýsingatækniiðnaður
velti í heild um 85 milljörðum
króna árið 2004 þegar litið er til
fjarskipta, hugbúnaðarþróunar,
vélbúnaðarsölu og tengdrar þjón-
usta. Þessi upphæð var sjálfsagt
nær 100 milljörðum árið 2005.
Sérfræðingar telja að í rauninni sé
íslenskur UT-iðnaður að velta hátt
í 200 milljörðum króna þegar tek-
ið er tillit til þess að meirihluti
UT-fólks og UT-starfsemi í land-
inu er ekki hjá sjálfstæðum fyrir-
tækjum í greininni, heldur í tölvu-
deildum innan fyrirtækja og stofn-
ana.Varlega áætlað má telja að
liðlega fjórðungur þessarar veltu
fari gegnum opinberar stofnanir
eða um 50 til 60 milljarðar króna.
Það er alltof hátt hlutfall.Til að
bæta gráu ofan á svart eru svo
opinberar stofnanir stórtækar í
hörkusamkeppni við einkafyrir-
tæki, misnota þar markaðsráðandi
stöðu sína og þverbrjóta sam-
keppnislög í krafti skattaívilnunar
og einkaréttar. Um þetta hafa fall-
ið úrskurðir og dómar, til dæmis
hjá Samkeppniseftirlitinu.
Einkavæðing UT-verkefna
Með brotthvarfi ríkisins úr upplýs-
ingatækni myndu fyrirtæki í grein-
inni styrkjast til mikilla muna og
eiga meira erindi út í hinn stóra
heim. Hvati skapast við þróun
lausna sem hægt er að bjóða sem
útflutningsvörur. Skatttekjur
aukast, velmenntuðu fólki bjóðast
störf og greinin getur lagt enn
meira af mörkum til að skapa frá-
bær lífskjör á Íslandi. Ríkið hefur
nú tækifæri til að spara umtals-
verða fjármuni í rekstri á skömm-
um tíma svo nemur milljörðum
króna á ársgrundvelli. Nýverið
ákvað Skýrr að gera fjórum ráðu-
neytum fjármála, dómsmála, heil-
brigðis og samgöngu tilboð í
rekstur tölvudeilda fjögurra stofn-
ana og lækka rekstrarkostnað
þeirra um 20 prósent. Ástæða er
til að framlengja þetta tilboð til
annarra opinberra stofnana. Skýrr
skorar hér með á stjórnendur op-
inberra stofnana að kanna málið í
þaula, leita tilboða og fá það stað-
fest að með útvistun UT-verkefna
til einkaaðila geta þeir svo sann-
arlega lækkað UT-rekstrarkostnað
um allt að fimmtung. Hvaða
stjórnandi tekur ekki fegins hendi
við slíku kostaboði?
Má bjóða ykkur 20% sparnað?
– eftir Hrein Jakobsson, forstjóra Skýrr hf.
Hreinn Jakobsson. Höfuðstöðvar Skýrr hf.
Gagnavefsjá fyrir náttúru og auðlindir Íslands
– eftir Helgu Barðadóttur, kynningarfulltrúa Orkustofnunar
Helga P. Finnsdóttir, Helga Tulinius og Steinunn Hauksdóttir voru við-
staddar verðlaunaafhendingu í landskeppni Sameinuðu þjóðanna í ný-
miðlun (World Summit Award) í maí 2005. Gagnavefsjáin var fulltrúi
Íslands í flokki vísinda í keppninni.
Gagnavefsjá Orkustofnunar http://www.gagnavefsja.is