UTBlaðið - 20.01.2006, Qupperneq 32
32 | UTBLAÐIÐ
Allir skotveiðimenn hérlendis
þurfa að skila veiðiskýrslu á
hverju ári og stærsti hluti þeirra
endurnýjar veiðikort sitt um leið.
Tilgangurinn er margþættur en
einkum sá að halda utan um rétt-
indi og eftirlit með skotveiðum.
Veiðikortakerfið var sett á laggirn-
ar árið 1995 og var í fyrstu byggt
á skýrslum sem veiðimenn sendu
inn bréfleiðis. Þessu fylgdi mikil
vinna þar sem slá þurfti inn allar
upplýsingar um greiðslur og
veiðiskýrslur á tölvutækt form.
Umfangið leynir á sér en það seg-
ir sína sögu að 19.500 Íslendingar
eru nú með veiðikortaréttindi, þar
af endurnýja um 10.500 veiðikort
sitt árlega og skila veiðiskýrslu.
Starfsemin byggð á rafrænni
vinnslu
Árið 1999 var byrjað á að bjóða
upp á rafræn skil á veiðiskýrslum
með þeim árangri að í dag skila
78% veiðimanna veiðiskýrslu á
skilavef veiðistjórnunarsviðs sem
er tvímælalaust hæsta hlutfall í
heiminum í þessum geira. Öll
gagnavinnsla og rafræn vinnsla
veiðistjórnunarsviðs Umhverfis-
stofnunar er byggð á Filemaker
Pro hugbúnaðinum og Filemaker
Server Advanced vefþjónshugbún-
aðinum. Örfáir starfsmenn geta
með lágmarkskostnaði haldið
utan um gríðarlegt gagnaflóð og
móttekið upplýsingar frá 19.500
skotveiðimönnum með lágmarks-
fyrirhöfn, þökk sé þessum hug-
búnaði. Á hverju ári berast 4.000
fyrirspurnir í tölvupósti, um
10.500 veiðiskýrslur og 35.000
tölvupóstar eru sendir í gegnum
þennan hugbúnað.
Gagnagrunnar aðgengilegir á
Vefnum
Vörpun og móttaka gagna úr
ýmsum gagnagrunnum er hægð-
arleikur í kerfinu enda hefur hug-
búnaðurinn verið að þróast und-
anfarin ár með tilliti til krafna
samfélagsins um aðgengi upplýs-
inga og umsókna á Vefnum. Ekki
þarf t.d. að útbúa sérstök vefsíðu-
kerfi til þess að birta eða taka við
gögnum heldur varpast gagna-
grunnarnir beint á Vefinn án
breytinga. Er þannig hægt að
velja hvaða gagnagrunnar og
hvaða upplýsingar úr þeim eru
aðgengilegir. Einn helsti kosturinn
við kerfið er sveigjanleiki þess og
hve auðvelt það er í notkun.
Skilvirkni í orði og á borði
Hugbúnaðurinn Filemaker Pro 8.0
er notaður hjá veiðistjórnunarsvið-
inu til umsjónar með mun fleiri
þjónustuþáttum en móttöku á
veiðiskýrslum. Ber þar helst að
nefna vinnslu gagna vegna upp-
gjörs á refa- og minkaveiði frá öll-
um sveitarfélögum á landinu þar
sem reikningar frá öllum veiði-
mönnum koma fram ásamt upp-
lýsingum um veiðina. Annar þátt-
ur er skráning og utanumhald
með skotvopna- og veiðikorta-
námskeiðum sem 700 manns
sækja árlega. Lögregluembættin
hafa beinan aðgang að upplýsing-
um um umsækjendur skotvopna-
námskeiðana og samþykkja þá á
Vefnum. Er þannig um gagnvirk
samskipti að ræða. Starfsfólk Um-
hvefisstofnunar hefur ennfremur
aðgang að sameiginlegum gagna-
grunnum yfir alþjóðlega samninga
stofnunarinnar, fæðubótarefni,
ljósmyndir, bókhald, símaskrár,
tímaskráningar, skoðanakannanir,
GPS-punktaskráningu vegna refa-
og hreindýraveiða auk þess sem
gagnagrunnar vegna alþjóðlegra
nefndastarfa eru í notkun. Kostn-
aður og fyrirhöfn er sáralítil við
þessa gagnagrunna þegar gerður
er samanburður við aðra algenga
gagnagrunna. Er þarna ónefnt að
öll umsjón með umsóknum um
hreindýraveiðileyfi og réttindi
leiðsögumanna með hreindýaveið-
um byggjast á þessu kerfi. Um
1.600 umsóknir berast árlega um
hreindýraveiðileyfi, 98% þeirra eru
rafrænar. Hver og einn getur lagt
inn aðalumsókn, varaumsókn og
aukadýr á níu mismunandi veiði-
svæðum. Úrdráttur veiðileyfa,
greiðslueftirlit og arðgreiðslur til
700 landeigenda hreindýrajarða
eru ennfremur unnar í sérstökum
gagnagrunni. Úrvinnsla arðskipt-
inga vegna hreindýraveiða er flók-
in því oft eru fleiri en einn eigandi
að sömu jörðinni og skipta þarf
arðinum á milli þeirra eftir flókn-
um reglum. Allt er þetta reiknað
út í Filemaker Pro 8.0.
Þúsundir símtala berast árlega
til veiðistjórnunarsviðs og gjarnan
þarf að senda viðkomandi ýmsar
upplýsingar með tölvupósti eða
bréfi vegna endurnýjunar veiði-
korts, námskeiða eða umsókna.
Sá eiginleiki kerfisins, að geta
sent sérsniðin bréf í gegnum
tölvupóst, fax, eða á prentara
með því að ýta á einn hnapp,
hefur sparað starfsfólkinu ófá
spor. Hægt er að útbúa forskriftir
í kerfinu sem leysa ýmis stöðluð
verkefni sem ella myndu kosta
meiri pappír og tíma.
Sparnaður í orði og á borði
Það hefur sparað bæði fjármuni
og tíma að skipta úr pappírs-
vinnslu í rafræna vinnslu en jafn-
framt verður þjónustan betri, skil-
virkari og þjónustuþáttum fjölgar.
Starfsemi veiðistjórnunarsviðs er
því lýsandi dæmi um skilvirkni í
rafrænni stjórnsýslu eins og hún
gerist best. Það er liðin tíð að
senda þurfi á annan tug þúsunda
bréfa í pósti og slá inn allar upp-
lýsingar handvirkt. Auðvelt er að
sjá fyrir sér að þrefalda þyrfti
starfsmannafjölda veiðistjórnunar-
sviðs ef rafræn samskipti hefðu
ekki komið til.
Háskóli Íslands hefur þróað gagn-
virkt kennslukerfi með vefviðmóti
fyrir íslensku sem annað mál,
Icelandic Online 1 og Icelandic
Online 2. Vefnámskeiðunum er
ætlað að þjóna áhugafólki um ís-
lenskt mál og menningu víðs veg-
ar um heiminn, bæði byrjendum
og lengra komnum.
Icelandic Online er þróað á
vegum Hugvísindastofnunar Há-
skóla Íslands í samstarfi Stofnunar
Sigurðar Nordals, íslenskuskorar
og sex erlendra háskóla. Verkefn-
ið er styrkt af sjóðum Háskólans,
Rannís, Lingua-áætlun ESB,
Nordplus Sprog, menntamála-
ráðuneytinu og fleirum.
Frábærar viðtökur
Með þessari námsleið gefst fjölda
fólks tækifæri til að læra íslensku
óháð því hvar það er statt í heim-
inum. Námsefninu er m.a. ætlað
að þjóna háskólastúdentum á Ís-
landi og erlendis, erlendu starfs-
fólki á íslenskum vinnumarkaði
og öðru áhugafólki um íslenskt
mál og menningu.
Icelandic Online hefur verið
afar vel tekið, bæði af nemendum
og í fræðasamfélaginu. Hundruð
manna stunda nám daglega á
Icelandic Online víðsvegar um
heiminn, m.a. í Norður-Ameríku,
Brasilíu, Finnlandi, Kína, Póllandi
og Eistlandi.
Verkefnið hlaut 2. verðlaun í
samkeppninni „Upp úr skúffunum
- hagnýtingarverðlaun Háskóla Ís-
lands“ 2005.
Fjölbreytt efni
Námskeiðin eru ætluð til sjálfs-
náms á Netinu og eru öllum opin
endurgjaldslaust. Efnið er fjöl-
breytt og gagnvirkt og nemendur
fá svörun jafnóðum og þeir vinna
verkefnin. Unnið er að þróun eft-
irlitskerfis sem gerir þeim kleift að
fylgjast með eigin námsframvindu.
Nemendur fá þjálfun í orða-
forða, málfræði, málnotkun, skiln-
ingi og hlustun. Með efninu eru
rafrænir stuðningsmiðlar, m.a.
orðabók og málfræðigrunnur.
Hjálparmálið er enska og á næst-
unni einnig danska, þýska og
franska.
Fræðilegur grunnur
- vaxtarmöguleikar
Námsefnið er stutt rannsóknum,
nútímakennslufræði og þróunar-
starfi kennara við Háskóla Ís-
lands. Í Icelandic Online felast
miklir vaxtarmöguleikar. Eftirlits-
kerfi námskeiðsins mun veita
upplýsingar um nám beyginga-
mála á Netinu sem verða grund-
völlur frekara rannsóknar- og þró-
unarstarfs á þessu sviði. Þá er
unnið að þróun náms- og
kennsluumhverfis til að auðvelda
samskipti þátttakenda o.fl.
Kerfi
Icelandic Online er hugbúnaðar-
lausn sem er grundvölluð á vensl-
uðum gagnagrunnum með not-
endaskilum á vef (PHP, Java).
Hugbúnaðurinn er íslenskur,
skrifaður sérstaklega fyrir þetta
verkefni, og byggist á þeim
kennslufræðilegu forsendum sem
verkefnisstjórn hefur lagt til
grundvallar.
Starfsfólk
Formaður verkefnisstjórnar
Icelandic Online er Birna Arn-
björnsdóttir, dósent, verkefnis-
stjóri er Kolbrún Friðriksdóttir,
MA, og tæknistjóri er Bjarki M.
Karlsson, kerfisfræðingur. Slóð
Icelandic Online 1 og 2 er:
www.icelandic.hi.is
Heimsmet í rafrænum skilum á veiðiskýrslum
- eftir Einar Guðmann, verkefnisstjóra á veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar
Bjarni Pálsson, verkefnisstjóri veiðistjórnunarsviðs, með 16.000 pappírs-
skýrslur sem senda þurfti veiðimönnum í janúar 2000.
Kassahrúgan hafði rýrnað um 78% í janúar 2006 þrátt fyrir að
skýrslunum fjölgaði úr 16.000 í 19.500, þökk sé rafrænum skilum!
Icelandic Online fær góðar viðtökur
– eftir Kolbrúnu Friðriksdóttur og Birnu Arnbjörnsdóttur