Morgunblaðið - 23.03.2015, Síða 11

Morgunblaðið - 23.03.2015, Síða 11
Ljósmynd/Sigurbjörg Sæmundsdóttir Afmæli Kristian Guttesen á tuttugu ára skáldaafmæli í ár og af því tilefni gefur hann út úrval ljóða sinna sem komið hafa út í átta bókum á tímabilinu. Hann segir að ljóð megi upplifa með ýmsum hætti, bæði lesin og flutt upphátt. sömuleiðis að uppgötva þau. „Kannski er það of auðvelt,“ veltir Kristian upp. Þrátt fyrir að hægt sé að nálgast alls kyns lesefni á vefnum verður án efa alltaf til fólk sem vill „þreifa“ á ljóðunum, halda á bókinni og lesa. „Ég tek líka eftir því að þótt við getum lesið fréttir á netinu þá er alltaf til hópur sem vill sitja við eld- húsborðið með dagblað og kaffibolla. Þannig að sumt breytist ekki en nýj- ungar eiga samt rétt á sér og hvað ljóðið varðar þá er þessum breyt- ingum ekki alveg lokið því útgáfa á rafbókum á eftir að þróast meira,“ segir Kristian og nefnir að menn hafi reynt ýmislegt, eins og til dæmis að birta ljóð á bloggsíðum og Facebook og prófa ólíkar leiðir til að miðla hugsunum og orðum. „Það er ekkert sem hindrar nokkurn í að birta ljóðin sín og lesandi sem vill nálgast ljóð getur fundið ljóð við sitt hæfi. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir ljóðskáld að lesa samtímakveðskap og líka að horfa á fólk flytja ljóðin sín og fara á upplestra. Það er öðruvísi upplifun að hlýða á ljóð innan um aðra, rétt eins og það er betra að hugleiða í hópi. Ef margir eru komnir til að hlýða á og horfa á einhvern spila tónlistina sína þá skapast stemning og maður upplifir þetta tónverk eða þetta ljóð á annan hátt,“ segir Kristian. Jafnvel má sjá og heyra flutning ljóðskálda á eigin verkum inni á veraldarvefnum og á Youtube má til að mynda finna Kristian lesa upp eigin verk. Ljóðið er því langt frá því að vera dautt, heldur getur verið, eins og Kristian bendir á, að einhverjar hugmyndir um ljóðið séu dauðar eða úreltar. „Ljóðið er sterkt fyrir og hverfur ekki nema við hreinlega hættum að nota tungumál,“ segir hann. Að lokum spyr blaðamaður skáldið út í heimspeki ljóðanna og segist Kristian sannfærður um að öll skáld hafi sína heimspeki. „Ég held að öll skáld fari með einhverja lífs- speki. Þegar maður les ljóð annarra þá bæði kynnist maður skáldinu og lærir um leið eitthvað um sjálfan sig, vegna þess að ef ljóð tala til manns þá verða til tengingar, hugrenninga- tengsl og maður fer að sjá hlutina í nýju ljósi. Hvort sem maður var að lesa um ást, sorg eða ömurlegt ástand í öðru landi,“ segir skáldið, heimspekingurinn og kennarinn Kristian Guttesen. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2015 Málþing verður haldið í dag, í fundar- salnum Kötlu sem er á annarri hæð Hótels Sögu. Málþingið er haldið á vegum Almannavarnadeildar ríkislög- reglustjóra, Bændasamtaka Íslands, atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytisins og umhverfis- og auðlinda- ráðuneytisins. Þar verður fjallað um áhrif mengunar frá gosinu í Holu- hrauni á gróður og lífríki. Eins og fram kemur á vef umhverf- is- og auðlindaráðuneytisins, www.umhverfisraduteyti.is, er til- gangur málþingsins að miðla upplýs- ingum um bein og óbein áhrif meng- unar frá eldgosinu í Holuhrauni og hvernig eftirliti með menguninni er og verður háttað. Á vefnum má einn- ig sjá dagaskrá málþingsins. Hljóðupptökur og glærur verða að- gengilegar eftir málþingið á vefnum www.avd.is. Málþing í dag á milli klukkan 13 og 17 Morgunblaðið/RAX Mengun Á málþinginu í dag verður fjallað um áhrif mengunar gossins í Holu- hrauni á gróður og lífríki. Halldór Runólfsson verður fundarstjóri. Áhrif gossins á gróður og lífríki Veitingastaðurinn Vitinn í Sandgerði fékk það verkefni í ársbyrjum að elda fyrir lítið alþjóðlegt flugfélag, Privat- Air, sem var á leið til landsins í lok febrúar. Um borð voru 50 farþegar og meðalaldur þeirra var rúm 60 ár, en um borð var einnig 8 manna áhöfn. Gestirnir eru vel stæðir ferðamenn úr Mið-Evrópu, sem leita sérstaklega að öðruvísi áfangastöðum og upplifun um allan heim. Meginþema ferðar- innar er náttúra, saga og menning á norðurslóðum. Í tilkynningu frá Vit- anum segir meðal annars um þetta skemmtilega verkefni að „til þess að uppfylla sem best væntingar, vildi flugfélagið samstarf við fyrirtæki sem gætu veitt persónulega þjón- ustu. Sérstök áhersla var á að allur maturinn væri íslenskur, svæðis- bundinn og heimagerður með til- vitnun í sögu og menningu.“ Verkefnið tókst með eindæmum vel og var allur matur eldaður í Sand- gerði. Ítarlegri sögu af þessu má lesa á vef Vitans, www.vitinn.is. Heimagerður flugvélamatur Ánægð Stefán Sigurðsson, Susanne Heger og Brynhildur Kristjánsdóttir. Íslensk matarmenning frá veit- ingamanni Vitans í Sandgerði Tíu íslenskir listamenn fengu af- hentar prjónapeysur úr alpaca-ull frá fyrirtækinu As We Grow en peysunum áttu þeir að breyta í sjálf- stæð listaverk – hver með sínum hætti. Úr varð heilsteypt sýning með tíu „peysugjörningum“ ef svo mætti að orði komast. Halldór Bald- ursson teiknari var einn þátttakenda en hann þekkja margir vegna póli- tískra skopmynda hans – í dagblöð- unum. Peysan sem Sigtryggur Bald- vinsson myndlistarmaður fékk til meðhöndlunar varð óður til mál- verksins The Painter eftir suðurafr- íska málarann Marlene Dumas og lituð í þeim anda. Ilmur Stefáns- dóttir leikmyndahönnuður klæddi klassísku ryksuguna Nilfisk í peysu. Aðrir þátttakendur voru Guðrún Lárusdóttir fatahönnuður, Róshild- ur Jónsdóttir vöruhönnuður, Þórunn Sveinsdóttir búningahönnuður, Auð- ur Karitas fatahönnuður, Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður og Furðuverk, þær Birta Þórðardóttir, Sonja Bent fatahönnuður og Rúna Kristinsdóttir. Sýning As We Grow Gjörningur Peysa Sigtryggs Baldurssonar á sýningu As We Grow. Prjónapeysum breytt í sjálfstæð listaverk Í landi hinna ófleygu fugla býr vatnastelpan. Þar býr félagi minn, sem ekki dregur lengur andann. Í landi hinna ófleygu fugla hvílir hin ígrundaða reynsla. Ég þarf sjálfur að hafa mig allan við til að gleyma ekki að anda. Í landi minninganna er eilíft myrkur. Alheimurinn þenst út, hin lifaða reynsla boðar alkul. Það eina sem dregur hann saman og bindur okkur traustum böndum er ást. Í landi hinna ófleygu fugla KRISTIAN GUTTESEN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.