Morgunblaðið - 23.03.2015, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2015
✝ Þórunn Þor-grímsdóttir
fæddist í Hafnar-
firði 25. ágúst 1921.
Hún lést 15. mars
2015.
Hún var dóttir
hjónanna Þorgríms
Sveinssonar skip-
stjóra og Maríu
Jónsdóttur hús-
móður. Þórunn var
yngst þriggja
systkina; Elísabet var elst, f.
1901, d. 1995, Jón Ebeneser, f.
1919, d. 1975.
Hinn 9.11. 1946 giftist Þórunn
Pétri Andréssyni skókaup-
manni, f. 1918, d. 1991. Þeirra
börn eru María, f. 1949, maki
Benedikt Ólafsson, þau skildu,
þeirra börn; Gunnar Torfi,
María og Kristín. Ágúst, f. 1949,
maki Hanna Rannveig Sigfús-
dóttir. Börn þeirra;
Ásdís, Ásgeir Sig-
urður og Gunnar
Ingi. Sonur Hönnu
alinn upp hjá þeim
Stefán Páll. Áslaug,
f. 1951. Maki Ómar
Arason. Þeirra
börn eru Þórunn
Erla, Friðrik og El-
ísabet. Pétur Þórir,
f. 1954. Maki Krist-
ín Jónsdóttir.
Þeirra börn eru Ágúst Ragnar
og Gyða. Andrés, f. 1961. Maki
Kristín Bryndís Guðmunds-
dóttir. Þeirra börn eru Arna
Kristín og Pétur. Þorgrímur, f.
1963. Maki Ása Böðvarsdóttir
(skilin). Þeirra börn eru Böðvar
Pétur og Sölvi.
Útför Þórunnar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag,
23. mars 2015, kl. 13.
Mig langar að kveðja elsku-
lega tengdamóður mína með
eftirfarandi ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín tengdadóttir,
Kristín Jónsdóttir.
Það var í byrjun árs 1988 sem
ég kom fyrst inn á heimili elsku-
legra tengdaforeldra minna,
Þórunnar og Péturs. Frá fyrstu
stundu var mér vel tekið og
strax fann ég hversu mikil ró og
friður ríkti innan veggja heim-
ilisins og gagnkvæm virðing
milli þeirra hjóna. Tengdamóðir
mín var rólyndiskona en hafði
samt skoðanir á hlutunum. Hún
þurfti sjaldan að hækka róminn
en fékk yfirleitt sitt í gegn með
lagni og yfirvegun.
Þórunn var smekkkona og
bjó manni sínum og börnum fal-
legt heimili. Hún hafði gott
auga fyrir formi og litum og
hafði gaman af því að klæða sig
upp fyrir hátíðleg tækifæri.
Hún stýrði heimilinu af mynd-
arskap og hélt uppi aga og
reglusemi. Samt sem áður var
hún ekki tilætlunarsöm og pass-
aði sig á því að blanda sér ekki í
einkalíf barnanna sinna þegar
þau höfðu hleypt heimdragan-
um. Hún hvatti þau samt öll til
dáða og var alltaf boðin og búin
að veita góð ráð þegar eftir því
var leitað. Þórunn var ekki
skoðanalaus kona en aldrei
heyrði ég hana tala illa um aðra
manneskju.
Þrátt fyrir að Þórunn væri
menntaður hjúkrunarfræðingur
lét hún af störfum eftir að hún
stofnaði heimili með Pétri sín-
um eins og þá var oftast venjan.
Hún hafði samt alltaf mikinn
áhuga á hjúkrun og það gladdi
hana mikið þegar Áslaug dóttir
hennar og síðar Þórunn Erla
dótturdóttir hennar ákváðu að
leggja fyrir sig hjúkrunarstarf-
ið.
Síðustu æviárin dvaldi hún á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Stór-
fjölskyldan hennar sýndi henni
mikla ræktarsemi og gladdi það
Þórunni alltaf þegar börn,
barnabörn og undir lokin barna-
barnabörn komu í heimsókn.
Áralöng veikindi mótuðu Þór-
unni á margan hátt. Alltaf hélt
hún samt ró sinni og kurteisi.
Hún var ekki tilætlunarsöm en
skildi samt ekki hvað fólk hafði
almennt mikið að gera. Fram á
síðustu stundu hafði hún skýra
hugsun og minni þrátt fyrir að
líkamlegt þrek færi þverrandi.
Um leið og ég þakka elsku-
legri tengdamóður minni tutt-
ugu og sjö ára samfylgd óska ég
henni velfarnaðar á nýjum stað
þar sem hún var sannfærð um
að hún myndi hitta Pétur sinn
að nýju.
Kristín Bryndís
Guðmundsdóttir.
Elsku amma mín, nú ertu
komin til afa Péturs og þið eruð
saman á ný eins og þú þráðir,
það huggar okkur í sorginni. Ég
var skírð Þórunn í höfuðið á þér
og ég á margar góðar minning-
ar eins og úr Reynihvamminum
þegar ég var 9 ára þegar við
fjölskyldan bjuggum á neðri
hæðinni á meðan að við vorum
að byggja. Þú passaðir mig oft
þegar ég var lítil þegar mamma
var í hjúkrunarnáminu. Þá sat
ég víst stillt og prúð eins og
dúkka uppi á eldhúsborði á
meðan þú mallaðir eitthvað gott
í eldhúsinu. Amma Þórunn með
svuntuna, það var svo gott að
geta hlaupið upp til þín og það
var spennandi að fá að kíkja í
stóra nammiskápinn í eldhús-
inu, fá nýbakað bakkelsi eða ís
sem er ennþá í uppáhaldi hjá
mér. Þetta var ömmudekur eins
og það gerist best.
Fallega heimilið ykkar afa á
Reynihvamminum var griða-
staður fjölskyldunnar, þar kom
stórfjölskyldan saman og þú
varst sannarlega húsmóðir á
þínu heimili og þér fór það vel
úr hendi að ala upp myndarleg-
an hóp sex barna. Þú getur ver-
ið stolt af því, elsku amma mín,
að eiga svona flottan samheld-
inn systkinahóp sem reglulega á
saman góðar stundir með
barnabörnunum í sunnudags-
göngutúrum og ættarmóti í júní
á hverju ári.
Við erum þrír ættliðirnir sem
lærðum hjúkrun en þú amma
mín fékkst ekki það tækifæri að
vinna við það starf sem þú lærð-
ir jafnvel þó svo að þú hafir eitt
sinn sagt mér að það hefði þig
langað að gera. Þitt ómetanlega
ævistarf snéri að heimilinu og
myndarlega barnahópnum ykk-
ar afa Péturs.
Þú varst sannur Gaflari,
fædd og uppalin í Hafnarfirði.
Það var gaman að spjalla við þig
um gamla tíma eins og um
sundkennsluna í sjónum við
Herjólfsgötu. Ég hugsa gjarnan
til þín þegar ég á góðum degi
hleyp strandstíginn við Herj-
ólfsgötu. Mig langar hreint ekk-
ert að stinga mér til sunds á
þeim stað þar sem þú tókst þín
fyrstu sundtök. Þá skynjar
maður hvað við höfum það gott í
dag.
Amma mín, þú tókst á við
sjúkdóminn þinn af miklu æðru-
leysi og þrátt fyrir að hjarta-
tutlan þín væri í mörg ár ekki
eins og best verður á kosið var
minnið þitt afbragðs gott og
hugurinn skýr alla ævi. Þú áttir
það til að vera skemmtilega
hreinskilin og sagðir það sem
þér fannst. Í eitt skiptið þegar
við fjölskyldan heimsóttum þig
á Hrafnistu varð þér litið á hana
Rannveigu okkar og hálf-
hneyksluð sagðir: „Ertu með
stúlkuna í nankinsbuxum? Og
ekki þótti þér það heldur góðar
fréttir að dæturnar væru nú
báðar farnar að æfa knatt-
spyrnu, „fótbolti væri nú ekkert
fyrir stelpur“. Ég held nú samt
að þú hafir náð sáttum við galla-
buxur og knattspyrnuiðkun
stúlkna enda í raun hreint smá-
atriði í samanburði við allar þær
ótrúlegu breytingar sem þú
upplifðir á þinni löngu ævi.
Elsku amma, það er erfitt að
hugsa til þess að við fjölskyldan
getum ekki lengur komið til þín
á Hrafnistu. Þá verður okkur
öllum ljóst hversu mikilvægt
það er í lífinu að eiga saman
góðar stundir og ómetanlegar
minningar.
Þórunn Erla Ómarsdóttir.
Þórunn
Þorgrímsdóttir
✝ Alda Ingi-marsdóttir
fæddist 2. sept-
ember 1932. Hún
lést á Sjúkrahús-
inu á Akureyri 4.
febrúar 2015.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Ingimar Sigur-
jónsson og Rósa
Kristjánsdóttir.
Systkinahópurinn
var stór, frumburðurinn,
stúlkubarn lést stuttu eftir
fæðingu, þá Sigþór Höskuldur
sem lést af slysförum aðeins
21 árs að aldri, þá kom Hauk-
ur Karl sem er látinn og eftir
honum Sigrún Kristbjörg sem
lést úr berklum 17 ára gömul,
þá Geir Örn, hann er kvæntur
Herborgu Káradóttur, þá
Alda og loks Óskar kvæntur
Dúu Kristjánsdóttur. Ingimar
og Rósa slitu samvistum,
seinni maður Rósu var Jakob
Böðvarsson, þau eignuðust
þrjú börn, barn sem lést í
frumbernsku en síðar Ástu
Dúnu, gift Jóni Höskuldssyni,
sem er nýlátinn, og Sigurð
Rúnar Jakobsson, Didda, sem
kvæntur er Guðrúnu
Sigurðardóttur, seinni kona
Ingimars var Sigrún Valdi-
marsdóttir.
Alda og Sigurður Blómkvist
Jónsson eignuðust tvo syni,
Jón Sigþór, f.
21.9. 1951, og
Sigurð Hauk, f.
11.11. 1971. Jón
Sigþór er kvænt-
ur Tamöru Mar-
íudóttur en Sig-
urður Haukur er
kvæntur Vaiva
Straukite. Barna-
börnin eru sjö
talsins. Börn
Jóns eru Kol-
brún, Tómas Helgi, Jón Birk-
ir, Andri Már og Alda Ósk,
en börn Sigurðar eru Axel
Orri og Dagný Rós, barna-
barnabörn eru þrjú talsins og
barnabarnabarnabörn fimm.
Alda vann lengi við að
lykkja sokka í fataverksmiðj-
unni Heklu en lengst starfaði
hún hjá Höldi eða í um 27 ár,
fyrst á Krókeyrarstöðinni,
síðan í Veganesti og loks
endaði hún á Litlu kaffistof-
unni við Tryggvabraut. Sam-
búð þeirra Öldu og Sigurðar
hófst í Hafnarstræti 39, þá
bjuggu þau um tíma í Odd-
eyrargötu 26 og Skarðshlíð
38 en lengst voru þau í Litlu-
hlíð 4a. Síðust árin áttu þau
Alda og Sigurður heima
Stórholti 3. Sigurður lést fyr-
ir réttu ári eftir baráttu við
krabbamein.
Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Elsku kæra amma mín. Þegar
ég heyrði af fráfalli þínu þá trúði
ég ekki mínum eigin eyrum. Ég
var viss um að þú yrðir 100 ára. Afi
hefur verið að kalla á þig og núna
liggið þið saman á sólarströnd í
banastuði hef ég trú á. Og ég bið
að heilsa kallinum. Það eru marg-
ar minningar sem við eigum sam-
an. Allt frá því að ég var smápolli í
Skarðshlíðinni hlaupandi á milli
og gat ekki opnað hurðina. Það
voru ófáar veislurnar sem ég, þú
og afi héldum hvort sem það voru
pönnukökur á sunnudagsmorgni
eða steikur um nætur. Þú varst
alltaf svo hress og allra yndisleg-
asta amma sem maður gat hugsað
sér. Ég þakka liðnar stundir, góðu
minningarnar og allt það góða
sem þú hefur veitt mér.
Litla, sæta, ljúfan góða
með ljósa hárið.
Lætur blíðu brosin sín
bera rósailm og vín,
allra stundir út til mín.
Litla, sæta, ljúfan góða,
með ljósa hárið
fyrir hana hjartað brann.
Hín er allra besta stúlkan sem ég fann.
Þinn ömmustrákur,
Axel Orri.
Alda
Ingimarsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Héðan skal halda
heimili sitt kveður
heimilisprýðin í hinsta sinn.
Síðasta sinni
sárt er að skilja,
en heimvon góð í himininn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Elsku Alda mín, þakka
þér gömlu góðu dagana.
Sofðu vært kæra vina.
Samúðarkveðjur til allra
ástvina.
Ingibjörg Bryndís
Árnadóttir.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu
gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
Sigríður Þórdís
Benediktsdóttir
✝ Sigríður Þór-dís Benedikts-
dóttir fæddist 4.
október 1928. Hún
lést 13. febrúar
2015. Útför Sigríð-
ar fór fram 20.
febrúar 2015.
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur
kærleika Guðs,
kærleika sem ekki
krafðist endurgjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina,
kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Elsku mamma, blessuð sé
minning þín.
Guðbjörg
Garðarsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
KONRÁÐ GUÐMUNDSSON,
fyrrverandi hótelstjóri,
sem lést 12. mars, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju þriðjudaginn
24. mars kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalar- og
hjúkrunarheimilið Grund eða Alzheimerfélagið (FAAS).
.
Þór Konráðsson,
Bryndís Konráðsdóttir,
Konráð Konráðsson
og fjölskyldur.
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA SIGURLAUG EYJÓLFSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 19. mars síðastliðinn.
Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
.
Hjálmar Eyjólfur Jónsson,
Harpa Einarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og tengdabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURLÍNA INGIMUNDARDÓTTIR,
Rauðalæk 11,
lést á Dvalarheimilinu Grund 16. mars.
Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 25. mars kl. 15.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á að láta Grund njóta þess.
.
Sigrún Skarphéðinsdóttir, Hilmar Skarphéðinsson,
Ann Sigurlín Lönnblad, Helga Ólafsdóttir,
Sunneva, Íris og Bjarki,
Skarphéðinn Sæmundsson.
Ástkær eiginmaður minn,
GÍSLI STEINSSON,
Neðstaleiti 7,
lést á Landspítalanum, Landakoti,
þriðjudaginn 17. mars.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju
fimmtudaginn 26. mars kl. 13.00.
.
Ólöf Thorlacius,
ættingjar og vinir.
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
GUÐBJÖRG JÓNA TYRFINGSDÓTTIR
frá Ljónsstöðum,
lést á Ljósheimum föstudaginn 20. mars.
Útför fer fram í Selfosskirkju miðvikudaginn
25. mars kl. 13.30.
.
Börn, tengdabörn og barnabörn.