Morgunblaðið - 23.03.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2015
leidretting.is
442 1900
Opnunartími 9:30-15:30adstod@leidretting.is
* Fyrir þá aðila sem gátu samþykkt frá og með 23. desember 2014.
Frestur til að samþykkja
höfuðstólsleiðréttinguna
rennur út í dag*
Það er einfalt að undirrita rafrænt
1 Þú skráir þig inn á leidretting.is og velur að „skoða útreikning“.
2 Þú smellir á hnappinn „hefja samþykktarferli“,
skoðar niðurstöðuna og smellir á „samþykkja“.
3 Þú undirritar með rafrænum skilríkjum á farsíma eða korti.
4 Að lokum færð þú kvittun á skjáinn.
Athugið að ferlinu er ekki lokið fyrr en kvittunin birtist.
„Við höfum fisk-
að vel að undan-
förnu og þegar
best lætur kom-
ið með 14 tonn
að landi eftir
daginn. Þetta
fiskirí varð
hvatning til þess
að kaupa nýjan
bát,“ segir Heið-
ar Magnússon,
útgerðarmaður í Ólafsvík.
Nýr 15 tonna bátur kom í
Ólafsvíkurflotann fyrir helgina.
Það er Brynja SH sem áður var
Steinunn HF. Fyrir á Heiðar ann-
an bát með sama nafni og sá nýi
og fær sá nú nafnið Brynja II.
Þess má geta að eiginkona Heið-
ars heitir Brynja Mjöll Ólafs-
dóttir.
„Bátakaupin eru 40 milljóna
króna fjárfesting. En þetta er vel
viðráðanlegt, enda er ég með
kvóta sem dugar til þess að við
getum sótt sjó út maímánuð,“ seg-
ir Heiðar sem ætlaði með nýju
Brynju á sjó strax í nótt.
„Við erum á línu, með 32 bala
og höfum að undanförnu mikið
verið á Flákunum norðan Önd-
verðarness,“ segir Heiðar sem
hefur verið með eigin útgerð frá
árinu 2001. Hefur vegnað vel og
kveðst munu halda í gamla bátinn
að minnsta kosti fram yfir makríl-
vertíð komandi sumars. sbs@mbl.is
Góð afla-
brögð voru
hvetjandi
Ljósmynd/Kristinn Jónasson
Ólafsvík Brynja SH við bryggju.
Báturinn er 14 t. og er á línuveiðum.
Heiðar
Magnússon
Ný Brynja SH í
Ólafsvíkurflotann
Árið 2001 spáði Vilhjálmur Bjarna-
son, þingmaður og þáverandi sér-
fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, því
að hingað til lands myndi koma um
ein milljón ferðamanna árið 2016.
Kom þetta fram í erindi sem hann
flutti á aðalfundi Samtaka ferða-
þjónustunnar (SAF) en talan fékkst
m.a. með því að framreikna þá
fjölgun sem varð á ferðamönnum
milli áranna 1990 og 2000.
Þegar Vilhjálmur setti fram spá
sína, árið 2001, var fjöldi ferða-
manna 296.000. Sjö árum síðar var
talan komin yfir 500.000 og í fyrra
voru ferðamenn rúmlega 997.000.
Er því nú spáð að um 1,2 milljónir
ferðamanna sæki landið heim í ár.
„Ég held að ég hafi nú farið
nokkuð nærri í spá minni. Á þessum
tíma var ég búinn að starfa í tæpt
ár hjá Þjóðhagsstofnun og skrifaði
skýrslu haustið 2000 um stöðu
ferðaþjónustunnar,“ segir Vil-
hjálmur og bendir á að við þá vinnu
hafi hann þurft að kynna sér þróun
ferðaþjónustunnar sem og skýrslur
frá World Tourism Organisation.
„Ég taldi það líklegt að aukn-
ingin hér á landi yrði tvöföld sam-
anborið við það sem World Tourism
spáði í heiminum,“ segir hann en
samtökin spáðu þá 4,3% vexti í
ferðaþjónustu á næstu árum.
Harpa mikilvægur hlekkur
Í erindi sínu lagði Vilhjálmur
m.a. áherslu á að viðskiptamenn
yrðu aukinn hluti ferðamanna. „Á
komandi árum þarf að hugsa um
tegund ferðamanna og þá einkum
þá sem gefa mikið af sér. Þær for-
sendur eru nú komnar með Hörpu
sem er mikill innviður fyrir ráð-
stefnur af dýrari gerðinni og gull-
náma fyrir ferðaþjónustuna.“
khj@mbl.is
Spáin reyndist nærri lagi
Morgunblaðið/Ómar
Miðbær Erlendir ferðamenn eru áberandi á götum borgarinnar.
Vilhjálmur Bjarnason spáði fyrir um fjölda ferðamanna
Bandaríski geim-
farinn Owen
Garriott heim-
sótti Land-
könnunarsafnið á
Húsavík í gær og
markaði fótspor
sín í steinsteypu.
Hann er fyrsti
þátttakandinn í
frægðargöngu
(Walk of Fame)
safnsins, en þar verður hægt að
stíga í fótspor þekktra landkönnuða
og geimfara. Garriott var í þjálfun
hér á landi með Neil Armstrong árið
1967 og fór síðar í tvær geimferðir.
Hann var hér staddur ásamt
eiginkonu sinni vegna sólmyrkvans.
Geimfari á
Húsavík
Geimfari Garriott
sótti Húsavík heim.