Reykjalundur - 01.10.1977, Side 5

Reykjalundur - 01.10.1977, Side 5
Haukur Þórðarson YFIRLÆKNIR Mark og mið í endurhæfingu Ekki er ljóst hvenær farið var að nota orðið eiidurluefing í íslensku máli í þeirri merkingu sem nú er algengust, þ.e. markviss líkamleg, andleg og félagsleg uppbygging fólks eftir sjúkdóma, slys eða meðfædda ágalla. Hugtakið var þó á kreiki fyrir meir en tveimur áratug- um, allavega hugmyndirnar að baki þess. Fyrir um 15 árum gerðist orðið endurhæfing sífellt algengara í mæltu og rituðu máli, komst á hvers manns varir, og sú þróun hefur haldið áfram jöfnum skrefum. Samfara því að leikir og lærðir hafa notað það liefur ekki að sama skapi myndast festa um skilgreiningu þess, þ.e. hvað endurhæfing er, livað í henni felst, og hugmyndarleg merking þess verið á reiki, þokukennd og óljós. Þetta hefur m.a. leitt til þess að rætt er um endurhæfingu jafnt í tíma og ótíma. Þessi reikula og breytilega túlkun á merkingu hugtaksins er að ýmsu leyti skað- leg og að öllu leyti óþörf, stundum óheiðarleg. Skilgreining er til á endurhæfingu, jafnvel alþjóðleg. Þó kann að valda ruglingi að sk.il- greiningin er e.t.v. misjafnlega orðuð frá einu landi til annars þótt meginhugtak hennar sé hið sama. Annað, sem kann að rugla skilgrein- ingarmið, er að í gegnum árin hefur einlægt verið leitast við að auka vettvang endurhæf- ingar með viðbótarverkefnum. Oft hefur sú verkefnaaukning gerst meir af kappi en forsjá og ekki alltaf verið eða reynst raunhæf í fram- kvæmd. Dæmi um þetta má m.a. finna í til- hneigingu til að blanda saman endurliæfingu og lijúkrunarþjónustu á sjúkrastofnunum. Ástæðan fyrir því er hinn mikli skortur á vist- rými fyrir gamalt, lasburða fólk og raunar fólk á öllum aldri sem þarfnast mikillar lijúkr- unarlegrar umönnunar. Vistrýmisskorturinn veldur því að óspart er reynt að koma slíku fólki fyrir á endurhæfingarstofnunum eða endurliæfingardeildum sjúkrahúsa, undir því yfirskyni að það þarfnist eða muni hafa gagn af endurhæfingu. Jafnvel hefur þekkst að stofn- anir, sem áformaðar voru og byggðar til að bæta úr áðurnefndum vistrýmisskorti, hafi verið ífærðar endurhæfingarbúningi að ein- hverju eða öllu leyti. Nú er það vitað að mörg endurhæfingarverkefni eru hjúkrunarfrek en hins vegar er ekki rétt að ætla endurhæfingar- starfsliði að annast rekstur nauðsynlegrar al- mennrar hjúkrunarþjónustu í landinu. REYKJALUNDUR 3

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.