Reykjalundur - 01.10.1977, Page 6

Reykjalundur - 01.10.1977, Page 6
Að vísu eru mörk í þessum efnum oft óljós á báða bóga: Alveg eins og margir sjúklingar í endurhæfingu eru hj úkrunarþurfandi er marg- ur hjúkrunarsjúklingurinn í þörf fyrir við- haldsendurhæfingarmeðferð. Samt er nauðsyn að þarna séu sæmilega glögg skil og jafnnauð- synlegt að ljós séu markmið endurhæfingar þegar metið er hvort sjúklingur eigi að fara í slíka meðferð eða ekki, fari á endurhæfing- arstofnun eða njóti annars konar þjónustu og fyrirgreiðslu. Jafnframt þarf að vera ljóst hvaða aðferðum á að beita til að ná mark- rniðuin og hvort þær aðferðir eru tiltækar á þeirri sjúkrastofnun sem um ræðir. Eins og áður segir hefur endurhæfing verið stunduð frá ómunatíð læknisfræðinnar, raun- ar í slagtogi við félagslega fyrirgreiðslu síðan slíkri þjónustu fór að vaxa fiskur um hrygg. Þó hefur þessi þjónusta ekki verið nefnd end- urhæfing fyrr en á þessum mannsaldri og ekki unnin skipulega sem starfsþáttur fyrr. Mark- viss starfsemi til endurreisnar þeim, sem fengið höfðu mænuveiki, hófst í auðugri löndum heims á árunum milli heimsstyrjalda. í heims- styrjöldinni síðari og j)ó einkunt eftir hana afmörkuðust verkefni endurhæfingar og starfs- hættir mótuðust. Á þeim tíma voru endurhæf- ingarmarkmið einatt atvinnutengd, þ.e. mark- mið endurhæfingar þau að fólk kæmist aftur í fyrra starf eða annað hentugra. En verksviðið breikkaði fljótlega til að ná jafnframt yfir jsjálfunaraðgerðir til að auka færni fólks við aðrar athafnir en vinnu, aðgerðir sem gerðu fólk rneira einfært í almennum daglegum at- höfnum en Jxið ella væri. Verkefnaútvíkkun af því tagi er eðlileg, sem og ýmis önnur út- þennsla í starfsháttum endurhæfingar, og á ekkert skylt við hugtakarugling sem áður var lýst. Án efa á ýmis önnur útvíkkun eftir að gerast á starfsvettvangi endurhæfingar á kom- andi áratugum í samræmi við áfanga í lieil- brigðis- og félagsmálaþjónustunni og lífsaf- komu fólks. Án efa munu einnig ýmsir starfs- hættir, sem þykja sjálfsagðir í dag, hverfa af verkefnaskrá endurhæfingar. Slíkt hefur þegar gerst í ýmsum tilvikum og má jtar m.a. benda á minnkandi Jjörf fyrir endurhæfingu eftir ýmsar plastiskar liðamótaskurðaðgerðir, eink- um í mjaðmarliðum. Fyrst eftir að slíkar að- gerðir komust á dagskrá var árangur jjeirra rnjög undir Jjví kominn að sjúklingarnir fengju viðeigandi sjúkrajjjálfun að þeim lokn- um. Með bættri tækni við aðgerðirnar sjálfar og hugvitssamlegri gerfiliðum hefur eftirfar- andi endurhæfingarþörf minnkað og í mörg- um tilvikum horfið, sem er eðlileg þróun. Verkefni endurhæfingar er að finna meðal fólks sent er að ná sér á strik eftir sjúkdóma og slys. Þar á nreðal er líka sá hópur sem aldrei nær sér að fullu á strik. Einnig meðal Jress lólks sem frá fæðingu hefur skerta líkamsburði eða andlegt atgervi eða ln'orutveggja. Endur- hæfingarstarfið er fólgið i hverri þeirri Jrjálf- unaraðgerð sem verður því að gagni og til framdráttar heilsufarslegá og félagslega svo að færni Jjess við daglegar athafnir og tekjuöflun verði meiri. Af Jjessu er ljóst að verkefnin eru mörg og ólík og að margir þarfnast Jjessarar Jjjónustu á einu eða öðru tímabili ævinnar. Þjálfunaraðgerðir og -aðferðir eru að sama skapi margvíslegar og krefjast afskipta ýmissa starfshópa heilbrigðis- og félagsmála. Það fer ekki milli mála að eftirspurn end- urhæfingar fer vaxandi. Ekki eru Jjar einungis á ferðinni tákn um auknar Jjjónustukröfur velmegunarjjjóðfélags heldur aukin eftirspurn sjálfkrafa í beinu framhaldi af framförum í almennri heilbrigðisþjónustu og síauknum af- skiptum samfélagsins af félagslegri velferð fólks. Óhjákvæmilega eykur aukið langlífi á Jjörfina og sömuleiðis bilið, sem einlægt er til á öllum tímum, á milli Jjess sem kallað er lækning og Jiess sem í reynd er fullur bati. Þetta bil er einmitt býsna stórt í dag. 4 REYK JALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.