Reykjalundur - 01.10.1977, Síða 9

Reykjalundur - 01.10.1977, Síða 9
sjúklingar. Kveikjan að stofnun samtaka sjúk- linganna sjálfra kom í bréfi frá Kristneshæli. Þar höfðu sjúklingarnir fengið yfirlækni stað- arins í lið með sér og hvöttu ákaft til dáða. Sjúklingar Reykjahælis tóku bréfinu tveim höndum og fengu einnig sinn yfirlækni í lið með sér. Ég var þar sjúklingur unt þessar mundir og fylgdist því vel með öllu sem þar gerðist, og tók þátt í því. Var j)ar kosin þriggja manna nefnd og fór yfirlæknir með nefndar- menn á fund berklasjúklinga Vífilsstaðahælis, Kópavogs, Landspítalans og Landakots. Allt þetta gerðist eftir mitt sumar árið 1938. í októberlok var Samband íslenskra berklasjúk- linga stofnað — tilgangurinn var: Útrýming berklavéiki á íslandi; markmið, sem að skyldi keppt: Bygging vinnuheimilis fyrir berkla- sjúklinga. Önnur félög Öryrkjabandalagsins urðu til við aðrar kringumstæður, en Jtó er óhætt að fullyrða, að án þeirra væru mál sjúkra manna og örkumla mun skemmra á veg komin. Blindrafélögin hafa byggt og rekið fyrir- tæki; skóla og heimili; félög heyrnardaufra aðstoða sína meðlimi við að ná sem mestum árangri í námi, afla tækja, sem komið geta að gagni; halda uppi félagslífi meðal jjeirra og tengja Jrá öðrum öryrkjahópum. Félög fatlaðra reka jjjálfunarstöðvar, hafa byggt heimili með mjög góðri aðstöðu og reka öfluga félagsstarfsemi og vinnustofur. Geðverndarfélagið rekur m.a. upplýsinga- jjjónustu og hefir byggt nokkur smáhúsi fyrir skjólstæðinga sína að Reykjalundi. Styrktarfélag vangefinna rekur heimili, og skóla og hefir auk þess komið upp íbúðarað- stöðu fyrir sína skjólstæðinga. í jaessari upptalningu hefir margt fallið nið- ur en gefur |)ó nokkra hugmynd um starf- semi Jjeirra. Er tilvist þessara félaga réttlœtanleg i dag? sbr. aukin afskipti rikis og sveitarfélaga? Samband íslenskra berklasjúklinga hefir lok- ið sínu upphaflega hlutverki. Berklaveikin er nú aðeins ör á þjóðarlíkamanum og mun von- andi aldrei valda ógn framar, en félagið hefir tekið nýjan ltóp inn í raðirnar. Félag asthma- sjúklinga er aðili að bandalaginu, sem nú heitir Samband íslenskra berkla- og brjósthols- sjúklinga — SÍBS —. Hvort þeim hópi tekst ásamt gömlu berklasjúklingunum að halda merki félagsins á lofti verður að sýna sig og J)á um leið hver þörfin er fyrir félagsskapinn. Önnur félög Öryrkjabandalagsins hafa næg verkefni framundan og ég fæ ekki séð, að ríki og bær geti að svo stöddu bætt Jjeim við sig, J)ótt vilji sé j)ar fyrir hendi. Er rétt að halda endalaust áfram að stofna slik félög eða eru mörk i þeim efnum œskileg? í lýðræðisjrjóðfélagi eru félög og allskonar samtök að rísa eða hníga og telji hópur manna sig þurfa eða geta bætt umhverfi sitt með Jrví að stofna til félagsskapar, ber honum að gera það. REYKJALUNDUR 7

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.