Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 13

Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 13
Þórey Guðmundsdóttir FÉLAGSRÁÖGJAFI Um félagsráðgjöf Enn er ekki ár liðið frá því er staða félags- ráðgjafa var fyrst fyllt að Reykjalundi. Er Jtví starfssvið félagsráðgjafa Jiar mjög ómótað. Engin liefð er á |iví hverskonar verkefni fé- lagsráðgjafi á að leysa, eða getur leyst. Er j)ví næsta tilviljunarkennt livað félagsráðgjafi ger- ir að Reykjalundi, enn sem komið er. Tel ég Jretta vera byrjunarástand, sem muni breytast. Félagsráðgjöf var ekki til, sem sérhæfð starfsgrein, fyrr en á jæssari öld. Hún er sprottin upp úr jarðvegi alls kyns líknar- og góðgerðarstarfsemi, fátækrahjálp og aðstoð við gamalt fólk, sjúkt og örkumla. Fyrr á öldum urðu fjölskyldur að sjá fyrir sínum og annast afbrigðilega einstaklinga innan sinna vébanda. Á tímum bændaþjóðfélags var Jietta möguleg lausn á félagslegum vanda en með breyttum atvinnuháttum reyndist æ erfiðara að leysa vandann á heimilum. Iðnbylting og tilurð borgarastéttar sköpuðu auk Jíess ný vandamál. Fjölskyldumynstur breyttist, tengsl- in milli kynslóðanna rofnuðu, minni not urðu fyrir starfskrafta aldraðra, börn gátu ekki lengur fylgt foreldrum sínum að störfum, og enginn varð eftir inni á heimilunum til að gæta sjúkra. Þetta nýja flókna jijóðfélag breytti ört lifnaðarháttum fólks og skapaði ýmis fé- lagsleg vandamál, sem torleyst voru velviljuðu áhugafólki. Sérjrekking á félagslegum sam- skiptum, tilfinningalífi og viðbrögðum fólks varð æ nauðsynlegri og ljósara varð að ekki var sama HVERNIG fólki var hjálpað. Um aldamót risu fyrstu félagsráðgjafaskól- arnir upp í Hollandi og Bandaríkjunum og upp úr fyrri heimsstyrjöld var kornið á fót slíkum skólum eða háskóladeildum víðsvegar í Evrópu og á Norðurlöndum. Ég ætla ekki að fara náið út í kennslutil- högun né námsgreinar Jjær er kenndar eru í námi í félagsráðgjöf, einungis geta inntöku- skilyrða, námslengdar og markmiðs námsins. Til að liefja nám í félagsráðgjöf þarf umsækj- andi að hafa stúdentspróf. I sérstökum tilfell- um er ])ó veitt undan])águ frá J)eirri kröfu á þeim forsendum að viðkomandi hafi staðgóða og mikla reynslu af félagsmálastarfi. Er J)á einungis krafist hlutastúdentsprófs og J)á í til- teknum greinum. Um námslengd er })á fyrst að segja að umsækjendur verða að liafa unnið undir handleiðslu félagsráðgjafa að verkefnum tengdum félagsráðgjöf, að minnsta kosti tólf mánuði áður en nám getur hafist. Eitthvað er námslengd misjöfn eftir löndum, en á Norð- urlöndum er 33ja mánaða skóli })ar er i/4 hluti í einkakennslu á stofnunum eða skrif- stofum. Markmið bóklega námsins er: I fyrsta lagi, að gera félagsráðgjafa hæfa til að aðstoða fólk við að nýta eigin möguleika, til að ná rétti REYKJALUNDUR 11

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.