Reykjalundur - 01.10.1977, Qupperneq 17
Kristín Guðmundsdóttir
SJÚKRAÞJÁLFARI
Bakþrautir
og líkamsrækt
TÍÐNI
Ekki hafa verið gerðar neinar rannsóknir
á tíðni bakkvilla hér á landi, en ef gert er
ráð fyrir sömu tíðni og á hinum Norður-
löndunum fá rnilli 60—70% þjóðarinnar ,,í
bakið“ einu sinni eða oftar á ævinni. Er þá
allt talið með, eða frá þeim er finna fyrir
stirðleika og þreytuverk í baki og til jieirra
sem eru rúmliggjandi og óvinnufærir vegna
bakverkja.
Um 50% þeirra sem fá í bakið batnar af
sjálfu sér innan viku en eftir tvo mánuði eru
um 10% ennþá með bakþrautir. Margir bak-
sjúklingar fá endurtekin bakverkjaköst sem
vara lengri eða skemmri tíma og geta valdið
miklum frátöfum frá vinnu, auk jjess sem jiað
veldur miklu andlegu og líkamlegu álagi á
hinn Jjjáða og hans nánustu. Ein algengasta
ástæða jjess að fólk tekur sér veikindafrí í
Svíþjóð eru bakþrautir, eða milli 10—11%
greiddra veikindadaga úr sjúkrasamlagi. Þó
er um helmingur baksjúklinga sem ekki til-
kynna sig til sjúkrasamlags og fá þar af leið-
andi ekki sjúkradagpeninga. Um helmingur
jjeirra sem fá greidda sjúkradagpeninga fá ])á
sjaldan og skamman tíma í einu. Eru j)að jieir
sem eru í líkamlega léttri og að þeirra mati
skemmtilegri vinnu og hafa góðan aðbúnað á
vinnustað. Hinn helmingurinn, sem fær
greidda sjúkradagpeninga, fær jrá oft og lengi
í senn. Er Jrað fólk sem vinnur einangruð,
einhliða og ójírifaleg störf, oft líkamlega erfið
og að þeirra mati leiðinleg. Aðbúnaður á
vinnustað Jsessa fólks er oft lélegur. Þrátt fyrir
jsetta hefur ekki verið hægt að sýna fram á
að bakþrautir séu algengari hjá erfiðisvinnu-
fólki en öðrum, en aftur á móti veikindafrí
af Jseirra völdum. Það þarf sterkari líkama til
að ráða við Jmnga vinnu. Bakveila, sem veld-
ur jjví að erfiðisvinnumaður tekur veikinda-
frí, er ef til vill ekki svo mikil að maður í lík-
arnlega léttu starfi þurfi að vera frá vinnu.
Veikindafrí spegla j)ví frekar vinnuumhverfi
heldur en tíðni bakverkjakasta.
RF.YK JALUNDUR
15