Reykjalundur - 01.10.1977, Side 18

Reykjalundur - 01.10.1977, Side 18
ORSAKIR Orsakir bakþrauta geta verið margvíslegar. Áverki, mar eða tognun vegna höggs eða of- reynslu, sem nær eingöngu til vöðva, kemur skyndilega og getur verið mjög sárt, en batnar oftast af sjálfu sér á nokkrum dögum. Algeng orsök bakþrauta er ofþreyta bakvöðva vegna rangs og einhliða álags. Sé vinnuálag líkamans stöðugt yfir 70% af hámarksgetu veldur það ofjrreytu og óeðlilegu sliti. Sé hins vegar um langvarandi kyrrstöðuspennu vöðva að ræða nægir að álagið sé milli 20—30% af hámarks- getu vöðvans. Þá lokast háræðanet vöðvans, blóðstreymi gegnum hann minnkar, hann vinnur kaldur og úrgangsefni safnast fyrir í vöðvanum. Þetta veldur verkjum sem aftur veldur ósjálfráðri spennu og Jiannig myndast vítahringur sem þarf að brjóta. Störf sem í sjálfu sér eru ekki líkamlega Jrung en einhliða, þannig að bakvöðvar vinna í kyrrstöðu, valda oft meiri bakjnautum heldur en líkamlega þyngi i og hreyfanlegri störf. Til að koma í veg fyrir ofjireytuverk þarf að auka hámarksgetu vöðva (líkamans í heild) en halda vinnuálagi óbreyttu, þannig að hlutfallstalan vinnuálag/ hámarksgeta lækki. Það er hægt með því að stunda líkamsrækt. Aðrar orsakir geta verið bundnar við hrygg- inn sjálfan, smáliði, liðbönd og brjóskjrófa. Hryggskekkja þarf ekki að vera orsök Jrrauta nema mikil aflögun brjóstkassa fylgi. Börn og unglingar með hryggskekkju ættu þó öll að fá sérstaka líkamsþjálfun ekki síst vegna þess að þau eru oft undanjregin skólaíjrróttum, en þau þurfa að læra á líkama sinn og byggja hann upp ekki síður en önnur börn. Streita og geðrænt álag geta verið orsök bak- þrauta ekki síður en afleiðing. Einnig má gera ráð fyrir að nokkur hluti þeirra, sem eru frá vinnu vegna bakverkja, noti það sem yfirvarp, til að fela hina raunverulegu orsök fjarveru sinnar, s.s. veik börn heima, áfengisneysla á heimilinu eða erfiðar heimilisaðstæður af öðr- um orsökum. HVAÐ SKAL GERA? Baksjúklingar rnæta oft litlum skilningi hjá vinnufélögum og vinnuveitendum. Það sér ekki á þeim, enginn hiti, enginn hósti, bara einhver óskýranlegur verkur. Jafnvel Jrótt leit- að sé læknis á hann oft erfitt með að átta sig á ástandinu. Þótt farið sé út í meiri háttar rannsóknir með röntgenmyndatöku og fleiru kemur í lang flestum tilfellum ekkert fram sem skýrt getur bakjrrautirnar. ,,Maður deyr ekki úr bakverkjum" er haft eftir sænskum lækni sem ekki vildi viðurkenna að skjólstæðingar hans fyndu til í baki og neitaði að gefa Jteim veikindavottorð. Fólk bítur Jrví oft á jaxlinn og pínir sig áfram í vinnu rniklu lengur en góðu hófi gegnir. Oft er farið út í notkun verkjalyfja, en Jrað Jtarf að vera í hófi. Verkjalyfin geta falið einkenni og sjúklingurinn leggur miklu meira á sig en hann í raun og veru þolir, og bakþrautirnar versna. Ekki ber að skilja þetta svo að allir sem finna til í bakinu eigi að fá sér veikinda- vottorð og hætta að vinna, enda fæstir sem Jrað gera, og „patent lausn" á vandamálum baksjúklinga ekki fundin upp ennþá, en hér eins og svo oft er betra að reyna að koma í veg fyrir en að lækna. Fer það mikið eftir hverjum og einurn einstaklingi hvernig til tekst. Staðreynd er að mannslíkaminn er gerð- ur til að hreyfa sig. Sé það ekki gert stirðna liðir, sinar og vöðvar styttast, háræðakerfi vöðvanna (líka hjartavöðvans) lokast að mestu, afkastageta vöðva, hjarta, blóðrásarkerfis og lungna minnkar. En, því miður, líkamsþung- inn eykst. Bara eitt kíló á ári, en safnast Jsegar saman kemur. Daglegt vinnuálag nálgast meir og meir hámarksafkastagetu vöðva og líkam- ans, sem hefur minnkað. Allir hafa vöðva hvort sem þeim líkar betur eða verr. Að halda Jreim í nothæfu ástandi getur komið í veg fyrir vanlíðan í baki og herðum. Að þjálfa upp líkamsjrrótt sinn og viðhalda honum síðan er ekki eins erfitt og oft er álitið. Að vísu er skortur á íþróttasölum og tímar í þeim, sem 16 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.