Reykjalundur - 01.10.1977, Side 20
Oddur Ólafsson
ALÞINGISMAfiUR
r
Arni Einarsson
framkvæmdastjóri
Reykjalundar sjötugur
Árni Einarsson er lesendum Reykjalundar
svo kunnur að fátt mun hér sagt, sem ykkur
er ekki flestum kunnugt.
Árni fæddist að Hvoli á Akranesi þann
17.—1.—’07, sonur hjónanna Einars Tjörvason-
ar og Sigríðar Sigurgeirsdóttur.
Hann ólst upp í föðurhúsum, fluttist til
Reykjavíkur til náms, en veiktist af lungna-
berklum árið 1925 og var sjúklingur á berkla-
hælum af og til frá 1925—1933. Berklaveikin
var þá í hámarki hér á landi og möguleikar
til lækninga af skornum skammti. Þeir, sem
Jtá dvöldu árum saman á berklahælum, hlutu
því að verða fyrir djúpstæðum og varanleg-
um áhrifum af ]ní hörmungarástandi er þar
ríkti, af því vonleysi og Jreirri beiskju, er
gjarnan greip um sig meðal ungmenna er
sáu vini og góða félaga verða undir í lífs-
baráttunni án Jress að nokkur fengi rönd við
reist.
Árni mun hafa verið einn af Jreim, er Jiá
strengdi Jaess heit að leggja baráttunni gegn
þessum skæða óvini unga fólksins lið ef hann
fengi starfsjrrek á ný. Þessvegna haslaði hann
sér völl á félagsmálasviðinu er heilsan batnaði.
Hann valdi sér starf er skapaði honum mögu-
leika til snertingar við fjöldann og aðstöðu
til Jaess að kynnast félagslegum vandamálum
almennings. Hann gerðist árið 1934 afgreiðslu-
maður Verklýðsblaðsins og síðar Þjóðviljans.
Hann starfaði síðan um árabil sem frarn-
kvæmdastjóri Þjóðviljans. Alllengi var hann
virkur félagi í Kommúnistaflokki íslands og
hann er einn af stofnendum Sósíalistaflokks-
ins.
Árið 1938 stofnuðu berklasjúklingar sam-
tök sín, S.Í.B.S.
Árni var einn af stofnfélögum Reykjavíkur-
deildar S.Í.B.S. og stjórnarmaðlimur Jrar í
upphafi. Árið 1942 var liann síðan kosinn í
miðstjórn sambandsins og Jsar átti hann sæti
uns hann nú nýverið lét af Jreim störfum að
eigin ósk. í stjórnarstarfi SÍBS naut Árni sín
sérlega vel, draumur hans um liðveislu í bar
áttunni gegn berklaveikinni var orðinn veru-
leiki. Hann nauðaþekkti vandann, hann vissi
hvar skórinn kreppti og Jressvegna reyndist
lionum, í samstarfi við félaga sína, auðvelt að
ákveða SÍBS verkefni, raða Jieim Jiannig að
þau gengju jafnan fyrir er brýnust voru og
þeim berklasjúku til mestra hagsbóta. Þar
var að sjálfsögðu brúin milli hælisins og at-
vinnulífsins, það er vinnuheimili og Jjjálfun-
arstöð fyrir berklasjúka, fyrsta og aðalverk-
efnið.
Árna var svo sem öðrum forvígismönnum
SÍBS ljóst að erfið félagsleg staða sjúkling-
18
REYKJALUNDUR